Heilbrigðismál - 01.03.1993, Síða 12

Heilbrigðismál - 01.03.1993, Síða 12
Tómas Jónasson takast á við lífið. Hún á að tryggja mönnum sanngjarna hlutdeild í lífsgæðum. Gæti menn fyllstu sanngirni sjá þeir af skynsemi sinni að þeir verða að tryggja sig sameig- inlega fyrir áföllum í lífinu. Þeir vita ekki hvernig þeim mun vegna, hvort þeir verða sjálfir fatlaðir eða hjartveikir, stálhraustir eða sárlasn- ir þegar fram líða stundir. Ef þegnarnir ræddu heilbrigðis- mál á lýðræðislegan hátt er ég sannfærður um að þeir kæmust að þeirri niðurstöðu að samfélaginu beri að veita öllum jafnan aðgang að eins góðri heilbrigðisþjónustu og fært er á hverjum tíma. Það er réttlætismál að fjármagna þá heil- brigðisþjónustu gegnum skattkerf- ið, þótt skynsamlegt sé að taka ein- hverja þóknun fyrir læknishjálp eins og tíðkast hefur. En allar álög- ur fyrir brýna heilbrigðisþjónustu sem íþyngja veiku fólki eru óverj- andi. Ég hef haldið því fram að hlut- verk heilbrigðisþjónustu sé að við- halda, endurheimta eða endurnýja eðlilega lífsstarfsemi manna. Sé slík starfsemi skert fara einstaklingar á mis við lífsgæði og lífstækifæri sem fólk á alla jafna kost á. Ætla má að í sanngjarnri þjóðarsátt kysu menn sér heilbrigðiskerfi sem tryggði öll- um réttláta hlutdeild í lífsgæðum og lífskostum á hverju aldursskeiði. Meginverkefnið er heilsuvernd, sem fyrirbyggir slys og sjúkdóma, án þess að það sé á kostnað þjón- ustu við einstaklinga sem þarfnast sjúkraþjónustu og endurhæfingar. Það er hins vegar ekki réttlætis- krafa að samfélagið sinni ölium heilsuþörfum, þótt efnað samfélag geti kosið að gera það af öðrum ástæðum. Ég ætla ekki að svara því hvernig á að greina á milli þjónustu sem er félagslega skylt að veita og þess sem einstaklingar ættu að greiða fyrir. Þeirri spurningu má varpa fram til „opinnar umræðu". Vilhjcílmur Árnason lauk doktors- prófi í heimspeki frií Purdue háskóla í Bandaríkjunum 1982. Hann er dósent í heimspeki við Háskóla íslands og rit- stjóri Skírnis. Vilhjálmur hefur nýlega skrifað greinar um sama efni ( Viku- blaðið og vinnur nú að bók um siðfræði heilbrigðispjónustu. Lakkrís - getur hækkað blóðþrýsting Lakkrís er unninn úr lakkrís- rót (Radix liquiritia), en það er rót plöntu sem nefnist Glycyrr- hiza glabra og vex í Evrópu og víðar. Fyrra orðið þýðir eigin- lega sætrót. Ræturnar eru gular á lit og mjög sætar í munni, ef þær eru tuggðar. Ýmiss konar úrhlut (extrökt) eru búin til úr lakkrísrót og segja má að allur lakkrís sem notaður er í matvæli, lyf eða til enn annars sé fenginn úr þess- um úrhlutum. í slíkum úrhlut- um er magn glýkyrrísínsýru mjög breytilegt (oft á bilinu 5- 40%). í lakkríssælgæti er magn sýrunnar oftast minna en 1% og oft á bilinu 0,2-0,3%. Lakkrís er mikið notaður sem litarefni og sætuefni í matvæli, ekki síst í margs konar sælgæti og í ýmis lyf, einkum í mixtúr- ur, sérstaklega áður fyrr. Var það gert til þess að breiða yfir vont bragð af lyfjum, sem ekki síst voru ætluð börnum. Þess má einnig geta að lakkrís er not- aður í maltöl og líklega í ýmsar tegundir bjórs sem eru dökkar eða svartar á lit. Lakkrísextrökt hafa verið not- uð til lækninga í árþúsundir, einkum til þess að draga úr óþægindum í maga og bæta meltinguna. Þessi extrökt hafa ótvírætt vissa bólgueyðandi verkun sem kemur að gagni við þrota í magaslímhúð. Fyrst árið 1947 varð ljóst að lakkrísextrökt geta einnig haft áhrif á vökva- búskap líkamans. Sú verkun er bundin við nýrun og líkist verk- un stera. Þetta getur valdið bjúgsöfnun og hækkuðum blóð- þrýstingi. Allar verkanir lakkrísextrakta í líkamanum (nema viss bragð- áhrif) virðist mega rekja til glýkyrrísínsýru, sem er um það bil fimmtíu sinnum sætari en strásykur. Svo virðist sem neysla Iakkr- íss stöku sinnum, jafnvel í nokk- uð miklu magni, sé tiltölulega saklaust fyrirbæri. Oðru máli kann að gegna um langvarandi neyslu lakkríss og sérstaklega með tilliti til þess að sumir eru mun næmari fyrir verkun ghjkýr- rfstnsýru en aðrir. Þar sem ein aðalorsök hækk- aðs blóðþrýsings á Vesturlönd- um er mikil tekja salts (natríum- klóríðs) er augljóst að neysla lakkríss getur stuðlað að blóð- þrýsingshækkun með því að safna enn meira natríum og vatni í líkamanum. Þessu til stuðnings er einnig að mörg dæmi þekkjast þar sem tekja lakkríss hefur hamlað verkun þvagræsilyfja við meðferð á hækkuðum blóðþrýstingi. Slík- um sjúkdómstilfellum hefur verið lýst hér á landi. Er nauð- synlegt bæði fyrir lækna og sjúklinga að gera sér þetta ljóst. Svo virðist sem dagleg neysla lakkríssælgætis ætti ekki að vera umfram 10-50 grömm. Hér verður þess þó að minnast, sem áður er nefnt, að sumir kunna að vera miklu næmari en aðrir fyrir verkun glýkýrrísínsýru. Stefna verður að því að minnka magn glýkýrrísínsýru í sælgæti svo sem auöið er. Þetta er útdráttur úr grein eftir Þorkel Jóhannesson, dr. med., próf- essor við Læknadeild Háskóla Is- lands og forstöðumann Rannsókna- stofu í lyfjafræði. Greinin birtist ( Fréttabréfi Hollustuverndar ríkisins (mars 1993). Þar er heimildaskrá. 12 HEILBRIGÐISMÁL 1/1993

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.