Heilbrigðismál - 01.06.1987, Page 10
HEII.BRIGÐISMÁl. / Jónas Ragna
1
Nú eru á lífi um fjögur þúsund manns
sem fengið ham krabbamein
Samkvæmt upplýsingum úr
Krabbameinsskrá Krabbameinsfé-
lags íslands voru 3960 íslendingar á
lífi í árslok 1985 sem fengið höfðu
krabbamein. Konur voru mun fleiri
en karlar, 2410 á móti 1550. Gera má
ráð fyrir að síðan hafi þessi hópur
stækkað enn og nú séu um fjögur
þúsund manns á lífi sem fengið
hafa krabbamein. Helmingurinn
hefur lifað í meira en fimm ár, en oft
er við það miðað þegar rætt er um
að fólk sé læknað af krabbameini.
Langflestir voru á lífi eftir að hafa
fengið brjóstakrabbamein (773 kon-
ur í árslok 1985), því næst kom
blöðruhálskirtilskrabbamein (313
karlar), síðan skjaldkirtilskrabba-
mein (272 karlar og konur), rist-
ilkrabbamein (251 karlar og konur)
og leghálskrabbamein (235 konur).
í meðfylgjandi töflu er skráður
fjöldi fólks sem fengið hefur
krabbamein og var á lífi, skráð eftir
því í hvaða líffærum meinið var.
Mun fleiri geta nú vænst þess að
læknast af krabbameini heldur en
áður var. Um 16% karla sem
greindir voru á árunum 1956-60
lifðu í fimm ár eða lengur en 31%
þeirra sem greindust 1976-80 lifðu
svo lengi. Hliðstæðar tölur fyrir
konur hafa hækkað úr 27% í 46%.
Svo virðist sem meiri bati hafi orðið
í eins árs lifun (survival rate) heldur
en fimm ára lifun síðustu árin.
Það er mjög misjafnt eftir upp-
runa æxlisins hversu góðar bata-
horfurnar eru. Þrír af hverjum fjór-
um sem fá krabbamein í skjaldkirtil
lifa í fimm áreða lengur, en einung-
is tíundi hver lungnakrabbameins-
sjúklingur, svo að dæmi sé tekið.
Eins og sést á meðfylgjandi töflu
hefur lifun batnað að því er varðar
flest krabbamein.
jónas Ragnarsson ritstjóri og Hrafn
Tuliniusyfirlæknir tóku saman úrupp-
lýsingum sem safnaö hefur verið hjá
Krabbameinsskránni, en hún hefur
starfað síðan 1955.
Fimm ára lifun
Hundraðshlutfall fólks sem fengið hefur
krabbamein og lifði fimm ár eða lengur
eftir að meinið var greint.
Greiningarár 1956 1976
-60 -80
Karlar
Öll krabbamein............... 16% 31%
Skjaldkirtilskrabbamein . . . 38% 75%
Vararkrabbamein.............. 68% 63%
Blöðrukrabbamein............. 25% 56%
Húðkrabbamein................ 60% 55%
Heilaæxli.................... 20% 38%
Ristilkrabbamein............. 15% 36%
Blöðruhálskirtilskrabbamein 29% 36%
Nýrnakrabbamein............... 8% 34%
Endaþarmskrabbamein .... 25% 24%
Hvítblæði.................... 10% 19%
Magakrabbamein................ 9% 16%
Lungnakrabbamein......... 0% 9%
Vélindakrabbamein........ 0% 7%
Lifrarkrabbamein.............. 0% 6% j
Briskirtilskrabbamein.... 0% 2% J
10 HEILBRIGÐISMAL 2/1987