Heilbrigðismál - 01.03.1994, Blaðsíða 17

Heilbrigðismál - 01.03.1994, Blaðsíða 17
Tómas Jór Reiðhjólahjálmar veita vöm gegn höfúðslysum bama Grein eftir Ólaf Ólafsson Undanfarin ár hafa verið lagðar fram skýrslur sem sýna að íslensk- um bömum er hættara við slysum en börnum í nálægum löndum. Nú virðist hafa dregið nokkuð úr barnaslysum en enn er tiltölulega hátt hlutfall alvarlegra höfuðáverka hjá bömum, eins og bent var á í grein sem byggði á gögnum frá Borgarspítalanum (Læknablaðið 1993; 79: 281-286). Þar kom fram að árin 1987-91 voru 297 börn, 14 ára og yngri, lögð inn á deildir Borgar- spítalans vegna höfuðáverka og 62 börn vom lögð inn á barnadeildir Landakotsspítala og Landsspítala á sama tímabili. Áhrif reiðhjólahjálma til að draga úr slysum hafa verið rannsökuð mikið erlendis. í einni rannsókn- inni (The New England Journal of Medicine, 25. maí 1989) var dregin sú ályktun að með notkun reið- hjólahjálma mætti draga úr hættu á alvarlegum höfuðmeiðslum um allt að 85%. Niðurstöður annarra rann- sókna hníga í sömu átt. Til skamms tíma var fátítt að börn og unglingar notuðu reið- hjólahjálma. A þessu hefur nú orð- ið mikil breyting vegna kynningar- starfs Umferðarráðs í samvinnu við olíufélögin og aðra seljendur hjálma. I könnun sem ráðið lét gera sumarið 1993 víða um land kom í ljós að fimmta hvert barn notaði hjálm, en það eru mörk sem stund- um hafa verið nefnd sem forsenda þess að skyldunotkun hjálma verði virt. Nú í sumar reyndist notkunin enn meiri. Allir eru þó sammála um að hjálmanotkun verður ekki almenn nema með lögbindingu. Ástralir lögleiddu notkun hjálma við hjólreiðar barna að tólf ára aldri árið 1991. í fimm ríkjum Banda- ríkjanna (New Jersey, Kalifornia, Massachusetts, New York og Pennsylvania) hefur skyldunotkun einnig verið samþykkt og alvarleg- um reiðhjólaslysum hefur fækk- að. Það er orðið löngu tímabært að íslendingar sláist í hóp þeirra sem vilja nýta sér ávinninginn af reið- hjólahjálmum og lögbinda notkun þeirra. I könnun sem Hagvangur gerði fyrir Bindindisfélag öku- manna árið 1990 var spurt um stuðning við setningu lagaákvæða um að börn á reiðhjólum skuli nota hjálma. Niðurstaðan var ótvíræð: Níu af hverjum tíu sem afstöðu tóku voru hlynntir því. Heyrst hafa þær mótbárur gegn Skyldunotkun reiðhjólahjálma er einfaldasta og áhrifaríkasta að- gerðin sem hægt er að grípa til í slysavörnum. skyldunotkun hjálma fyrir börn að erfitt sé að sekta börnin en að sjálf- sögðu verða foreldramir að bera ábyrgð á þeim að þessu leyti eins og á annan hátt. Landlæknisembættið hefur hvað eftir annað lagt eindregið til við al- þingismenn að ákvæði um hjálm- anotkun barna verði sett í lög og foreldrar gerðir ábyrgir fyrir að börnin noti þá. Þetta er ein einfald- asta og áhrifaríkasta aðgerðin sem hægt er að grípa til í slysavörnum, enda eru reiðhjólaslys oft mjög al- varleg og kosta þjóðfélagið mikið. Salóme Þorkelsdóttir og fleiri þingmenn hafa tvívegis lagt fram frumvarp sem fól í sér skyldunotk- un reiðhjólahjálma, en það náði ekki fram að ganga. Á síðasta vetri lögðu Lára Margrét Ragnarsdóttir og tíu aðrir þingmenn fram frum- varp á Alþingi um breytingu á um- ferðarlögum þar sem segir: „Börn 12 ára og yngri skulu bera viður- kenndan hlífðarhjálm á höfði við hjólreiðar." Við ítrekað brot átti lög- regla að geta tekið reiðhjól af barni og afhent það forráðamanni barns- ins. Frumvarpið var ekki afgreitt. Væntanlega verður þetta frumvarp flutt aftur í haust og er hér með lagt til að við fyrsta brot nægi áminning frá lögreglunni en við annað brot verði rætt við foreldra barnsins. Við þriðja brot verði beitt sektum. Fyrir sautján árum var notkun vélhjólahjálma lögbundin og nú dettur engum í hug að vera án þeirra. Fyrir þrettán árum var notk- un bílbelta lögbundin. Eftir að heimild fékkst til að beita sektará- kvæðum fækkaði alvarlegum slys- um um helming. Nú er komið að reiðhjólahjálmunum - og þó fyrr hefði verið. Ólafur Ólafsson var skipaður land- læknir árið 1972. Hann hefur beitt sér mikið fyrir slysavörnum. HEILBRIGÐISMÁL 1-2/1994 17

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.