Heilbrigðismál - 01.06.1993, Side 11

Heilbrigðismál - 01.06.1993, Side 11
Tómas Jónasson þurfi landlæknir að fá annan bú- stað í grenndinni og hefur hann augastað á Reykjavík í því sam- bandi. Þessum frumlegu tillögum landlæknanna um spítala á íslandi var fálega tekið; sjúkrahús varð enn að bíða síns tíma í hartnær heila öld og Jón Sveinsson var alla sína landlæknistíð búsettur í Nesi. Raunar hafði hann einu sinni áður, árið 1787, sótt um leyfi að mega ásamt embættinu flytjast til Reykja- víkur en stjórnin synjaði þeirri beiðni. Bjarni Pálsson kenndi þrettán piltum læknisfræði en aðeins fjórir luku námi og störfuðu sem fjórð- ungslæknar á íslandi. Jón Sveins- son kenndi sex stúdentum og út- skrifaði tvo. Um aldamótin eða 40 árum eftir að landlæknisembættið var stofnað og fyrsti lærði læknir- inn settist hér að voru fimm læknar starfandi á landinu auk Jóns Sveinssonar. Hann hafði þá setið í Nesi í tvo áratugi og átti aðeins eft- ir að lifa og starfa í þrjú ár. Þessir læknar voru Hallgrímur Bachmann Fyrir rúmum tveimur öldum, 1791, lagði Jón Sveinsson landlæknir til við stiftsyfirvöld að komið yrði á fót spítala í Nesi við Seltjörn. Þeirri hugmynd var hafnað og það var ekki fyrr en 1866 sem fyrsti spítali landsins tók til starfa, í Reykjavík. í syðri hluta Vesturamtsins, Jón Einarsson, sem var nefndur hér í upphafi, sá um nyrðri hluta sama amts, Jón Pétursson var læknir fyrir norðan og sat í Viðvík; hann samdi „Lækninga-Bók fyrir almúga" sem kom út í Kaupmannahöfn röskum þrjátíu árum eftir dauða hans, auk- in og endurbætt af þeim Jóni Þor- steinssyni (Thorstensen) landlækni og Sveini Pálssyni sem einnig gegndi því embætti í eitt ár. Fjórði læknirinn um aldamót var Brynjólf- ur Pétursson í Múlasýslum og fimmti Sveinn Pálsson í Suðursýsl- urn og í Vestmannaeyjum. - Hálfri öld síðar hafði læknum landsins fjölgað um einn! Enginn teljandi bót fékkst á þess- ari læknafæð fyrr en Jón Hjaltalín og skoðanabræður hans fengu því til leiðar komið að Læknaskólinn var stofnaður en þá voru 96 ár liðin frá því Jón Sveinsson gerðist Iand- Iæknir. Af skrifum Jóns má nefna nokk- ur ritverk á latínu og fjölluðu sum þeirra um hálsbólgu og graftar- ígerðir í koki, önnur um skyrbjúg og kvilla í hársverði. Einnig þýddi hann á íslensku „Agrip af yfirsetu- kvennafræðum" eftir danskan Engin mynd er til af Jóni Sveins- syni, eins og gildir um Bjarna Pálsson forvera hans, en til fróð- leiks er hér sýnt hvernig Jón ritaði nafn sitt. lækni og úr ensku ritgerð um skyr- bjúg. Þá ritaði hann nokkrar grein- ar fyrir almenning. Ýmsar sögur gengu af Jóni og hafa sumar orðið langlífar. Kunn- ugir lýstu honum sem glöðum og góðum félaga er meira væri hneigður fyrir bækur en búsýslu, enda var hann einn þeirra sem stofnuðu fyrsta lestrarfélag lands- ins (fyrir Gullbringu-, Kjósar-, Ár- nes- og Rangárvallasýslur). Hann var talinn vel að sér í fræðum lækna og las mikið um þau efni en þótti nokkuð mistækur og ekki áhugamikill við lækningar. Kölluðu sumir hann Jón þoku. Sagt er að einhverju sinni á túnaslætti hafi hann farið suður að Görðum á Álftanesi til séra Markúsar Magn- ússonar og setið þar meira en viku í góðu yfirlæti því að prófastur var gestrisinn og óspar á mat og drykk. Guðríði konu landlæknis, sem var búforkur og ærinn skörungur, fór að lengja eftir bónda sínum og gerði út sendiboða suður að Görð- um og bað hann segja að taðan lægi flöt og allt væri í megnasta óstandi í Nesi. Jón sendi manninn sem snarast heim aftur með fáort bréf til frúarinnar og hófst það með þessu sálmversi: „Mitt hjarta! hvar til hryggist þú, / í harmi og trega velkist nú / fyrir valtan veraldar- auð." Ekki fylgir sögunni hversu lengi honum dvaldist í Görðum eft- ir þetta. Þórarinn Guðnason læknir er sér- fræðingur í skurðlækningum en hefur fengist við ritstörf hin siöari cír og meðal annars skrifað reglulega ( Morg- unblaðið. Fyrsti landlæknaþátturinn fjallaði um ]ón Hjaltalín (Heilbrigðismdl 1/ 1993 bls. 13-15). HEILBRIGÐISMÁL 2/1993 11 l

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.