Heilbrigðismál - 01.09.1984, Síða 13
(Dalahérað). - Tóbak er almennt
notað af körlum, jafnt fátækum
heimilisfeðrum sem öðrum. Allar
brýnustu þarfir verða að víkja fyrir
þessari óhóflegu eyðslu. (Flateyrar-
hérað). — Tóbak notar fjöldinn.
(Hesteyrarhérað). — Kaffi er drukk-
ið mikið eins og annars staðar á
landi hér, og konurnar hafa á boð-
stólum við gesti og gangandi sæta-
brauð af öllum hugsanlegum gerðum
og gæðum, langt fram yfir það sem
góðu hófi gegnir. (Blönduóshérað).
- Danssamkomur eru útbreiðslu-
staðir, þar sem unglingarnir læra að
reykja og drekka. (Sauðárkrókshér-
að). - Munntóbaks- og neftóbaks-
neysla minnkar við fráfall hinna
eldri. Heimabrugg er útbreitt. (Öx-
arfjarðarhérað). - Kaffi- og tóbaks-
nautn mjög í hófi. (Vopnafjarðar-
hérað).
Alþýðufræðsla um hcilbrigðismál.
- Auk ýmiss konar fróðleiks fyrir
alþýðu um heilbrigðismál, sem jafn-
Svipmynd úr höfuðborginni á
fjórða áratug aldarinnar.
an birtist í blöðum og tímaritum
(sérstöku tímariti um þessi efni hefir
þó enn ekki tekist að halda lifandi),
hefir ríkisútvarpið gefið hlustendum
kost á nokkurri heilbrigðisfræðslu,
og voru á árinu haldnir á þess vegum
27 fyrirlestrar um þessi eða skyld
efni. Landlæknir gaf út á árinu tvö
smárit til alþýðufræðslu, „Leiðbein-
ingar um kynsjúkdóma" og „Leið-
beiningar um meðferð ungbarna".
Skólaeftirlit. — Skólaskoðanir
náðu til 7420 barna, þar af nutu 28%
ekki kennslu í skólahúsum. Leikfim-
ishús höfðu 38% barnanna og bað
30%. Læknar töldu skóla og skóla-
staði óviðunandi fyrir 8,6% barna.
- í haust var byrjað að gefa öllum
skólabörnum lýsi einu sinni á dag.
Kennarar skólans gefa börnunum
inn úr glasi, og er hagað svo að
glasið kemur tæplega við munninn.
Glasið er þerrað í hvert sinn með
hreinu þurru handklæði. (Skipa-
skagahérað).
Barnauppeldi. — Uppeldi og eftir-
liti barna er mjög ábótavant hér í
kauptúninu. Börnin hafa ekki annan
leikvöll en götuna, illa hirta. Hverj-
um eyri, sem þeim áskotnast, verja
þau til brjóstsykurskaupa. (Sauðár-
krókshérað).
Meðferð þurfalinga. - Þurfa-
lingum líður síst ver en öðrum sem
taldir eru komast vel af. (Flateyrar-
hérað).
Tannlækningar. - Tannáta er tíð-
astur allra kvilla á íslandi. Þó eiga
menn aðeins kost verulegra tann-
lækninga í þeim fáu bæjum, þar sem
tannlæknar hafa sest að, en það er í
Reykjavík, Hafnarfirði (með köfl-
um), ísafirði, Akureyri og Vest-
mannaeyjum. Engan veginn ná þó
tannlæknarnir til alls almennings á
þessum stöðum, og veldur því
tvennt, að tannlækningar eru yfir-
leitt of dýrar til að vera við almenn-
ingshæfi, nema öðru skipulagi verði
á komið, og einnig það, að almenn-
ingur hefur ekki náð því menningar-
stigi að þessu leyti að finna til þarfar-
innar og gera kröfu til stöðugrar
tannlæknisþjónustu. - Tannlæknir
frá Vestmannaeyjum dvaldi hér í tvo
mánuði og smíðaði gervitennur í 17
menn og konur, auk ýmissa smærri
aðgerða. Má segja að hér hafi farið
fram þetta ár stór hreingerning á
þessu sviði og var að vísu full þörf á
því. (Vopnafjarðarhérað).
Samkomuhús. Kirkjur. Kirkju-
garðar. - Kirkjur eru sums staðar
ofnlausar, og því háski að haldast
við í þeim undir messu, þegar kalt
er, en raunar kemur sjaldan til þess,
því fólk sækir svo illa messur. (Borg-
arneshérað). - Flestar samkomur,
dans og leiksýningar, eru ýmist
haldnar í fiskhúsunum eða í húsi
kaupmanns eins, og hvort tveggja
lítt nothæft til þeirra hluta. (Bíldu-
dalshérað).
Framfarir til almcnningsþrifa. -
Efnahagsleg afkoma og heilbrigði
eru svo skyld, að ég skoða það sem
skyldu mína að styðja af alefli allt, er
rniðar að bættri afkomu héraðsbúa
minna. (Flateyrarhérað). — Ég tel
að almenn heilbrigði sé miklu betri
nú í héraðinu en fyrir 15 árum.
Sennilega er það fyrst og fremst að
þakka bættum húsakynnum, en ná-
kvæmt skólaeftirlit og nokkur
fræðsla í sambandi við það og oftar
mun líka eiga einhvern þátt í þessu.
Þrifnaði hefir þá líka áreiðanlega
mikið farið fram. (Síðuhérað). □
HEILBRIGÐISMAL 3/1984 1 3