Heilbrigðismál - 01.09.1984, Side 11
Tóbakssala á Islandi Árleg meðalsala í grömmum á hvem fullorðinn íbúa
3000 Allt tóbak Síga-
rettur
500
1940 1945 1950 1955 1960 1965 1970 1975 1980 1985
Nú, þegar ný tóbakslög eru að
taka gildi, er rétt að átta sig á
nokkrum tölulegum staðreyndum
um tóbakssölu og tóbaksneyslu hér á
Iandi.
Á því línuriti sem hér birtist má
sjá þróun tóbakssölunnar í rúma
fjóra áratugi. Um er að ræða meðal-
sölu á hvern íbúa 15 ára og eldri, og
eru tölurnar byggðar á sölu frá
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
(reiknað er með að hver sígaretta
vegi 1 gramm og hver vindill 2,5
grömm). Sígarettusalan hefur aukist
úr 700 grömmum árið 1941 í 2515
gröntm árið 1983. Á sama tímabili
hefur heildarsala tóbaks aukist úr
1345 grömmum í 3020 grömm á
hvern fullorðinn íslending.
Ekki eru til eldri sölutölur en frá
1941. Af innflutningstölum má þó
gera sér nokkra grein fyrir þróun-
inni. Heildarsalan virðist ekki hafa
breyst mikið frá aldamótum og fram
undir 1940, en hins vegar hefur síg-
arettusalan aukist nær stöðugt. Árin
1912-15 voru sígarettur 3% af inn-
flutningi tóbaks en nú eru þær 83%
af tóbakssölunni.
Um og eftir síðari heimsstyrjöld-
ina jókst sígarettusalan mjög mikið.
Athyglisvert er að salan minnkaði
árið 1964 þegar birtar voru miklar
skýrslur um skaðsemi reykinga.
Einnig dró úr sölunni árin 1968 og
1969, en setja má það í samband við
þrengingar í efnahagslífinu. Síðast
minnkaði sígarettusalan að nokkru
marki árið 1977, en þá var mikil
umfjöllun í fjölmiðlum utn skaðsemi
Nokkrar tölur um tóbak
reykinga, m.a. námskeið í sjónvarpi
til að hjálpa fólki að hætta að reykja.
Pó að sígarettusalan sé nú komin yfir
það mark sem var árið 1976 er
heildartóbakssalan samt enn minni
en þá.
Tölur um sölu tóbaks eru ekki
besti mælikvarðinn á breytingar á
tieyslu tóbaks. Ekki eru tiltækar ná-
kvæmar neyslutölur fyrr en nú, árin
1983 og 1984, er kannanir Hagvangs
sýna að 41-42% fullorðinna íslend-
inga reykja. Lítill munur er á kynj-
um. Af þessum tölum, og öðrum,
má draga þá ályktun að um 70 þús-
und Islendingar reyki sem svarar
einum sígarettupakka á dag. Þetta
eru þó ekki nema 30% allra lands-
manna, þannig að mikill meirihluti
þjóðarinnar reykir ekki. Það er sá
meirihluti sem nýju tóbakslögin eiga
einkum að vernda. —ir.
HEILBRIGÐISMAL 3/1984 1 1