Heilbrigðismál - 01.03.1994, Blaðsíða 5

Heilbrigðismál - 01.03.1994, Blaðsíða 5
Ljósmyndarinn Á þrettánda hundrað læknar í byrjun þessa árs voru 1243 læknar með almennt lækningaleyfi hér á landi, samkvæmt nýrri Læknaskrá Landlæknisembætt- isins. Á sama tíma áttu 104 læknakandídatar eftir að fá lækn- ingaleyfi (43 þeirra útskrifuðust á síðasta ári). Lang flestir læknar og kandídatar eru búsettir hér á landi, 882, en 229 eru í Svíþjóð, 106 í Bandaríkjunum, 28 í Noregi, 17 í Bretlandi en mun færri í öðrum löndum. Samkvæmt skrá Landlæknisemb- ættisins hafa flestir sérfræðiviður- kenningu í heimilislækningum (122), lyflækningum (103) og skurð- lækningum (77) en næst koma bamalækningar, svæfingalæknis- fræði og geðlækningar. Karlar eru enn í miklum meiri- hluta lækna og kandídata, þeir eru 1077 en konur 270. Þær hafa sótt mikið á síðustu ár og áratugi, en þess má geta að fyrsta konan út- skrifaðist frá læknadeild Háskóla íslands árið 1917, en það var Kristín Ólafsdóttir. Þegar litið er á aldurinn sést að flestir, eða 436, eru á fertugsaldri en 405 á fimmtugsaldri. Yfir áttrætt eru nítján læknar, þeir elstu eru Daníel Á. Daníelsson (var orðinn 91 árs um síðustu áramót), Stefán Guðnason (89 ára) og María Hall- grímsdóttir (88 ára). Nú hafa átta læknar sem orðnir eru 75 ára heimild til að reka lækn- ingastofu, þar af eru þrír 83 ára á þessu ári. Elstur þeirra er Ulfar Þórðarson. Margir nafnar í læknastétt Þegar Læknaskrá Landlæknis- embættisins er skoðuð kemur í ljós að margir læknar eiga nafna í stéttinni. Ef litið er fram hjá þeim tilvikum þar sem millinafn eða stafur er til aðgreiningar eru átj- án nöfn sem koma oftar en einu sinni fyrir í skránni, þar af eru þrjú nöfn sem koma fyrir oftar en tvisvar hvert. Einn læknir sem heitir Halldór Jónsson er fæddur 1950, annar 1951 og sá þriðji 1954. Tveir þeir fyrstnefndu eru með sérfræðivið- urkenningu í heimilislækningum en sá þriðji í bæklunarskurð- lækningum. Þrír sem heita Sigurður Bjöms- son (fæddir 1938, 1942 og 1960) hafa verið í Læknaskránni og í vor fékk sá fjórði (fæddur 1965) almennt lækningaleyfi. Einn þriggja lækna sem bera nafnið Snorri Ólafsson er fæddur 1910, annar 1932 (sérfræðingur í lyflækningum og lungnalækn- ingum) og sá þriðji 1953 (sérfræð- ingur í lyflækningum og melt- ingarlækningum). Það eykur að sjálfsögðu hættu á misskilningi ef aldursmunur er lítill, til dæmis eitt ár eins og á við Halldórana tvo sem áður eru nefndir. Sama máli gegnir um Hjördísi Harðardóttur, ein er fædd árið 1957 og önnur með sama nafni árið 1958. Brynjólfur Jónsson læknir er fæddur árið 1954 og nafni hans árið 1955 - og báðir hafa sérfræðiviðurkenn- ingu í bæklunarskurðlækning- um! Allir geta þeir sagt: „Ég heiti Sigurður Bjömsson og er lækn- ir." Sá sem er lengst til hægri er sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum og starfar á Borgarspítalanum, þá kemur sérfræðingur í lyflækningum og krabbameinslækningum sem starfar á Landakotsspítala og Landspítalanum, þá læknir sem hefur verið í framhaldsnámi í skurðlækningum í Svíþjóð, en var staddur hér á landi í sumar, og loks læknir sem starfar á heilsugæslustöðinni á Höfn í Hornafirði. Þeir höfðu aldrei hist allir í einu þegar þeir komu til myndatöku fyrir tímaritið Heilbrigðismál, en höfðu vitað hver af öðrum. Ekki gátu þeir neitað því að þeim hefði oft ver- ið ruglað saman og fengið póst sem ætlaður var öðrum með sama nafni, jafnvel launa- greiðslur! HEILBRIGÐISMÁL 1-2/1994 5

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.