Heilbrigðismál - 01.06.1987, Blaðsíða 33
HEII.BRIGÐISMÁJ. / Jónas Ragnarss
Þróttmikið
• Metadsókn ad leitarstödinni. Á
síðasta ári voru um 23.100 konur
skoðaðar vegna leitar að krabba-
meini í leghálsi, þar af komu um
10.300 í leitarstöðina í Reykjavík og
8.500 í leitarstöðvar annars staðar á
landinu. Petta er besta þátttaka í
leghálskrabbameinsleitinni á einu
ári síðan hún hófst árið 1964. Auk
þess voru skoðuð brjóst um 18.300
kvenna í leitarstöðvunum, en um
2.400 þeirra fóru síðan í röntgen-
myndatöku af brjóstum og um 700 í
fínnálarástungu. Við skoðanir á
vegum leitarstöðva Krabbameins-
félagsins greindust 46 brjósta-
krabbamein, 3 leghálskrabbamein
og 107 meiri háttar forstigsbreyting-
ar í leghálsi.
• Grunnrannsóknir. Dr. Helga M.
Ögmundsdóttir læknir hefur verið
ráðin til að veita forstöðu rann-
starf Krabbameinsfélagsins
sóknastofu í sameinda- og frumu-
líffræði sem nú er að taka til starfa í
húsi Krabbameinsfélagsins. Verður
þar unnið að grunnrannsóknum á
svonefndum lífsýnum.
• Ristilleit. Áárinul986 vorusend
út gögn til 6000 karla og kvenna,
45-69 ára, vegna frumkönnunar á
skipulegri leit að æxlum í ristli og
endaþarmi. Svörbárustfráum30%
karla og 40% kvenna. Blóð greind-
ist í hægðasýnum 36 einstaklinga.
Tveir þeirra reyndust vera með
krabbamein á byrjunarstigi, aðrir
tveir með ífarandi krabbamein, og
góðkynja slímhúðarsepar fundust
hjá allmörgum. Fljótlega verður
tekin ákvörðun um framhald þess-
arar rannsóknar.
• Ráðgjöf og heimahlynning. í
kjölfar árangursríkrar söfnunar
vorið 1986 undir kjörorðinu „Þjóð-
arátak gegn krabbameini" var
ákveðið að auka þjónustu við al-
menning, krabbameinssjúklinga
og aðstandendur þeirra. Ráðnir
voru hjúrunarfræðingar til að sinna
heimahlynningu og veita upplýs-
ingar og ráðgjöf. Fólki gefst kostur
á að hringja í síma 91-21122 kl. 9-11
alla virka daga.
• Fræðsla í skóluni. Starfsmenn
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
heimsóttu um 13.300 nemendur í 92
grunnskólum á síðasta vetri, þar á
meðal voru nær allar bekkjardeildir
í 5.-8. bekkjum skóla á höfuöborg-
arsvæðinu.
• Starfsmannafjöldi. Samkvæmt
því sem fram kemur í nýjustu árs-
skýrslu Krabbameinsfélagsins eru
nú um 50 stöðugildi hjá samtökun-
um og hefur þeim fjölgað um 25 síð-
an 1981.
• Heiðursráð. Á 35 ára afmæli
Krabbameinsfélagsins, í júní 1986,
var tilkynnt að forseti íslands, Vig-
dís Finnbogadóttir, hefði fallist á að
gerast verndari félagsins. Jafnframt
var hún kjörin í heiðursráð félags-
ins, fyrst allra. Á aðalfundi Krabþa-
meinsfélagsins í lok apríl 1987 var
Hjörtur Hjartarson forstjóri kjörinn
í heiðursráðið. Hann sat í stjórn fé-
lagsins frá 1952 til 1987, lengst af
sem gjaldkeri.
• Stjórnarkjör. Prófessor Gunn-
laugur Snædal var endurkjörinn
formaður Krabbameinsfélags Is-
lands til tveggja ára á aðalfundi fé-
lagsins í apríl. I stjórn til næstu fjög-
urra ára voru kosin Vigdís Magnús-
dóttir hjúkrunarforstjóri, Gunnar
M. Hansson forstjóri og Lilja Ólafs-
dóttir framkvæmdastjóri, en hún
var kosin í stað Hjartar Hjartarson-
ar. Aðrir í stjórn eru Almar Gríms-
son lyfsali, Auður Guðjónsdóttir
húsmóðir, Björgvin Lúthersson
forstjóri, Erlendur Einarsson fyrr-
verandi forstjóri, Matthías Johann-
essen ritstjóri, Ólafur Örn Arnar-
son yfirlæknir, Sigurður Björnsson
Iæknir, Sigursteinn Guðmundson
yfirlæknir og Tómas Árni Jónasson
læknir. Forstjóri Krabbameinsfé-
lagsinserdr. G. Snorri Ingimarsson
læknir. -jr.
Margir hlynntir
krabbameinsleit
Óhætt er að segja að íslend-
ingarséu hlynntir krabbameins-
leit, samkvæmt niðurstöðum
könnunar sem Hagvangur gerði
fyrir Krabbameinsfélagiö í apríl í
vor, en hún náði til 1158 karla og
kvenna á aldrinum frá 15 til 79
ára.
Spurt var: „Hver er afstaða
þín til leitar að krabbameini,
bæði hjá körlum og konum?"
Mjög hlynntir voru 87,9%, frek-
arhlynntir8,6%, 0,4V<> andvígir
og 3,1% tóku ekki afstöðu. Af
þeim sem tóku afstöðu voru því
99,6% hlynntir krabbameinsleit
almennt.
Sérstaklega var spurt um af-
stöðu til leitar að krabbameini í
ristli og endaþprmi. Niður-
stöðurnar voru svipaöar, 99,3%
þeirra sem tóku afstöðu voru
hlynntir slíkri leit.
Þessar niðurstöður eru ótví-
ræður stuðningur við það starf
sem Krabbameinsfélagið hefur
unnið að síðustu áratugi. -jr.
HEILBRIGÐISMAL 2/1987 33