Heilbrigðismál - 01.03.1994, Síða 12

Heilbrigðismál - 01.03.1994, Síða 12
Grundvallaratriði Flestum er eðlislægt að vilja eignast böm. Þegar haft er í huga að allt að tíunda hvert par á bameignaaldri á við ófrjósemi að stríða, um lengri eða skemmri tíma, verður ljóst að fyrir marga er þetta ekki sjálfsagt mál. Ekki þarf allt þetta fólk að fara í glasafrjóvgun en þessi mál snerta fleiri en margir ætla. Vandinn sem ætlað er að leysa með glasafrjóvgun er oft- ast sá að kynfrumur parsins ná ekki saman. Ástæðumar geta verið skemmdir eggjaleiðarar, vandamál tengd hormónastarf- semi konunnar, skertur hreyfan- leiki sæðisfruma eða aðrar or- sakir. í um þriðjungi tilfella er orsakanna að leita hjá konunni, í þriðjungi hjá karlmanninum og í þriðjungi tilfella hjá báðum aðilum. Meðferðin snýst því um að kynfrumurnar nái saman í tilraunaglasi um stundarsakir til að egg frjóvgist. Tvö til þrjú þeirra eru síðan flutt í leg kon- unnar. Til að unnt sé að ná eggjum úr konunni þarf hún að fara í fjögurra til sex vikna lyfjameð- ferð sem miðar að því að eggja- stokkar hennar þroski nokkur eggbú samtímis. Með þessu móti má auka líkumar á því að meðferðin beri árangur en í venjulegum tíðahring þroskast yfirleitt eitt eggbú í einu. Eggbúin em fundin með hjálp ómskoðunartækis. Stungið er á þeim og eggin soguð út í eggbúsvökvanum. Með því að skoða vökvann undir smásjá er hægt að finna eggin og þeim er síðan komið fyrir í ræktunar- vökva. Mikilvægt er að þeim sé búið umhverfi með réttu hita- stigi, sýrustigi, réttum jónastyrk og án allrar mengunar. Um það leyti sem eggheimta fer fram eru valdar heilbrigðar og sprækar sæðisfrumur til notk- unar í meðferðinni. Síðdegis á eggheimtudegin- um em egg og sæðisfrumur sett glasafrj ó vgunar saman. Að morgni næsta dags er athugað hversu mörg eggj- anna hafa frjóvgast og má þá greina erfðaefni eggsins og sæð- isfrumunnar í formi tveggja for- kjarna í egginu. Að jafnaði má búast við að helmingur eggj- anna frjóvgist. Á öðmm til þriðja degi em eitt til þrjú frjóvguð egg, sem nú kallast fósturvísar, flutt aftur til konunnar. Fósturvísamir eru valdir á gmndvelli þess hversu margar fmmuskiptingar hafa átt sér stað og hversu heillegar frumumar eru. Ekki þroskast öll frjóvguð egg í fósturvísa sem líklegir eru til að leiða til þung- unar. Við fósturfærslu eru fósturvísar oftast á því stigi að í þeim em fjórar til átta frum- ur. Eftir fósturfærslu tekur við lyfjameðferð sem miðar að því að halda slímhúð legsins mót- tækilegri fyrir fósturvísunum. J.G.H. /Þ.Ó. sæðisfrumurnar hafa ekki bolmagn til þess af sjálfsdáðum. Einn helsti kosturinn við þessa nýju aðferð er sá að þörf fyrir gjafa- sæði minnkar til muna. Hafa ber þó í huga að í sumum tilfellum fram- leiðir karlmaðurinn engar sæðis- frumur og þá er gjafasæði eina úr- ræðið. Þessi aðferð er fyrst og fremst notuð þar sem karlmaðurinn hefur verulega skert sæðispróf og einnig þar sem ekki hefur orðið frjóvgun eggja við fyrri meðferð. Þar sem einungis þarf eina sæðisfrumu fyrir hvert egg er ljóst að þeir sem á ann- að borð framleiða einhverjar sæðis- Eggin eru einungis um 0,1 milli- metri í þvermál og öll vinna með þau fer því fram undir smásjá. Þar er fylgst með frjóvgun eggjanna og frumuskiptingum. Hreinlæti er mikilvægt við alla þessa vinnu sem fer fram í sérstökum loft- hreinsiskáp. Það er Elín Ruth Reed líffræðingur sem situr við smásjána en starfsmenn við glasa- frjóvganir og sæðisrannsóknir á Landspítalanum eru tíu. 12 HEILBRIGÐISMÁL 1-2/1994

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.