Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 12

Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 12
Þeir sem hafa mesta þörf fyrir heilbrigðisþjónustu skulu ganga fyrir - segir í nýrri skýrslu forgangsröðunamefndar Svonefnd forgangsröðunarnefnd heilbrigðisráðuneytisins skilaði til- lögum sínum um miðjan ágúst- mánuð, eftir tveggja ára starf. Til- lögurnar ásamt skýringum hafa verið gefnar út í sérstöku riti. I nefndinni sátu fjórtán manns, full- trúar stjórnmálaflokka, neytenda, stjórnenda og fagfólks í heilbrigðis- þjónustunni. í frétt frá ráðuneytinu segir að nefndinni hafi tekist að ná víðtæku samkomulagi um megin- hugmyndir, stefnumótun og tillög- ur til framtíðar. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fulltrúar þeirra sem aðild áttu að nefndinni komi saman árlega til að meta árangur og þróun á sviði heilbrigðismála. Tillögur nefndarinnar fara hér á eftir. A. Siðfræðilegir þættir. A.l. Heilbrigðisþjónustan á að vera réttlát. Markmið: 1. Heilbrigðisþjónustan skal vera réttlát, byggð á samábyrgð þegn- anna og að mestu leyti kostuð af al- mannafé. 2. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu skal vera auðvelt og sem jafnast fyrir alla landsmenn. 3. Þeir einstaklingar sem hafa mesta þörf fyrir heilbrigðisþjónustu skulu ganga fyrir. A.2. Tryggja skal rétt sjúklinga. Markmið: 1. Réttarstaða sjúklings gagnvart heilbrigðisþjónustunni skal tryggð. 2. Virðing skal borin fyrir velferð, einkalífi, mannhelgi og sjálfs- ákvörðunarrétti sjúklings. 3. Meðferð og umönnun við lífslok skal miðast við óskir einstaklings- ins og/eða aðstandenda og vera eins nærgætin og frekast er unnt. 4. Siðareglur heilbrigðisstétta skulu í heiðri hafðar. 5. Tryggja ber að heilbrigðisstarfs- fólk viðhaldi og endurnýi þekk- ingu sína. 6. Sjúklingar hafi greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu. 7. Sjúklingar bráðadeilda búi við góða umönnun á deild en liggi ekki á göngum eða öðrum stöðum sem ekki eru ætlaðir sjúklingum. B. Áherslur heilbrigðisþjónustunnar. B.l. Ákveðnir þjónustuþættir skulu ganga fyrir. Markmið: Eftirtaldir þjónustuþættir og teg- undir þjónustu skulu hafa forgang (þessi forgangur miðast við þörf fyrir heilbrigðisþjónustu): Heilbrigðis- þjónustan skal vera réttlát, byggð á samábyrgð þegnanna og að mestu leyti kostuð af almannafé. I. Meðhöndlun alvarlegra bráðatil- fella, lífshættulegra sjúkdóma, jafnt líkamlegra sem geðrænna, og slysa sem geta leitt til örorku eða dauða án meðferðar. II. Heilsuvernd sem sannað hefur gildi sitt. Meðferð vegna alvarlegra langvinnra sjúkdóma. Endurhæf- ing og hæfing. Líknandi meðferð. III. Meðferð vegna minna alvar- legra slysa og minna alvarlegra bráðra og langvinnra sjúkdóma. IV. Önnur meðferð sem fagleg rök eru fyrir að hafi skilað árangri. Tryggja skal að þeir sem vegna æsku, fötlunar eða öldrunar eiga erfitt með að gæta réttar síns njóti jafnræðis á við aðra. B.2. Setja skal reglur um biðlista, biðtíma og tilfærslu sjúklinga innan heilbrigð- iskerfisins. Hámarksbiðtíma eftir þjónustu skal skilgreina eftir því sem við á í hverju tilviki en hann skal ekki vera lengri en 3-6 mánuðir. 12 HEILBRIGÐISMÁL 2/1998

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.