Heilbrigðismál - 01.06.1987, Qupperneq 26
Heilbrigðisstefna stj órnmálaflokkanna:
Flestir kjósa forvarnir
í umræðum í fjölmiðlum fyrir alþingiskosningarnar í vor fór lítið fyrir
heilbrigðismálum, enda þótt til þeirra sé varið fimmta hluta ríkisútgjalda.
En hvaða heilbrigðisstefnu hafa þeir stjórnmálaflokkar sem eiga nú full-
trúa á Alþingi og buðu fram í öllum kjördæmum? Eftirfarandi yfirliti er ætl-
að að varpa ljósi á þá heilbrigðisstefnu sem um var kosið í apríl, Ijóst eða
leynt.
A
Alþýðuflokkurinn
Úr ritinu „Viðreisn velferðarríkisins —
nýsköpun í efnahagsmálum. Stefnumál
við Alþingiskosningar 1987":
Ný heilbrigðisstefna miði að því
að nýta fjármuni, tæki og aðstöðu
betur en nú er. Jafnframt verði for-
varnir stórauknar. Sérstök áhersla
verði lögð á heilbrigðisþjónustu-
rannsóknir til að bæta skipulag og
rekstur heilsugæslu og sjúkrahúsa-
þjónustu. í rannsóknastarfi verði
einnig kannað orsakasamhengi
milli sjúkdóma og þeirra íslensku
þjóðfélagshátta, efnahagslegra og
félagslegra, sem áhrif hafa á velferð
og afkomu fólks.
Auk ofangreindra meginmark-
miða verði lögð áhersla á að nýta
skólakerfið betur til kennslu í
heilsuverndarmálum og slysavörn-
um, og í vörnum gegn ávana- og
fíkniefnaneyslu. Aðrir miðlar verði
einnig nýttir til að efla forvarnar-
starf. Sérstök áhersla verði lögð á
tannvernd og fyrirbyggjandi að-
gerðir í tannlækningamálum. Auk-
in verði heilbrigðis- og félagsleg
þjónusta utan stofnana, m.a. heim-
ilisþjónusta og heimahjúkrun fyrir
aldraða ogöryrkja. Þaðernauðsyn-
legt að samræma betur þjónustu
innan og utan sjúkrahúsa, m.a. til
þess að draga úr innlögnum á
sjúkrahús.
Tryggt verði að ekki þurfi að vera
umtalsverðir biðlistar á sjúkrahús-
um, og aukinn verði stuðningur við
félagasamtök sem vinna að viður-
kenndu forvarnarstarfi í heilbrigð-
ismálum. Starf að vinnuvernd verði
einnig stórlega aukið.
Fyrirkomulagi og verðmyndun í
lyfjasölu verði breytt til að draga úr
útgjöldum og stemma stigu við of
mikilli notkun lyfja. Fjármögnun
heilbrigðisþjónustu í heild verði
einnig endurskoðuð með það að
markmiði að tengja betur saman
ákvörðunarvald, stjórnun, fjár-
hagslega ábyrgð og aðhald.
B
Framsóknarflokkurinn
Úrályktun um heilbrigðismál sem sam-
þykkt vará 19. flokksþingi Framsóknar-
flokksins í nóvember 1986:
Ný öld er í augsýn með gjör-
breyttu þjóðfélagi.
Viðfangsefni heilbrigðisþjónust-
unnar eru ekki eingöngu að lækna
og hjúkra heldur einnig að fyrir-
byggja sjúkdóma. Með stórefldri
fræðslu um heilbrigt líferni, auk-
inni þekkingu á eigin líkama og
með einföldum aðgerðum getur
hver einstaklingur haft áhrif á eigið
heilsufar.
Flokksþingið leggur til að mörk-
uð verði svokölluð neyslustefna og
hvetur til þess að hið opinbera stýri
álögum sínum svo að stuðlað verði
að heilbrigðum neysluvenjum og
tómstundaiðkunum.
Breytingar á aldurssamsetningu
og sjúkdómatíðni kalla á breyttar
aðgerðir við skipulagningu og
A
26 HEILBRIGÐISMAL 2/1987