Heilbrigðismál - 01.03.1989, Síða 13

Heilbrigðismál - 01.03.1989, Síða 13
Eins og áður var minnst á eru einkenni óþols af aukefnum svip- uð raunverulegu ofnæmi. Óþol hefur þó viss sérkenni sem stund- um hjálpar til við að greina það eða að fá grun um það. Sameigin- leg einkenni óþols og ofnæmis eru astmi, slímhúðarbólga í nefi, ofsa- kláði eða ofsabjúgur og einkenni frá meltingarvegi. Almenn bjúg- söfnun, þreyta, slen, uppþemba og þrálátur höfuðverkur bendir frekar til óþols en ofnæmis. Auð- vitað verður að hafa í huga að þessi einkenni, hvert fyrir sig eða flest saman, eru algeng og geta verið af ýmsum öðrum gjörólíkum orsökum. Sjúklingar með ofnæmi lýsa oft ótrúlegum sveiflum í þyngd, allt að 4 kg á einum sólar- hring. Jafnframt finna þeir fyrir al- mennum bjúg og þrota, einkum kringum augu og á höndum. Fing- ur eru stirðir og jafnvel aumir án þess að nokkrar liðskemmdir korni fram. Mígrenhöfuðverkur er lík- lega nokkuð algengur meðal þessa sjúklingahóps, en þess ber að geta að þessi höfuðverkur er talinn geta brotist út við neyslu fæðu sem er rík af tyramíni og skyldum efnum, t.d. osta, súkkulaðis og léttra vína. Aspirín eða magnýl hefur lengi verið mikið notað verkjalyf. Óþol fyrir því er býsna algengt og ein- kennin alveg hin sömu og af auk- efnum. Um helmingur þeirra sem hafa aspirínóþol hafa einnig auk- efnaóþol. Orsakir aspirínóþols eru ekki að fullu kunnar en talið víst að þær sé að finna í áhrifum aspir- íns á svokölluð prostaglandín. Grunur um að rotvarnarefni geti verið orsök óþols verður æ sterk- ari. Fyrst voru það bensósýra og bensósýrusölt, kalíum og natríum- Einkenni ópols og ofnæmis * Astmi * Slímhúðarbólga í nefi * Ofsakláði * Einkenni frá meltingarvegi * Uppþemba * Proti kringum augu * Þroti á höndum * Bjúgsöfnun * Þreyta eða slen * Prálátur höfuðverkur * Sveiflur í þyngd Hafa verður í huga að þessi einkenni geta verið af öðrum orsökum. bensóat. Bensósýrusambönd eru mikið notuð í matvælaiðnaði. Pau er að finna í kökum, saltstöngum, aldinmauki og sultum, niðursoðn- um ávöxtum og ferskfrystum ávöxtum, aldinsafa, söltum og reyktum fiski, niðurlögðum fiski og skelfiski. Sorbinsýra og sölt hennar, kalí- um- og natríum-sorbat, eru einnig sett í samband við óþol. Sorböt eru í aldinmauki og frystum ávöxtum, niðursoðnum ávöxtum, súrsuðum og niðursoðnum kjötvörum, niður- lögðum fiskafurðum, ostum og smjörlíki. Brennisteinssambönd (m.a. súlf- ít) hafa verið völd að nokkrum til- fellum af bráðalosti, einkum í Bandaríkjunum. Enn er mikið af brennisteinssamböndum í léttum vínum. Pau eru einnig í sykri og sírópi, kartöfluflögum, þurrkuðum matjurtum og ferskum og frystum matjurtum, ferskum, frystum og þurrkuðum ávöxtum. Oft hefur fólk óþol fyrir víni, einkum rauð- víni. Að vísu eru yfir eitt þúsund mismunandi efnasambönd í vínum og mörg þeirra geta hugsanlega verið skaðleg heilsu rnanna. Urn helmingur þeirra sem hafa veruleg einkenni um óþol af vínum eru þó með jákvæð þolpróf fyrir súlfítum. Óþol af völdum nítrata hefur Iít- ið verið kannað, en saltkjöt og hangikjöt gefur nokkuð oft of- næmiseinkenni. Nítröt og nitrít koma einkurn fyrir í reyktu og sölt- uðu kjöti og unnum kjötvörum, niðurlögðum fiski og osturn. Önnur efni sem nefnt hefur ver- ið að gætu valdið óþoli eru rot- varnarefnin propíonsýra og sölt hennar, þrávarnarefnin bútýlhýdr- oxýtúlen og bragðefnið mónóna- tríumglútamat, sem hefur valdið heiftarlegum astmaköstum, en er annars aðallega sett f samband við höfuðverk sem kemur eftir máltíðir á kínverskum veitingahúsum þar sem þetta efni mun vera mikið not- að til matseldar. Lítið er vitað um tíðni aukefnaó- þols. Par við bætist að einkennin eru háð skömmtum. Litlir skammt- ar eru því líklegir til að gefa lítil eða engin óþægindi, nema þá hjá þeim sem eru allra viðkvæmastir. Stórir skammtar gefa ef til vill mikil ein- kenni hjá þeim sem eru mjög við- kvæmir, en lítil eða engin hjá þeim sem þola mikið. Stundum eru þeir sjúklingar sem grunur leikur á að hafi auk- efnaóþol látnir hafa fæðulista með svokölluðu aukefnasnauðu fæði og beðnir um að fara nákvæmlega eft- ir þessu fæði í tvær vikur. Þeir sem eru með óþol eiga að vera betri af einkennum sínum meðan þeir eru á fæðinu, en fá einkennin fljótlega eftir að þeir byrja á venjulegu fæði aftur. Einnig er hægt að gera svokallað aukefnaþolpróf. Þá fær sjúklingur- inn hylki með ákveðnum aukefn- um og hann skráir öll hugsanleg einkenni um óþol í sólarhring á eftir. Hægt er að gera þolpróf fyrir natríumbensóati, natríumnítrati, natríumpropíonati, natríumsúlfíti, sorbinsýru og blandhylkjum með tíu litarefnum. Við þetta er svo HEILBRIGÐISMÁL 1/1989 13

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.