Heilbrigðismál - 01.06.1987, Síða 7

Heilbrigðismál - 01.06.1987, Síða 7
HEILBRIGÐISMÁl. Jónas RagnarsM>n Priðji hver Reykvíkingur kom á slysadeildina á síðasta ári Rætt við Gunnar Pór jónsson yfirlækni um starfsemi slysadeildar Borgarspítalans Slysadeild Borgarspítalans er sennilega sú sjúkrahúsdeild sem flestir kynnast af eigin raun. Okkur lék forvitni á að fræðast um starf- semi deildarinnar og mæltum okk- ur mót við dr. Gunnar Þór Jónsson prófessor í slysalækningum og yfir- lækni deildarinnar. Hann tók við því starfi fyrir þremur árum af Hauk Kristjánssyni, sem verið hafði prófessor og yfirlæknir síðan 1955 er deildin var nefnd Slysa- varðsstofan og var til húsa í Heilsu- verndarstöðinni við Barónsstíg. Gunnar Þór er sérfræðingur í bækl- unarskurðlækningum. Oft í viku er sagt ífréttum aðfólk hafi verið flutt á slysadeild Borgarspítalans. En hvert er hlutverk deildarinnar? Venjulega er deildin nefnd slysa- deild en í reynd heitir bráðamóttak- an á fyrstu hæð „slysa- og sjúkra- vakt" en á annarri hæð eru svo- nefndar „endurkomur". Hingað kemur ekki eingöngu slasað fólk heldur einnig fólk sem hefur veikst skyndilega, og við tökum á móti öll- um sem hingað koma. 1 bráðamóttökunni er fólk skoð- að. Reynt er að sjúkdómsgreina þá sem veikir eru, veita þeim úrlausn hér eða leggja þá inn. Lyflækninga- deild spítalans hefur þar fasta vakt og sinnir flestum bráðaveikindum og eitrunum. Slysadeildin sér um slysamóttöku og fæst við áverka og sjúkdóma í stoðkerfi líkamans og öll minni háttar meiðsl. Hver sér- deild spítalans tekur að sér þá áverka sem undir hana heyra. Heila- og taugaskurðdeild sinnir höfuð- og mænuáverkum, skurð- deild áverkum á innri líffæri, háls-, nef- og eyrnadeild áverkum á sínu sviði og svo framvegis. Hér er gæsludeild fyrir þá sem dveljast minna en sólarhring. Þeir sem þurfa að dveljast lengur eru lagðir inn á legudeild slysadeildar, á lyflækningadeild Borgarspítalans eða á önnur sjúkrahús. Hve margir komu á slysadeildina á síðasta ári og hverjum þjónar deildin? Árið 1986 komu 42.770 manns hingað vegna slysa og bráðra veik- inda eða að meðaltali 117 manns á dag. Auk þess komu um 23 þúsund manns á endurkomudeildina, til að fá skipt um umbúðir og í nánari rannsóknir. Meira en níu af hverjum tíu sem hingað leita eiga heima á höfuð- borgarsvæðinu en á deildina kemur einnig fólk víðar að, ekki síst mikið slasað fólk. Það lætur nærri að þriðji hver Reykvíkingur hafi kom- ið á slysadeildina á síðasta ári. Samkvæmt ársskýrslum Borgar- spítalans komu 95% fleiri sjúklingar á Dr. Gunnar Þór Jónsson prófessor hef- ur verið yfirlæknir slysadeildar Borgar- spítalans síðan í mars 1984. slysadeild Borgarspítalans árið 1985 heldur en árið 1970. Á sama tíma hefur íbúum höfuðborgarsvæðisins aðeins fjölgað um 20%. Hvað hefur gersl? A þessu eru margar skýringar. Ein skýringin er að við höfum sífellt verið að sinna fleiri sjúkum, sem hafa ekki aðgang að annarri heil- brigðisþjónustu. Vaktþjónusta lækna á höfuðborgarsvæðinu hafði verið ófullnægjandi og þess var vænst að álagið á slysadeildina minnkaði við þær breytingar sem voru gerðar á vaktþjónustunni fyrir áramótin, en því miður hefur sú ekki orðið raunin. Önnur skýring á aukinni aðsókn er fjölgun slysa. Þá er orðið algeng- ara en áður að fólk með minni hátt- ar meiðsli komi hingað, meðal ann- ars til að fá læknisvottorð vegna fjarvista frá vinnu eða skóla. Hvaða slysum hefur fjölgað mest? Þegar litið er á tölur um orsakir slysa vekur athygli að orsökin „högg af hlut" er nú tvöfalt algeng- ari en fyrir áratug, en það er hugs- anlegt að skráningin sé orðin betri en áður. íþróttaslysum hefur einn- ig fjölgað mjög mikið, en nú munu iðkendur íþrótta vera miklu fleiri en áður. Aukinn frítími fólks á síðustu árum hefur líklega átt sinn þátt í fjölgun slysa. Hefur dregið úr einhverjum slysum vegna fræðslu cða annarra slysavarna? Já, og eitt dæmi eru eitranir. Þeim hefur fækkað um meira en helming síðasta áratug. Sennilega er það að þakka mikilli umræðu og ábendingum um hættuleg efni, og merkingar á umbúðum hafa batnað þó enn sé ýmsu ábótavant. Annað dæmi eru umferðarslys- in. Fjöldi slasaðra hefur að vísu staðið nokkurn veginn í stað síð- 6 HEILBRIGÐISMÁL 2/1987 HEILBRIGÐISMÁL / Jónas Ragnarsson ustu ár, en ef tekið er mið af