Heilbrigðismál - 01.06.1987, Síða 24
sitt mikið á fiskmeti, sem felur í sér
ríkulega skammta af joði. Bent hef-
ur verið á að hátt joðinnihald í fæðu
Islendinga gæti átt þátt í hárri
tíðni skialdkirtilskrabbameins hér á
landi. A síðustu árum hafa neyslu-
venjur á íslandi breyst nokkuð og
hlutur fiskmetis minnkað og vænt-
anlega joðmagn í fæðunni einnig.
Nýleg rannsókn Baldurs Johnsen
sýndi að skjaldkirtill hefur stækkað
í landsmönnum á síðustu 40 árum
og telur hann minnkað joðmagn í
fæðunni veigamestu ástæðuna þótt
aðrar ástæður komi einnig til
greina. Það má vera að lækkandi
tíðni skjaldkirtilskrabbameins frá
1980 megi að hluta rekja til stækk-
unar á skjaldkirtli landsmanna og
verður fróðlegt að fylgjast með
hvernig þróunin verður á næstu
árum.
ítarefiti:
1. Jón Hrafnkelsson: Krabbamein í
skjaldkirtli 1955-84. Læknablaðið 1986,
72, 271-283.
2. T. Hakulinen o. fl.: Trends in
Cancer Incidence in the Nordic Count-
ries. Acta Pathoiogica Microbiologica
Immunologica Scandinavica 1986, 94,
Section A, Suppl 288.
3. Sigurður E. Þorvaldsson: Skurðað-
gerðir vegna stakra hnúta í skjaldkirtli.
Læknablaðið 1986, 72, 287-289.
4. Einar Arnbjörnsson, Arnbjörn Arn-
björnsson, Arnbjörn Ólafsson: Thyroid
cancer incidence in relation to volcanic
activity. Archives of Environmental
Health 1986, 41, 36-40.
5. Júlíus Sigurjónsson: Studies of the
human thyroid in Iceland. Reykjavík,
1940.
6. Baldur Johnsen: Þyngd skjöldungs í
Islendingum. Læknablaðið 1986, 72,300-
306.
fón Hrafnkelsson læknir er sér-
fræðingur í krabbameinslækningum.
Hann starfar hjá Krabbameinsskránni.
Greinin byggir á rannsóknum höf-
undar í samvinnu við Félag um inn-
kirtlafræði og Krabbameinsskrá Krabba-
meinsfélags íslands. Uptplýsingar um
dánartíðni eru fengnar úr dánarvott-
orðum frá Hagstofu íslands.
HeilbriQÓiimál
DELIKATESS
Trefjaríkt brauð
víð allra hæfí
Æorni
Góð heílsa er gæfa hvers manns
Faxafell hf símí 51775
24 HEILBRIGÐISMÁL 2/1987