Heilbrigðismál - 01.03.1989, Page 12

Heilbrigðismál - 01.03.1989, Page 12
HEILBRIGÐISMÁL / Ljósmyndarinn (Jóhannes Long) Fæðuóþol Margir hafa ofnæmi eða óþol fyrir efnum í fæðu Grein eftir Davíð Gíslason Fyrrum var maturinn fábrotinn á nútíma mælikvarða og geymsluað- ferðir einhæfar. Það sem ekki var borðað nýtt var saltað, súrsað eða þurrkað. Vandinn þá var að fá næga orku og næg bætiefni úr fæðu en ekki að gera hana sem orkusnauðasta eins og nú er reynt. Aukefni, í okkar skilningi, voru þá óþekkt í fæðu. Öflun og neysla fæðu var einnig með allt öðru sniði en nú. Víða voru matföng keypt til heimilisins tvisvar á ári, vor og haust. Innflutt matvæli, svo sem mjölvara og sykur, voru keypt í sekkjum. Matmálstímar voru í föstum skorðum og matar yfirleitt ekki neytt þess á milli. Á þessu hefur orðið mikil breyt- ing. Geymsluaðferðir hafa gjör- breyst, og frysting og kæling orðið æ ríkari þáttur í geymslu matvæla. Nær allur matur er keyptur í litlum neytendaumbúðum. Oft er rot- varnarefnum bætt í fæðu til að gera hana endingarbetri. Auk þess er bætt í fæðuna bragðefnum og ýmiss konar öðrum efnum til að gera hana samkeppnishæfari í neyslusamfélagi okkar. Ofnæmi fyrir ýmsum undir- stöðutegundum matvæla hefur verið vel þekkt allt frá því að svissneski læknirinn von Pirquet setti fram hugtakið ofnæmi (all- ergi) árið 1906. Hins vegar beindist athyglin ekki verulega að aukefn- um í matvælum og hugsanlegum ofnæmiseinkennum af þeim fyrr en árið 1948, en þá lýsti Lockey fjórum sjúklingum með ofsakláða og þrem með astma en þeim versnaði öllum við neyslu litarefna og rotvarnarefna í mat. Fæðuofnæmi, og raunar einnig ofnæmi fyrir frjókornum, húsdýr- um og maurum, er svokallað bráðaofnæmi. Mótefnið sem þessu ofnæmi veldur hafði í frum- bernsku mannkynsins það hlut- verk að verja fólk fyrir ýmiss konar sníkjudýrum. Það hefur nú að mestu glatað jákvæðri þýðingu sinni, að minnsta kosti í okkar heimshluta, en við sitjum uppi með neikvæð áhrif þess, ofnæmið. Margir kannast við einkennin sem þessu fylgir: Kláði og útbrot í húð (ofsakláði) eða afmyndandi bjúgur, t.d. í augnlokum eða vör- um (ofsabjúgur), hnerrar, nef- rennsli, kláði og bjúgur í augum, astmi, innantökur í kviðarholi eða jafnvel bráðalost. Fæðuofnæmi er algengast hjá ungum börnum. Oftast valda of- næminu þær fæðutegundir sem al- gengastar eru í fæði barnsins, eink- um kúamjólk og egg. Einnig er al- gengt ofnæmi fyrir fiski, skelfiski, mjölvöru, ávöxtum, grænmeti (einkum grænum baunum), hnet- um og kakói. Þegar líkaminn myndar mótefni fyrir einhverri fæðu (t.d. mjólk, fisk eða eggjum) er um raunveru- legt ofnæmi að ræða. Þau sjúk- dómseinkenni sem aukefni í mat- vælum valda eru alveg eins og of- næmi, en ekki hefur tekist að sýna fram á nein mótefni fyrir þeim. Or- sakir einkennanna eru óþekktar. Það er því talað um gerviofnæmi eða óþol fyrir þessum efnum. Stundum er fólk með meðfædd- an eða áunninn skort á efnahvöt- um sem nauðsynlegir eru til þess að nýta ákveðna fæðu. Dæmi um þetta er skortur á laktasa, sem nauðsynlegur er til þess að geta nýtt sér mjólk. Skortur á honum veldur slæmum meltingartruflun- um eftir mjólkurneyslu. Skortur á laktasa er mjög algengur í þriðja heiminum og á Grænlandi. Sjúk- dómar í brisi og gallvegum geta einnig valdið einkennum sem líkj- ast ofnæmi eða óþoli fyrir mat. í sumum fæðutegundum er mik- ið af histamíni og getur það valdið ofnæmislíkum einkennum hjá við- kvæmu fólki. Dæmi um það eru sumir ostar, spínat, skinka og nið- ursoðinn fiskur. Annar matur eins og skelfiskur og vín hefur bein áhrif á svonefndar mastfrumur og losar úr þeim histamín án þess að mótefni komi þar við sögu. Ofnæmi er greint með fernu móti: í fyrsta lagi er nákvæm sjúkrasaga ætíð mikilvægasti þátt- urinn við ofnæmisgreiningu. í öðru lagi eru gerð húðpróf, oftast með svonefndri pikk-aðferð sem er tiltölulega einföld og ódýr rann- sókn og með henni er hægt að prófa fjölda efna. Hins vegar er ekki ætíð hægt að treysta henni fullkomlega. f þriðja lagi er hægt að mæla mótefni í blóðinu fyrir einstökum fæðuefnum og er það öruggari aðferð en pikk-prófið en mjög dýr. Oft þarf að bíða vikum saman eftir niðurstöðum. Þessi rannsókn kallast RAST próf. í fjórða lagi er hægt að gera þolpróf þar sem sjúklingnum er beinlínis gefið að borða það sem hann telur sig ekki þola. Þessi rannsókn gerir ekki greinarmun á raunverulegu ofnæmi og óþoli. Hún er meðal annars notuð við rannsóknir á óþoli fyrir aukefnum í matvælum. 12 HEILBRIGÐISMAL 1/1989

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.