Heilbrigðismál - 01.03.1993, Blaðsíða 18

Heilbrigðismál - 01.03.1993, Blaðsíða 18
Jóhannes Long (Ljósmyndarinn í Mjódd) Nákvæmar rannsóknir voru framtíðin og halda áfram að vera það - segir Bjami Konráðsson læknir og sérfræðingur í lækningarannsóknum sem hefur tekið blóð úr meira en hundrað þúsund manns Bjarni Konráðsson læknir varð 77 ára í desember og vann fram að síðustu áramótum á rannsókna- stofu sinni við Þingholtsstræti í Reykjavík. Við fengum að líta inn hjá honum og þar kennir svo sann- arlega margra grasa. Rannsókna- stofan er búin mörgum nýtískuleg- um tækjum en þar eru einnig eldri tæki sem sýna vel þá þróun sem orðið hefur undanfarna áratugi. Bjarni varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík í júní 1935 og minnist margra kennara þaðan svo sem Guðmundar Bárðarsonar, sem kenndi náttúrufræði, og Jóns Ófeigssonar sem kenndi þýsku og „tók okkur upp þrisvar í hverjum tíma. Við búum að því alla ævi að hafa haft góða kennara," segir Bjarni. Honum finnst undirstöðu- menntunin vera orðin lélegri en áð- ur og „allt of margt fólk stundar nú langskólanám." Konráð R. Konráðsson, faðir Bjarna, var læknir. Ætli hann hafi vakið áhuga Bjarna á læknisfræði? „Nei, nei. Ég ætlaði alls ekki að læra læknisfræði í raun og veru," sagði Bjarni. „Ég ætlaði að læra náttúrufræði, en það var ekki hægt nema fara til útlanda." Það segist Bjarni ekki hafa getað vegna þess að faðir hans var þá látinn og móð- ir hans orðin ein. „En læknisfræðin er jú náttúrufræði," segir Bjarni og kímir við. En hvernig kom það til að Bjarni fékk áhuga á rannsóknum? „Þegar ég var í miðhlutanum í læknadeild- inni fór ég á námskeið á Rann- sóknastofu Háskólans og fékk oft að vinna með prófessor Níelsi Dungal, meðal annars við krufn- ingar. Mér þótti gaman að fást við rannsóknir og sjá hvernig þær voru gerðar. Þá gerði ég mér grein fyrir því að allar sjúkdómsgreiningar byggjast á rannsóknum, það var þetta sem skipti máli. í staðinn fyrir venjulegar klínískar skoðanir voru komnar nákvæmar rannsóknir. Það var framtíðin og heldur áfram að vera það." „Hitt er svo annað mál," sagði Bjarni, „að nú er alltof lítið gert af því að skoða fólk, klíníkin er orðin núll og nix. Það sem skiptir máli í Bjarni hefur fylgst vel með þróun rannsóknatækja en gömlu aðferð- irnar koma einnig að góðum not- um. Hér heldur hann á sogröri (pípettu) sem er notað til að flytja vökva á milli glasa. Lýsi reyndist vel við sárameðferð Guðmundur Thoroddsen prófessor hafði sagt lækna- nemum að til greina kæmi að nota lýsi til að hindra að umbúðir festust við sár og að smit kæmi í vefinn. Taldi hann lýsi skapa sérstök skil- yrði fyrir vöxt og viðgang vefja í sárinu, meðal annars vegna vítamínanna. Bjarni Konráðsson notaði þessa að- ferð einu sinni við erfiðar aðstæður á dönskum sjó- manni sem var með opið fót- brot, og setti gifs utan um allt saman. Þegar Bjarni tók utan af sárinu leit það mjög vel út. „Ég hef sjaldan séð eins hreint og fallegt sár," segir hann. 18 HEILBRIGÐISMÁL 1/1993

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.