íbúa- fjölda hefur slysum fækkað. Bílum hefur fjölgað mikið síðustu árin þannig að umferðarslys sem hlut- fall af fjölda bíla eru nú þriðjungi færri en fyrir áratug. Er mikið um það að á slysadeildina komi fólk sem á ekkert erindi þangað og gæti allt eins farið til heimilislækna eða á heilsugæslustöðvar? Já. Fólk kemur hingað með alls kyns kvilla sem ekki berbrátt að svo og gömul meiðsl sem heimilislækn- ar gætu annast. Hins vegar getum við ekki rekið fólk í burtu ef það hef- ur ekki í önnur hús að venda. Eina leiðin er að bæta aðra þætti heilbrigðisþjónustunnar. / könnun á viðhorfi til heilbrigðis- þjónustu í febrúar 1985 sögðu 14% að- spurðra að þjónustu slysadeUdar Borg- arspítala væri ábótavant eða mjög ábótavant, en það var nær tvöfalt stærri hópur en var óánægður með aðra þætti heilbrigðisþjónustunnar. Kom þctta á óvart? Ekki svo mjög, en ég held að fólk sé fyrst og fremst óánægt með að þurfa að bíða. Skipulagið hefur nú verið bætt til að stytta biðina sem mest. Hins vegar er óhjákvæmilegt Norðurendi Borgarspítalans. Bráða- mótlaka slysadeildar er á neðri hæð en endurkomudeild á þeirri efri. Læknar slysadeildar cru 16, hjúkrunarfræðing- ar 28 og annað starfslið 16 manns. að fólk þurfi að biða þegar óvenju margir koma á stuttum tíma og eins þegar sjúklingar koma með fjölá- verka og allt starfsfólkið er skyndi- lega bundið við meðferð þeirra. Við leggjum allt kapp á að veita fólki eins fullkomna læknishjálp og unnt er, og ég held að okkur takist það býsna vel, miðað við aðstæður. Hve lengi þarffólk að bíða þegar mest er að gera? Það getur verið allt að tvær eða þrjár klukkustundir, þegar álagið er mest. Einn hálkudag í desember komu til dæmis sjötíu manns á sjö klukkustundum, og flestir voru með brotin eða brákuð bein. Svona álagstoppar setja allt á annan end- ann og ekki er hægt að ráða við það. Sjúklingar verða að treysta því að við gerum allt sem hægt er til að stytta bið þeirra. Hér er fleira starfsfólk á þeim tím- um sem vitað er fyrirfram að mikið verður að gera, eins og á nýársnótt, en annars er erfitt að skipuleggja móttöku slasaðra fram í tímann, eins og skiljanlegt er. Þegar slasað fólk kemur á afgreiðslu slysadeildar finnst sumum að of mikið kapp sé lagt á aðfá upplýsingar umfæð- ingardag, símanúmer og fleira cn meiðslin séu minna atriði. Er ekki hægt að haga þessu öðru vísi? Mér finnst slík gagnrýni ekki sanngjörn. Það er nauðsynlegt að skrá þessar upplýsingar sem fyrst, Hvar verða slysin? Algengustu slysstaðir. Fjöldi þeirra sein koiitu á slysadeild Borgarspítalans árið 1986. Úti (ekki viö vinnu) .... 10.998 Heimahús................ 7.578 Ýmsir vinnustaðir......3.712 Skólar.................. 1.793 Verksmiðjur.............1.408 Skemmtistaðir............1.184 Byggingar (í smíöum) . . . 751 Á sjó..................... 365 en það er ekki látið ganga fyrir ef mikið liggur við að hefja meðferð. Eru sjúklingar kallaðir inn afbiðstof- unni eftir því Iwe mikið þeir eru slasað- ir? Fá þeir forgang sem koina með sjúkrabíl og fara þess vegna ekki á bið- stofuna? Á hverri vakt er hjúkrunarfræð- ingur sem á að sjá um að þeir sem mikið eru slasaðir hafi forgang. Þá skiptir ekki máli hvernig þeir koma. Hvenær á fólk að kalla til sjúkrabíl og hvenær á það að reyna að koma sér og sínum á slysadeildina mcð öðrum hætti? Þegar grunur leikur á að um hjartaáfall sé að ræða á að hringja tafarlaust á sjúkrabíl, því að fyrstu mínúturnar skipta miklu máli í slík- um tilvikum. Svipuðu máli gegnir um meðvitundarlaust fólk og þá sem liðið hefur yfir. Þegar sjúkling- ar eru mikið slasaðir og erfitt er að hreyfa þá á að flytja þá í sjúkrabíl. Öðru máli gegnir um veikindi sem ber ekki mjög brátt að. Þá á frekar að hringja í læknavaktina. Þar er fólk sem getur ráðlagt um viðbrögð ef löng bið er eftir lækni. Það er mjög sjaldan sem fólk kemur í sjúkrabíl að ástæðulausu. Það kernur spánskt fyrir sjónir að neyðarbíllinn sé rekinn af lyflækninga- deild Borgarspílalans en ekki slysa- deildinni. Hvaða rök eru fyrir því? Tilgangurinn með neyðarbílnum er fyrst og fremst að sinna fólki með bráða sjúkdóma, einkum hjarta- sjúkdóma, og þess vegna fer læknir frá lyflækningadeild með honum. Hann er þó einnig notaður í útköll HEILBRIGÐISMÁL 2/1987 7

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.