Heilbrigðismál - 01.06.1998, Side 13
Markmið:
1. Enginn skal vera á biðlista nema
um viðurkennda þörf fyrir aðgerð
eða rannsókn sé að ræða.
2. Setja skal fram hlutlæg skilmerki
fyrir viðkomandi rannsókn eða að-
gerð.
3. Hámarksbiðtíma eftir þjónustu
skal skilgreina eftir því sem við á í
hverju tilviki en hann skal ekki
vera lengri en 3-6 mánuðir.
4. Hver sjúklingur skal á hverjum
tíma fá þjónustu á þeim stað eða
stigi innan heilbrigðiskerfisins sem
hentar honum best.
5. Tryggja ber að sú greining eða
meðferð sem valin er í hverju til-
viki sé gagnleg og eins hagkvæm
og kostur er.
B.3.
Stuðla ber að auknum gæðum og hag-
kvæmni innan heilbrigðisþjónustunn-
Hver sjúklingur
skal á hverjum
tíma fá þjónustu
á þeim stað
eða stigi
innan heilbrigðis-
kerfisins sem
hentar honum
best.
ar, svo sem með betri nýtingu lækn-
ingatækja, mannafla og eflingu rann-
sókna.
Markmið:
1. Öll ný lækningatæki og meðferð-
arúrræði skulu uppfylla ákveðnar
kröfur um árangur og öryggi.
2. Komið verði á fót þverfaglegu
ráði sem m.a. fjalli um hagnýtingu
tækninýjunga og rannsóknarnið-
urstaðna.
3. Tryggt verði að heilbrigðiskerfið
geti hagnýtt sér tækninýjungar og
rannsóknarniðurstöður, t.d. með
því að árlega verði 3-5% af fjár-
framlögum til stofnana varið til
tækjakaupa og endurnýjunar á
tæknibúnaði.
4. Efla skal grunnrannsóknir með
langtímamarkmið í huga.
5. Heilbrigðisþjónustan skal styðj-
ast við viðurkennda gæðastaðla.
Skilgreina skal meginmarkmið heilbrigðis- <#
þjónustunnar
og setja
einstökum
þáttum hennar
tiltekin
markmið.
C.
Skipulag og stefnumörkun.
C.l.
Grunnþjónustan og sérfræðiþjónustan
verður að vera öflug.
Markmið:
1. Tryggja skal öfluga grunnþjón-
ustu um allt land.
2. Ekki skal að jafnaði vera meira
en einnar klukkustundar akstur frá
heimili til næstu bráðaþjónustu.
3. Efla skal sérfræðilega heilbrigðis-
þjónustu sem veitt er án innlagnar
á sjúkrahús.
4. Aukin áhersla skal lögð á heilsu-
vernd.
C.2.
Samvinnu og samhæfingu innan heil-
brigðisþjónustunnar verður að auka.
Markmið:
1. Rekstur heilbrigðisstofnana skal
samhæfa eftir því sem við verður
komið.
2. Skilgreina ber verksvið og hlut-
verk heilbrigðisstofnana.
3. Samræmt verði upplýsingakerfi
heilbrigðisþjónustunnar og skapað-
ir möguleikar á tengingu tölvu- og
upplýsingakerfa.
4. Tengsl heilbrigðisþjónustu við
aðra samfélagsþjónustu skulu efld.
C.3.
Mófn verður stefnu og heildarskipulag.
Markmið:
1. Skilgreina skal meginmarkmið
heilbrigðisþjónustunnar og setja
einstökum þátturn hennar tiltekin
markmið.
2. Heildarskipulag heilbrigðisþjón-
ustu grundvallist á þremur megin-
þáttum, þ.e. grunnþjónustu, svæð-
isþjónustu og landsþjónustu.
3. Verkaskipting ríkis og sveitarfé-
laga á sviði heilbrigðismála skal
vera skýr og markviss.
4. Fjárframlög til heilbrigðismála
taki mið af verkefnum heilbrigðis-
þjónustunnar.
HEILBRIGÐISMAL 2/1998 13