Heilbrigðismál - 01.03.1989, Síða 11
JSFÉLAGIÐ / Ljósmyndarinn (Jóhannes Long)
Krabbameinssamtökin 40 ára
Fyrsta félagið var stofnað 8. mars 1949
Nú eru 40 ár liðin síðan Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur var stofn-
að, en það var fyrsta krabbameins-
félagið hér á landi. Fundur „til
undirbúnings stofnunar félags er
hefði baráttu gegn krabbameini að
markmiði" var haldinn 1. febrúar
1949. Par sagði einn fundarmanna
að læknar þyrftu að „hafa sam-
vinnu um þessi mál og fá aðstoð
allra hugsandi manna í þessari bar-
áttu við vonleysi, bölsýni og upp-
gjöf". Segja má að mikill árangur
hafi náðst. Nú er ótti við krabba-
mein minni en áður og hlutfalls-
lega fleiri læknast af sjúkdómnum.
Sjötti hver karl sem fékk krabba-
mein fyrir þrjátíu árum lifði í fimm
ár eða lengur og taldist því lækn-
aður, en nú á þetta við um þriðja
hvern karl. Áður læknaðist fjórða
hver kona, nú önnur hver.
Fyrsta íslenska krabbameinsfé-
lagið var stofnað 8. mars 1949 en
næstu árin voru stofnuð fleiri félög
og landssamtök þeirra, Krabba-
meinsfélag Islands, voru stofnuð
árið 1951. Nú eru aðildarfélög þess
orðin 29, þar af fimm sérstök
stuðningsfélög krabbameinssjúkl-
inga.
Krabbameinssamtökin hafa hasl-
að sér völl á sviði forvarna, við
fræðslu, rannsóknir, leit og stuðn-
ing við sjúklinga. Krabbameins-
lækningar eru hins vegar alfarið á
hendi heilbrigðisþjónustu hins op-
inbera.
Á vegum elsta félagsins, Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur, hefur
verið gert mikið átak í tóbaksvörn-
um í grunnskólum síðasta áratug-
inn með þeim árangri að dregið
hefur verulega úr reykingum nem-
enda. Einnig hefur félagið gefið út
fjölda fræðslurita um krabbamein
og krabbameinsvarnir. Þá rekur fé-
lagið öflugt happdrætti sem er ein
af helstu tekjulindum krabba-
meinssamtakanna.
- Ír-
Frettir frá
Krabbameins-
félaginu
Skipað í Heiðursráð. Nú hef-
ur stjórn Krabbameinsfélags ís-
lands kosið fjóra í Heiðursráð
Krabbameinsfélagsins, en það er
æðsta viðurkenning sem félagið
Heiðursráð Krabbameinsfélags-
ins. Talið frá vinstri: Hjörtur
Hjartarson, Gunnlaugur Snæ-
dal, Vigdís Finnbogadóttir og
Ólafur Bjarnason.
veitir. í ráðinu eru „heiðursfé-
lagar sem til þess eru valdir fyrir
frábært starf í þágu félagsins",
eins og segir í reglum um ráðið.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, og verndari félagsins síð-
an 1986, var kjörin í ráðið fyrst
allra, á 35 ára afmæli félagsins
27. júní 1986. Hjörtur Hjartarson,
forstjóri, stjórnarmaður félags-
ins 1952-1987, var kjörinn í ráðið
á aðalfundi 30. apríl 1987. Ólafur
Bjarnason, prófessor, formaður
félagsins 1973-1979, og Gunn-
laugur Snædal, prófessor, for-
maður félagsins 1979-1988, voru
kjörnir í ráðið á stjórnarfundi 7.
október 1988. Þessir fjórir heið-
ursfélagar komu saman nýlega
og var meðfylgjandi mynd þá
tekin.
Stéttarfélög taka þátt í kostn-
aði við krabbameinsleit. Nú
hefur Krabbameinsfélagið samið
við Starfsmannafélagið Sókn og
Verkakvennafélagið Framsókn
um að félögin taki þátt í kostn-
aði við krabbameinsleit meðal
félagskvenna, og fleiri félög hafa
óskað eftir hliðstæðum samn-
ingum. Stéttarfélögin greiða
þann kostnaðarhlut sem konur
þurfa að öðru jöfnu að greiða
sjálfar þegar þær fara í skoðun í
Leitarstöð Krabbameinsfélags-
ins, en það gjald er nú 550 krón-
ur. Gegn framvísun félagsskír-
teina fellur þessi kostnaður á
stéttarfélögin.
Metaðsókn í Leitarstöðina. Á
síðasta ári fóru 26750 konur í
skoðun vegna leitar að krabba-
meini í leghálsi og brjóstum, þar
af um helmingur í Leitarstöð
Krabbameinsfélagsins við Skóg-
arhlíð í Reykjavík. Þetta er mesti
fjöldi sem mætt hefur í skoðun á
einu ári síðan þessi starfsemi
hófst fyrir aldarfjórðungi. Síð-
ustu þrjú árin komu 78%
kvenna á aldrinum frá 25 til 69
ára í skoðun, en sambærileg tala
árin 1979-81 var 54%.
-ir-
HEILBRIGÐISMÁL 1/1989 11