Heilbrigðismál - 01.03.1993, Page 27
Tómas Jónasson
✓
Aðalfundur Krabbameinsfélags Islands:
Krabbameinsfélagið og Rannsóknastofa
Háskólans í meinafræði taka
upp samstarf um varðveislu vefjasýna
Krabbameinsfélag íslands hefur
boðist til að aðstoða Rannsókna-
stofu Háskólans í meinafræði við
varðveislu vefjasýna sem safnað
hefur verið í rúma sex áratugi.
Þetta safn er einstakt og geymir
upplýsingar um þrjár kynslóðir ís-
lendinga, en hefur verið á hrakhól-
um að því er húsnæði varðar.
Krabbameinsfélagið leggur til hús-
næði í hluta jarðhæðar Skógarhlíð-
ar 8. Þar verður búið vel um sýnin
og auðveldaður aðgangur að þeim
fyrir báðar stofnanirnar sem munu
nýta þau til vísindarannsókna og
sérstaklega til könnunar á uppruna
og erfðum krabbameins. Með nýrri
tækni er nú unnt að einangra erfða-
efni úr æxlissýnum sem geymd eru
í vaxkubbum, að því er virðist óháð
aldri sýnanna. Með þessu móti
eykst gildi þessa merka safns sem
sumir telja vera ómetanlega þjóðar-
gersemi. „Við bindum miklar vonir
við að rannsóknir á þessum sýnum
eigi í framtíðinni eftir að auðvelda
krabbameinsrannsóknir hér á
landi," sagði Jón Þorgeir Hall-
grímsson formaður Krabbameinsfé-
lags íslands þegar hann greindi frá
þessu samstarfi á aðalfundi félags-
ins sem haldinn var nýlega.
í upphafi aðalfundarins var
minnst tveggja manna sem létust í
vetur, Jóns Oddgeirs Jónssonar
fyrrverandi erindreka Krabba-
meinsfélagsins og Jóns Agnars Egg-
ertssonar formanns Krabbameins-
félags Borgarfjarðar.
í skýrslu formanns Krabbameins-
félags íslands kom fram að leitar-
starfið tekur til sín um helming af
útgjöldum félagsins, rannsóknir
um fjórðung en almennur rekstur,
fræðsla og þjónusta við sjúklinga
það sem eftir er. Hugmyndir eru
uppi um að auka ráðgjöf til sjúkl-
inga og aðstandenda þeirra.
Þetta árið gegnir Island for-
mennsku í Norræna krabbameins-
sambandinu og í september verður
ársþing sambandsins haldið hér á
Iandi. í tengslum við það verður
vísindaráðstefna um söfnun lífsýna
og upplýsinga og nýtingu þeirra.
Í skýrslu Inga R. Helgasonar
gjaldkera félagsins kom fram að
reksturinn á síðasta ári stóð í járn-
um en eignastaða félagsins er mjög
góð. Gætt hefur verið aðhalds í
rekstri enda hefur stjórn félagsins
ávallt tekið mið af því að fara verði
vel með þá fjármuni sem þjóðin
treystir félaginu fyrir til baráttunn-
ar gegn krabbameini. Stærstur hluti
af fé því sem safnað var í Þjóðar-
átaki gegn krabbameini 1990 hefur
farið til Rannsóknastofu í sam-
einda- og frumulíffræði og til að
kaupa íbúðir fyrir krabbameins-
sjúklinga utan af landi sem eru í
meðferð í Reykjavík.
Stjórn félagsins er skipuð fimm-
tán mönnum. Nú átti að kjósa um
sjö stjórnarmenn og voru þeir allir
endurkjörnir að öðru leyti en því
að Guðrún Jónsdóttir, varaformað-
ur Krabbameinsfélags Borgarfjarð-
ar, var kosin í stjórnina í stað Jóns
Agnars Eggertssonar. I fram-
kvæmdastjórn félagsins eru Jón
Þorgeir Hallgrímsson yfirlæknir,
formaður, Sigurður Björnsson yfir-
læknir, varaformaður, Ingi R.
Helgason stjórnarformaður VIS hf.,
gjaldkeri, Sigríður Lister hjúkrunar-
fræðingur, ritari og Halla Aðal-
steinsdóttir kennari, meðstjórnandi.
Fyrir einu ári var Guðrún
Agnarsdóttir læknir ráðin í hluta-
starf sem forstjóri Krabbameinsfé-
lags Islands. Fram kom á aðalfund-
inum að reynslan af starfi hennar
hefur verið góð og verður hún
áfram forstjóri félagsins.
Á aðalfundinum var skorað á
heilbrigðisyfirvöld að endurskoða
núverandi fyrirkomulag á greiðsl-
um krabbameinssjúklinga fyrir
læknisþjónustu og rannsóknir með
það fyrir augum að lækka kostnað
þeirra. Einnig var fagnað þróun í
þá átt að hreinsa loftið af tóbaks-
reyk og þess vænst að Alþingi af-
greiddi frumvarp til nýrra tóbaks-
varnalaga þegar á næsta hausti.
Loks beindi aðalfundurinn þeim
tilmælum til Háskóla íslands að
komið verði á fót kennslustöðu í
krabbameinslækningum við Há-
skólann. -jr.
Svipmynd frá aðalfundinum.
HEILBRIGÐISMÁL 1/1993 27