Heilbrigðismál - 01.03.1993, Síða 19

Heilbrigðismál - 01.03.1993, Síða 19
sambandi við klíníkina er að nota öll skilningarvitin sem maður hefur til þess að skoða sjúklinginn við sjúkrabeð." „Fyrst og fremst þarf að nota sjónina, skoða framan í sjúklinginn og sjá hvernig litarhátturinn er, hvort hann er óeðlilega rjóður, blár eða gulur. Svo þarf að athuga allt sem kemur frá sjúklingnum og þar kemur smásjáin að notum. Næst er að þreifa á sjúklingnum og banka hann, þannig má til dæmis finna stærð á hjarta, lungum og lifur. Með því að hlusta hjartað er hægt að heyra hvort það slær eðlilega eða ekki, og síðan er sjálfsagt að taka púlsinn og mæla blóðþrýsting. Læknum hættir stundum til að leggja allt of lítið upp úr þessum at- riðum og þeim hættir til að treysta í blindni á rannsóknir." „Eg tel að rannsóknir þurfi að vera í nánu sambandi við klíník- ina," segir Bjarni, „og læknum beri að velja úr þær rannsóknir sem þeir álíta skynsamlegt að gera, en ekki mikið fram yfir það, vegna kostn- aðar. Það þarf að meta saman ein- kenni sjúklingsins og þær rann- sóknir sem beðið er um. Ef stefnu- mörkun er meira í þessa átt mætti spara mikið." Annað dæmi um sparnað nefnir hann: „Það er ekki alltaf mark tak- andi á veikindavottorðum og alls konar öðrum vottorðum og mér finnst læknar ekki nógu harðir við sjúklinga í þeim efnum. Og Iyfja- austurinn er stundum full mikill." En hann er ekki alveg sáttur við hvað ráðherrar og embættismenn eru komnir mikið ofan í málin. „Hvernig geta leikmenn, sem ekki kunna neitt í læknisfræði, leyft sér að skipa heilbrigðisstéttum fyrir? Þeir koma stundum í veg fyrir eðli- legar framfarir, m.a. með því að gefa ekki leyfi til nauðsynlegra tækjakaupa, en ný og fullkomin tæki geta oft sparað mikla vinnu og gefið nákvæmari niðurstöður en Halldór Pétursson teiknari sýnir á þessari mynd fjölþætt viðfangs- efni Bjarna. Hann er mikill áhuga- rnaður um golf og brids og rýnir í blóð eins og Sherlock Holmes. Mörgum kennt Árið 1949 byrjaði Bjarni Konráðsson sem aukakenn- ari í líffærafræði við lækna- deild Háskóla Islands með kennsluskyldu við tann- læknadeildina og varð dós- ent árið 1960. Frá 1977 til 1989 kenndi hann nemend- um í læknisfræði, tannlækn- ingum og sjúkraþjálfun líf- færafræði. Bjarni hefur verið próf- dómari í líffærafræði og Iíf- eðlisfræði við Húsmæðra- kennaraskóla íslands og var kennari í sömu fræðum við sama skóla 1970-76. Hann endursamdi kennslubækur í þeim greinum. Bjarni hefur fylgst vel með framförum í fræðunum, les- ið mikið og farið á ráðstefn- ur erlendis. HEILBRIGÐISMÁL 1/1993 19

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.