Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 9

Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 9
Skammdegis- þunglyndi Þunglyndið kom inn í ættina þegar Reyni- staðarbræður urðu úti á Kili. . . Þeir Glaumbæjar- feðgar höfðu þann snert af „fásinnu" ömmu sinn- ar að eftir nýjár tóku þeir þunglyndi og lögðust í rúmið. Það voru afleið- ingar sólarleysisins í skammdeginu. Ég tamdi mér því glaða lund eftir föngum og síðari ár mín hef ég sett mér að muna sól- skinsstundirnar en gleyma hinum sem mest. Indriði Einarsson Imgfræð- ingur og leikritaskáld (f. 1851, d. 1939). Séð og lifað, 1936. Trú á lækninga- mátt grasa Fátt er kunnugt um starfsemi íslenskra lækna á fyrri öldum nema það sem ráða má af lækn- ingabókum. Helst mætti telja það sem varðar áhrif og náttúru íslenzkra grasa. En trúin á lækn- ingamátt grasa var löng- um mjög rík, og var það hald margra að allar eða flestar sóttir mætti með grösum lækna, ef menn aðeins gæti fundið jurtir þær er við ætti hverju sinni. Sú trú og lækn- ingaaðferð var ævaforn hér á landi eins og ann- ars staðar. Þorkell Jóhannesson háskóla- rektor (f. 1896, d. 1960). Saga Islendinga, 1950. Ráðríki Mannkynið vill vita allt, reyna allt og ráða öllu, svo langt og vítt sem til næst. Andrés Björnsson skáld (f. 1883, d. 1916). Skímir, 1910. Sagt Án umhyggju móðurinnar Fólk er ekki veikara á geði en það hefur verið á öllum tímum en kannski taugaveiklaðra vegna þess að við þurfum að leggja minna á líkamann og foreldrar verið teknir frá barninu, einkum móðirin sem hefur verið færð á vinnumarkað. Þá hljóp ofvöxtur í þjónustu við þá sem eru ekki „geðsjúkir" heldur þjást af mömmuleysi. Guðbergur Bengsson rithöfundur. DV, 9. október 1997. Eðlileg viðbrögð við óeðlilegum aðstæðum Vá má kalla það ástand/aðstæður, sem verða þess valdandi, að einstaklingnum finnst sér ógnað líkamlega/andlega þannig að hann óttist um líf sitt, heilsu og sjálf- stæði, fjölskyldu, vina eða annarra. Þetta getur gerst skyndilega við snjó- flóð, húsbruna, skip- skaða, bílslys, rán, lík- amsárás, nauðgun eða morð svo eitthvað sé nefnt. Einnig getur lang- varandi líkamlegt eða andlegt ofbeldi eða líf í sífelldu óöryggi um líf og heilsu sína eða ann- arra sem manni þykir vænt um haft sömu áhrif. Viðbrögð okkar eru einstaklingsbundin og einnig tengd aðstæðum og ástandi hverju sinni. I raun má telja þetta eðli- leg viðbrögð við óeðlileg- um aðstæðum. Páll Eirtksson geðlæknir. Morgunblaðið, 13. október 1997. Dauðans alvara Enginn hefur heilsu- farsleg efni á því eða sið- ferðilegan rétt til þess að tefla eigin heilsu og ann- arra í tvísýnu með reyk- ingum, vitandi það sem nú er vitað um dauðans alvöru tóbaksreykinga. Úr forystugrein Morgunblaðsins, 14. desember 1997. Áhyggjuleysi frá vöggu til grafar í viðskiptum sínum við heilbrigðiskerfið er einstaklingurinn að öllu jöfnu óvirkur þiggjandi. Hin ríkjandi sjúkraþjónustustefna gerir þegnunum kleift að lifa eins og þá lystir og láta síðan gera við sig eða bjarga sér þegar heilsan fer að bila. Með þessum hætti má segja að heilbrigðis- þjónustan falli eins og flís við rass að lífshátt- um okkar í neyslusamfélaginu. Megin lífsregl- an þar virðist vera að fullnægja sem flestum löngunum og að forðast það eins og heitan eld- inn að takast á við sársauka og þjáningu ... Leitast skal við að skapa öllum áhyggjulausan æviveg frá vöggu til grafar. Vilhjálmur Árnason prófessor. Lesbók Morgunblaðsins, 18. október 1997. Skrautleg nauðsynjavara Ekki er vanþörf á hressilegri hvatningu um aukið grænmetisát því enn sem komið er borða íslendingar minnst allra Evrópuþjóða af þessari hollu fæðu. Ávaxtaneysl- an er lítið veglegri eða um hálfur ávöxtur á dag. Engir aðrir fæðuflokkar eru sniðgengnir í sama mæli í fæði íslendinga og þessir tveir og margir virðast jafnvel líta á grænmeti og ávexti sem óþarfa skraut á veislu- diski fremur en nauð- synjavöru. Laufey Steingrímsdóttir forstöðumaður Mann- eldisráðs íslands. Morgunblaðið, 6. desember 1997. Eftirsóknarverð gæði lífsins Góð heilsa, sem til þessa hefur verið hluti af eftirsóknarverðum gæðum lífsins líkt og góður efnahagur eða gott fjölskyldulíf, er orðin að vöru á hinum frjálsa markaði og sölumenn- irnir keppast um að skreyta vöruna með fal- legum nöfnum og gæða hana í orði alls kyns heilsubætandi eiginleik- um sem engar eða mjög veikar forsendur eru fyr- ir. Árni Björnsson læknir. Læknablaðið, febrúar 1998. HEILBRIGÐISMÁL 2/1998 9

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.