Heilbrigðismál - 01.06.1987, Qupperneq 17

Heilbrigðismál - 01.06.1987, Qupperneq 17
HEJLBR/GÐJS.VÍÁL Ljósmyndarinn (Jóhannes Long) Keisaraskurður fyrir 62 árum Grein eftir Jón P. Hallgrímsson Keisaraskurðir eiga sér langa sögu, sem rekja má allt til Róma- ríkis hins forna, en þar var svo fyrir mælt í lagaboði að nema skyldi burt fóstur úr kviði látinnar konu. Elstu heimildir um keisaraskurð á lifandi konu eru frá því á sextándu öld, en litlum sögum fer af slíkum aðgerð- um fyrr en á nítjándu öld. Fyrsti keisaraskurður hér á landi var gerður árið 1865, sá næsti 1910 og sá þriðji 1911. í sambandi við athugun á sögu keisaraskurða á íslandi, sem nú er unnið að á Kvennadeild Landspít- alans, kom í ljós að gerður var keis- araskurður í Vestmannaeyjum árið 1925. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrir- spurnir þar tókst ekki að fá nánari upplýsingar um aðgerðina, en síðar kom í ljós að Páll Kolka, sem var læknir í Vestmannaeyjum á þeim tíma, skýrir frá aðgerðinni í bók sinni „Úr myndabók læknis". Sjúklingurinn var Jónína Sigurdar- dóttir, sem kennd var við Hoffell í Vestmannaeyjum. Jónína er fædd í Loðmundarfirði árið 1892, en flutti þaðan til Seyðisfjarðar og síðan til Vestmannaeyja árið 1912 ásamt eig- inmanni sínum sem var formaður á Eyjabátnum Hauki. Eg átti þess kost nýlega að spjalla við Jónínu um þennan keisara- skurð, en hún hafði fætt árin 1913, 1916 og síðan tvíbura árið 1921. í desember 1924 drukknaði eigin- maður hennar er hann var að skyldustörfum með héraðslæknin- um í Vestmannaeyjum, Halldóri Gunnlaugssyni. Jónína var þá van- fær og minnist þess að hafa verið lasin framan af meðgöngunni, auk þess sem hún minnist draumfara er henni þótti boða voveiflega at- burði. Sannaðist það er hún missti eiginmann sinn með svo sviplegum hætti. Mánuði síðar fékk Jónína miklar blæðingar og var þá Páll Kolka sóttur og komst hann að því að um „fyrirliggjandi" fylgju var að ræða. Hann ákvað því að gera keis- araskurð og var „skurðstofan" flutt inn á heimili Jónínu að Hoffelli í Vestmannaeyjum, sem enn stend- ur. Mun Jónína hafa búið þar þang- að til hún flutti til Reykjavíkur fyrir um tuttugu árum. Jónína Sigurðardóttir fæddi barn rneð því að gangast undir keisaraskurð árið 1925 og var tíunda íslenska konan sem slík aðgerð hefur verið gerð á. Jónína dvelur nú í þjónustuíbúð við Dalbraut í Reykjavík, orðin 94 ára og er vel ern. í Hoffelli voru ágæt húsakynni, „stássstofa", sem Páll lét taka allt út úr og þvo hátt og Iágt, eins og hann segir í endurminningum sínum. Jónína minnist þess að hafa feng- ið deyfingasprautu en aðstoðar- læknir við aðgerðina var Pétur Jónsson, sem síðar varð læknir á Akureyri. Minnist Jónína þess að hafa heyrt á tal læknanna þegar þeir töldu að hún væri sofnuð. Hún segir að aðgerðin hafi geng- ið vel, en hún verið lengi að ná sér. Barnið lifði ekki af aðgerðina enda fætt tveim mánuðum fyrir tímann. Hjúkrunarkonan sem var viðstödd aðgerðina var Sólveig Jesdóttir Gíslasonar. Jónínu heilsaðist vel eftir aðgerðina og fæddi síðan einu sinni eðlilega eftir þessa sögulegu aðgerð. Jónína mun vera tíunda konan sem gerður er á keisaraskurður á íslandi og ef til vill sú eina sem leggst undir hnífinn á sínu eigin heimili. Einnig er athygli vert að Páll Kolka hafði aldrei áður gert keisaraskurð, né heldur séð hann gerðan. Mæðradauði vegna keisara- skurða var á þessum árum mjög hár og því voru þessar aðgerðir mjög sjaldgæfar og aðeins beitt sem neyðarúrræði. Af þessu leiddi að læknastúdentar og raunar læknar þeirra ára fengu ekki tækifæri til þess að sjá slíkar aðgerðir. Það var fyrst með bættri svæfingatækni og tilkomu fúkkalyfja að tíðni keisara- skurða jókst að því marki sem nú er orðið, en nú lætur nærri að 15% allra fæðandi kvenna á íslandi gangist undir keisaraskurð. Jón Þorgeir Hallgrímsson er yfir- læknir á Kvennadeild Landspítalans og dósent við læknadcild Háskóla íslands. HEILBRIGÐISMÁL 2/1987 17

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.