Heilbrigðismál - 01.03.1989, Qupperneq 9

Heilbrigðismál - 01.03.1989, Qupperneq 9
und sköddunar eða sjúkdóms heldur margþætt og oft löng röð atburða. Með þessu varð til nýr skilning- ur á fjölbreytileika þeirra ástæðna sem liggja til grundvallar langvar- andi verkjum. Boð um þá flytjast fyrir tilstuðlan boðefna sem eru hin sömu og taka þátt í flutningi boða við depurð og kvíða. Því má telja enn sennilegra að þær aðferð- ir sem oft duga vel við bráða sárs- auka dugi illa eða alls ekki við langvarandi sársauka. Svo er einn- ig raunin. Augljóst er að venjuleg- ar verkjatöflur eða enn frekari hvfld og fjarvera frá vinnu læknar ekki þetta ástand. Framfarir í læknisfræði síðustu ára hafa valdið því að fremstu vís- indamenn á þessu sviði telja að tími sé kominn til að skoða bak- veiki á nýjan hátt. Margt bendir til þess að almennt hreyfingarleysi fólks í nútímaþjóðfélagi valdi því að einhæf störf í iðnaði eða á skrif- stofu, þó létt séu, leiði til alvar- legra bakverkja. Sú staðreynd að bakveiki er nær óþekkt meðal van- þróaðra þjóða þar sem fjölbreytt líkamlega erfið vinna er enn mjög almenn, rennir enn frekari stoðum undir þessa ályktun. Raunar eru engar vísindalegar sannanir fyrir því að ráðleggja beri fólki að hætta vinnu sinni vegna bakverkja nema vinnan sé sérlega einhæf eða aug- ljóslega mjög erfið. Ekki verður séð að aukið slit á beinabyggingu í baki valdi aukinni tíðni bakverkja. Þar sem flest bendir til að bak- verkir okkar í dag séu afleiðingar rangrar líkamsbeitingar fremur en slitsjúkdómur er ástæða til að minna á að jákvæð afstaða til hreyfingar og uppörvun er senni- lega mun árangursríkari en þær aðferðir sem taldar hafa verið góð- ar og gildar. Að lokum Aldrei verður nógu rík áhersla lögð á það að sérhver bakveikur sjúklingur á skýlausan rétt á ná- kvæmri skoðun læknis ásamt því að tekin sé greinargóð sjúkrasaga til að útiloka alvarlega kvilla eða sjúkdóma sem beita má markvissri meðferð við. Sé þessu skilyrði full- nægt af kunnáttu og alúð er hægt að draga verulega úr alvarlegum afleiðingum bakverkja. Helstu heimildir: Gísli Einarsson: Um bakverki. Blaö Iöju- þjálfarafélags íslands, 1986, 8 (2), 4-12. Ólöf A. Steingrímsdóttir, Vilhjálmur Rafns- son, Þórunn Sveinsdóttir, Magnús H. Ólafs- son: Einkenni frá hreyfi- og stoðkerfi. Hóp- rannsókn á úrtaki íslendinga, I. Læknablaðið 1988, 74, 223-232. Gordon Waddell: A New Clinical Model for the Treatment of Low-Back Pain. Spine, 1987, 12 (7), 632-644. Richard A. Deyo: Measuring the Functional Status of Patients With Low Back Pain. Arch. Phys. Med. Rehabil., 1988, 69, 1044-1053. Ulrika Klingensterna: Andra kursen om Spinal Disorders. Kritisk granskning av met- odernas tillförlitlighet. Sjukgymnasten, 1988, 8, 19-21. Vert Mooney: Update. How to treat and prevent back pain. Executive Health Report, 1988, 24 (10). Quebec Task Force in Spinal Disorders, Report. Spine, 1987, 12 suppl., (7), s8-s54. Gísli Einarsson læknir er sérfræð- ingur í orku- og endurhæfingarlækn- ingum og starfar í Reykjavík. Áður hefur birst grein eftir Gisla í Heilbrigðismálum (1/1987): Megrun án hreyfingar er oftast árangurslaus. Heilræði fyrir bakveika Nokkrar ábendingar um það hvernig draga má úr líkum á bak- verkjum við athafnir daglegs lífs. Vinnan Sitjið með slakar axlir og nálægt hornréttri (90°) beygju í olnbog- um, með stuðning frá stólbaki á neðsta hluta mjóbaks. Sitjið vel inni á stólnum, með hornrétta beygju á hnjám og fætur á gólfi eða á skemli ef þörf krefur. Rísið oft á fætur til að sækja hluti í stað þess að renna stólnum til, notið helst ekki hjól á stólnum ef þau auka kyrrsetu. Slakið á kjálkaliðum öðru hverju og andið djúpt. Gerið hlé á vinnunni í 20 til 30 sekúndur á 15 til 20 mínútna fresti og teygið ykkur rækilega. Standið gleitt eða með annan fótinn framar, nálægt verkefninu, með verkefnið í eða rétt undir olnbogahæð, með gott pláss á borð- inu og verið í góðum skóm. Hvílið annan fótinn öðru hvoru á skemli eða skiptið milli sitjandi og standandi vinnu ef hægt er. Lyftið eins nálægt hlutnum og hægt er, verið í gleiðstöðu eða með annan fótinn framar, með hnén bogin og bakið beint. Takið hlutinn með beinum handleggjum, réttið úr hnjánum, teygið háls- inn, styðjið við hlutinn með magavöðvunum og forðist snúning meðan lyft er. Mikilvægir almennir þættir á vinnustað eru góður andi, vinnu- hagræðing, fjölbreytt verkefni, áhugaverð verkefni og sjálfstæð ábyrgð. Frístundir - hvíld Til að tryggja góðan svefn þarf rúmið að vera mátulega mjúkt þannig að bakið sé beint þegar legið er á hlið. Sætin í bílnum þurfa að veita góðan stuðning við bakið. Á lang- ferð er nauðsynlegt að stansa reglulega til að teygja úr sér. Sitjið með stuðning við allt bakið þegar horft er á sjónvarpið. Tryggið nauðsynlega hreyfingu, stundið reglulegar gönguferðir eða sund og gjarnan einhverja aðra líkamsrækt að auki. Almenn atriði Lifið reglubundnu og hófsömu lífi með nægum svefni til að forð- ast streitu, kvíða, áhyggjur af eigin hag o. s. frv. Dragið sem mest úr notkun áfengis, tóbaks og annarra vímu- efna, þar með talið róandi lyfja og svefnlyfja, ef mögulegt er. Tryggið hreint, reyklaust og hlýtt loft heima og á vinnustað, haf- ið mátulegt rakastig og dragið úr hávaða. G. E. HEILBRIGÐISMÁL 1/1989 9

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.