Heilbrigðismál - 01.06.1993, Page 7

Heilbrigðismál - 01.06.1993, Page 7
Þór Gíslason (Ljósmvndarinn í Mjódd) hreyfing og áreynsla í vinnunni býður upp á. En þá hina sömu er sjálfsagt að hvetja til að ganga í vinnuna eða hjóla, séu þeir svo lán- samir að eiga þess kost. Því miður gegnir stærsti mengunarvaldur nú- tímans, bíllinn, það stóru hlutverki í lífi margra sem skjólflík, skurðgoð og sjálfshafningartæki, að tilhugs- unin um að ganga smáspöl er þeim framandi. Því miður eimir enn eftir af þeirri gömlu kreddu, að hvíld og skerðing á hreyfingu og erfiði sé heilsusamleg fyrir gigtarskrokka og baksjúklinga, en miklu oftar er öðru nær. Flestir kvillar í hreyfifær- um og stoðkerfi, sem við læknar fá- umst við, stafa fyrst og fremst af hreyfingar- og áreynsluleysi og hóglífi ellegar rangri Iíkamsbeit- ingu. Við veltum því sjaldnast fyrir okkur, þegar seljendur gerviþarfa reyna að pranga inn á okkur sjálf- virkum bílskúrshurðaopnara eða viðlíka tækniundrum, að með slíkri fjárfestingu förum við á mis við Þegar vel tekst til getur vinnan verið okkur íþrótt og uppspretta starfsfullnægju. Að vera tekinn fullgildur í hóp góðra vinnufélaga styrkir sjálfstraust, rýfur einangrun og eflir öryggiskennd. heilsusamlega hreyfingu. Og mér hrýs hugur viö heilsufarshorfum þeirrar kynslóðar, sem elst upp í hvíldarstöðu framan við sjónvarps- tæki eða tölvuskjá í stað þess að stunda hollar íþróttir, heilsuhvetj- andi áflog, bófahasar eða rófna- stuld, sem bæði eykur líkamlegan þrótt, eflir viðbragðsflýti og örvar hugmyndaflug og sjálfsbjargarvið- leitni. Líkamleg og andleg áreynsla er nauðsynleg vexti og þroska og seinkar hrörnun. Skortur á henni Ieiðir smám saman til úrkynjunar. Þegar vel tekst til, getur vinnan verið okkur íprótt og uppspretta starfsfull- nægju. Við svölum metnaðarþrá með góðum afköstum og vel unnu verki. Þannig ávinnum við okkur virðingu sjálfra okkar og annarra, en sjálfsvirðingin er að mínu viti forsenda heilbrigði og hamingju, auk þess sem hún auðveldar okkur ákaflega mikið að taka farsælar ákvarðanir í lífinu. Flestum finnst okkur við vera að gera skyldu okkar með vinnunni og fyllumst því góðri samvisku að loknu vel unnu dagsverki, sérstak- lega ef kirkju og uppeldisstofnun- um valdhafa hefur tekist að berja þann hugsunarhátt inn í okkur. Vinnan getur líka verið gleðigjafi, einkum og sér í Iagi, ef við blönd- um geði við skemmtilega vinnufé- laga eða fáum svalað sköpunarþörf okkar á einhvern hátt. Sköpunar- gleðin er að rnínu mati ákaflega heilsusamleg tilfinning, en því mið- ur bjóða ekki öll störf upp á skap- andi verkefni, og h'æfileikar hvers og eins okkar eru líka mismunandi til að vinna verk okkar á vandfýs- inn eða skapandi hátt. Að vera tek- inn fullgildur í hóp góðra vinnufé- laga styrkir sjálfstraust, rýfur ein- angrun og eflir öryggiskennd. Sérstaklega er þetta mikilvægt unglingum, öryrkjum og gömlu fólki. Góðu heilli hefur atvinnu- þátttaka aldraðra verið mikil á Is- landi miðað við nágrannalöndin, en á atvinnuleysistímum verður þar breyting á og er það harla slæmt, því íslenskir karlmenn búa sig lítt undir iðjuleysi eða verkalok og hafa margir hverjir aldrei lært að nýta tómstundir sínar. Ekki má gleyma uppeldisáhrifum vinnunnar fyrir æsku landsins. ís- lensk börn og unglingar hafa búið við mikil forréttindi fram á síðustu ár að fá að eyða löngum sumarleyf- um sínum í vinnu til sjávar og sveita, sem eflt getur með þeim ábyrgðartilfinningu, metnað og gleði yfir því að vera orðin virkir þátttakendur í atvinnulífi þjóðar- innar. Þótt ekki megi gera allt of lít- ið úr þeirri vinnu og þeim vinnu- aga, sem börn og unglingar fá stundum að kynnast í skólum landsins, þá líta þau öðrum augum á sumarvinnuna, því þar eru þau oft og tíðum að ganga í störf full- orðinna eða vinna fullorðnum sam- hliða. Heiðarleg vinna getur stuðl- að að auknum lífsþroska, ef við höfum heilbrigða afstöðu til henn- ar. Þetta gildir einkum og sér í lagi um þá vinnu, sem felur í sér ein- hvers konar hlynningu eða ræktun. Hér undir falla m.a. landbúnaðar- HEILBRIGÐISMÁL 2/1993 7

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.