Heilbrigðismál - 01.03.1989, Síða 4
HEILBRIGÐISMÁL / Jónas Ragnar
Hvíld
og
heilsa
í fyrstu bók Móse segir um sköp-
un heimsins: „Og Guð lauk á hin-
um sjöunda degi verki sínu, er
hann hafði gjört, og hvfldist hinn
sjöunda dag og helgaði hann, því
að á honum hvíldist Guð af verki
sínu, sem hann hafði skapað og
gjört." Og þriðja boðorðið hljóðar
þannig í samræmi við sköpunar-
söguna: „Halda skaltu hvíldardag-
inn heilagan." Hvort sem menn
trúa sköpunarsögu Biblíunnar bók-
staflega eða ekki er ljóst að í henni
felast ráðleggingar um að öllum sé
hvfldar þörf að loknu verki og í
raun er boðorðið fyrirskipun um
það að menn hvílist með reglulegu
millibili. Biblían er rituð af mikilli
mannþekkingu og byggð á reynslu
aldanna. Flest í þeirri gömlu bók er
hagnýtt í dag, þó sumt þurfi að
umrita fyrir nútímann. Auk fyrir-
mæla um iðkun trúar er ljóst að í
boðskapnum felst að fólk eigi að
gæta heilsu sinnar og bæta hana
með hvfld þegar þreytu gætir.
Sjálfur Guð gekk þar á undan með
góðu fordæmi.
Vinnulöggjöf okkar og kjara-
samningar fela í sér framkvæmd
boðskapar sköpunarsögunnar með
því að gefa öllum reglulega hvíld-
ardaga frá starfi. Flestir íslendingar
hafa tvo frídaga í viku auk hátíðis-
daga. Vinnuhagræðing og tækni
nútímans hafa líka náð því marki
að flestir hafa nokkurn tíma aflögu
daglega, utan reglubundins starfs,
sem þeir geta nýtt sér að eigin geð-
þótta, hvort sem er til hvfldar eða
til annarra starfa eða leikja. Auk
daglegra frítíma og vikulegra frí-
daga eiga allir rétt á sumarleyfi og/
eða vetrarleyfi frá fjórum og upp í
nær sjö vikur árlega.
Flestir hafa því meira en nógan
tíma til þess eins að hvflast. Vand-
inn er sá að nota hann rétt, því
bæði þarf að hvíla líkama og huga.
Margir kunna góð skil á líkam-
legri þreytu og hafa ráð til að losna
við hana með hvfld og líkamlegri
slökun. Öðru máli gegnir um and-
lega þreytu. Allt of margir kunna
ekki skil á henni og átta sig ekki á
því þegar hún keyrir úr hófi og
hvfldar er þörf. Streita og andleg
þreyta eru náskyld. Hugur manns
er ekki eins og líkami, að hægt sé
að leggja hann til hvfldar sam-
kvæmt áætlun eða skipun. Oft er
það jafnvel svo að hugurinn fer all-
ur í uppnám þegar líkaminn hvílist
og athyglin beinist frá líkamlegu
álagi. Svefnleysi um nætur tengist
þessu mjög. Leiðir til hvfldar hug-
ans eru samt margar, en ekki eins
einfaldar og til hvfldar líkamans,
og leiðirnar eru breytilegar eftir at-
vinnuháttum og manngerðum.
Best reynist til hvfldar hugans að
taka hann frá því efni sem þreytu
veldur, þ.e. að dreifa huganum.
Fyrir kyrrsetumann er líkams-
hreyfing mjög góð í þessu augna-
miði. Fyrir erfiðisvinnumann getur
líkamshreyfing líka verið góð, sér-
staklega ef hún er ólík hans venju-
lega líkamsálagi og veitir honum
ánægju. Möguleikar á líkamshreyf-
ingu eru miklir og má nefna sund
og gönguferðir sem algildar allt ár-
ið. Fyrir þá sem heldur vilja vera
innanhúss eru heilsuræktarstöðvar
og fimleikahús ákjósanleg.
Margir freistast til að leita sér
andlegrar hvfldar með því að lesa
blöð, hlusta á útvarp eða horfa á
sjónvarp. Á þessu sviði er mikið í
boði. Nægir að nefna að flestir
kaupa eitt eða fleiri dagblöð, marg-
ar útvarpsstöðvar eru í gangi allan
sólarhringinn og tvær sjónvarps-
stöðvar starfa öll kvöld og hluta úr
degi þar að auki um helgar.
Spennan í fréttaflutningi og dæg-
urmálum er mikil og til þess að
draga að sér athygli fólks er henni
haldið uppi óspart af fjölmiðlun-
um. Allir vita að meiri hluti frétta
og dægurmála er fremur óróavekj-
andi en hvflandi fyrir hugann. Fólk
ánetjast og því finnst það verða að
fylgjast með öllu, sem er að gerast,
heima og erlendis. Nýlega er kqm-
in út bók sem fjallar um þá sem
þjást af svonefndri upplýsinga-
streitu, sem er sálarkvilli af völd-
um of mikils upplýsingaflæðis nú-
tímans. Vandi fólks er að velja og
hafna rétt. Þegar ágangur upplýs-
inga er mikill, er nauðsynlegt að
setja sér hámarkstíma á því sviði á
sama hátt og settur er hámarkstími
á atvinnu og sennilega er þörf
hvfldardaga þar sem annars stað-
ar.
Jónas Hallgrímsson,
prófessor.
4 HEILBRIGÐISMAL 1/1989