Heilbrigðismál - 01.06.1998, Page 11

Heilbrigðismál - 01.06.1998, Page 11
Tómas Jónasson Fullkomnasta þjónusta Hafa heilbrigðisyfirvöld svarað kröfum tímans? Á miðju síðasta ári tóku gildi lög um réttindi sjúkl- inga. Þau eiga að tryggja að þeir sem eru sjúkir fái „fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita", eins og segir í þriðju grein laganna. Lög þessi voru löngu tímabær. Undanfarin ár hafa orð- ið miklar breytingar á viðhorfi manna, hér á landi sem erlendis, til þess hvernig búa skuli að sjúku fólki, hvort sem um er að ræða tímabundin eða langvinn veikindi. Alþjóðasamtök hafa látið málið til sín taka og heim- spekingar og siðfræðingar hafa tekið þátt í umræð- unni, auk hefðbundinna heilbrigðisstétta, samanber það sem fram kemur í grein Ástríðar Stefánsdóttur hér í blaðinu. Stjórnendur heilbrigðisþjónustunnar hafa reynt að búa stofnanir sínar nýjum tækjum og lítil fyrirstaða hefur verið að hagnýta ný lyf, þó dýr séu. En getur ver- ið að hugsunin um aðbúnað sjúklinga hafi setið á hak- anum? Hvernig gengi þeim hótelum sem byðu sex óskildum aðilum að gista í sama herberginu, líkt og gerist á sumum sjúkrahúsum? Að ekki sé talað um að fimmti hver hótelgestur yrði að sofa frammi á gangi. Eigum við að gera minni kröfur til heilbrigðisstofnana? Það eru ekki nægileg rök að svona hafi þetta alltaf ver- ið því að þjóðfélagið hefur breyst svo mikið síðustu áratugi á öðrum sviðum. Nú er rúm fyrir meira en fjögur þúsund sjúklinga á sjúkrastofnunum hér á landi og er það tvöföldun á rúmum aldarfjórðungi. Stjórnvöld telja sig ekki hafa efni á að greiða rekstrarkostnað sem því fylgir að nýta öll þessi rúm. Þess vegna er gripið til þess að loka heil- um deildum í lengri eða skemmri tíma. Þetta hefur sín- ar afleiðingar. Á sama tíma og biðlistar eftir sjúkrahúsdvöl lengjast hafa milljarðar króna verið lagðir í samgöngumann- virki til að auðvelda fólki að komast milli staða. Allir sem vilja komast í framhaldsnám eiga kost á því. Lagt hefur verið kapp á að gera öllum börnum frá eins eða tveggja ára aldri kleift að vera í leikskóla - meðal ann- ars til þess að foreldrarnir geti tekið virkan þátt í verð- mætasköpun atvinnulífsins. Fyrir einni öld voru fyrstu sjúkrasamlögin stofnuð, og þótti það mikið framfaraskref. Enda þótt samlögin hafi verið lögð niður í sinni eldri mynd fyrir tæpum ára- tug finnst almenningi hann eiga rétt á að fá þjónustu þegar á þarf að halda. I stað samlaga sjúklinga er sjálfur ríkissjóður ábyrgur. Þrátt fyrir það hafa fjárframlög til heilbrigðisþjónustu verið af skomum skammti. Er ef til vill „vitlaust gefið", eins og skáldið sagði? Kannanir hafa hvað eftir annað sýnt að almenningur gerir kröfu um meiri og betri heilbrigðisþjónustu - og er jafnvel tilbúinn að greiða hærri skatta til að svo megi verða. Auðvitað er stjórnvöldum vandi á höndum. Útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála jukust úr 6,3% af vergri landsframleiðslu árið 1985 í 6,8% árið 1994 og út- gjöld til almannatrygginga og annarra velferðarmála jukust enn meir. Afköst sjúkrastofnana hafa aukist, sjúklingar dvelja þar ekki eins lengi og áður. Nýlegar athuganir benda þó til þess að stytting legutíma sé far- in að hafa þau áhrif að sífellt fleiri sjúklingar þurfi að leggjast aftur inn á sjúkrahús. Viðleitni til hagræðingar er góðra gjalda verð en er ekki orðið tímabært að horfast í augu við staðreyndir og auka fjárveitingar til heilbrigðismála til þess að sjúklingar fái „fullkomnustu heilbrigðisþjónustu" eins og þeir eiga rétt á - og gera kröfu til? Jónas Ragnarsson ritstjóri. Undanfarin ár hafa orðið miklar breytingar á viðhorfi manna, hér á landi sem erlendis, til þess hvernig búa skuli að sjúku fólki. Nú er rúm fyrir meira en fjögur þúsund sjúklinga á sjúkrastofnun- um hér á landi og er það tvöföldun á rúmum aldarfjórðungi. HEILBRIGÐISMÁL 2/1998 11 L

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.