Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 15

Heilbrigðismál - 01.06.1998, Qupperneq 15
Krabbamein eftir landshlutum: Nýgengi er hæst suðvestanlands Grein eftir Jón Hrafnkelsson og Jónas Ragnarsson Fyrir áratug birtist í Heilbrigðis- málum grein um nýgengi krabba- meins eftir kjördæmum (4. tbl. 1988). Þá var miðað við árin 1977- 1986. Nú eru tiltækar hjá Krabba- meinsskránni tölur fyrir næstu tíu ár þar á eftir, 1987-1996. Hér verður litið á þetta tuttugu ára tímabil £ heild, til að draga sem mest úr áhrifum sem geta stafað af því að of fá tilfelli standi á bak við ný- gengitölur fyrir einstök mein í ein- stökum kjördæmum. Einnig verða þessi tvö tíu ára tímabil borin sam- an og minnst á nokkra áhættu- þætti. Öll krabbamein. Þegar allt þetta tuttugu ára tímabil er skoðað kem- ur í ljós að nýgengi krabbameins er hærra í Reykjavík og á Reykjanesi heldur en annars staðar á landinu, eins og sjá má á meðfylgjandi töfl- um. Munar þar allt að fjórðungi. Þessi munur er marktækur hjá báð- um kynjum milli Reykjavíkur og annarra staða á landinu. Ekki er hægt að skýra þennan mun með mismunandi aldursdreifingu vegna þess að þær tölur sem hér eru birt- ar hafa verið aldursstaðlaðar. Það er þekkt frá öðrum löndum að gera má ráð fyrir hærri tíðni krabba- meins í borgum en í dreifðum byggðum. Þannig er t.d. nýgengi í nyrstu héruðum Noregs og Sví- þjóðar 10-30% lægra en annars stað- ar í þessum löndum. Frá fyrra tímabilinu (1977-86) til þess síðara (1987-96) jókst nýgengi krabba- meins hér á landi um 10,2% hjá körlum, eða að jafnaði um 1,0% á ári. Hjá konum var aukningin 11,0%, eða um 1,1% á ári. Þessi aukning er þó ekki jafn mikil alls staðar. Meðal karla var hún mest á Norðurlandi vestra (um 45%) en meðal kvenna jókst nýgengi mest á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi (um 28-33%). Þrátt fyrir að aukningin hafi verið meiri á vissum svæðum á lands- byggðinni en í Reykjavík er þessi sjúkdómaflokkur þó enn algengari í Reykjavík en á landbyggðinni, eins og komið hefur fram. Brjóstakrabbamein. Nýgengi er hæst í Reykjavík, á Reykjanesi og á Suðurlandi en lægst á Vestfjörðum. Þessi sjúkdómur er marktækt al- gengari á ofangreindum þremur svæðum en annars staðar á landinu og hefur aukist alls staðar nema á Vesturlandi. Hvað varðar áhættu- þætti fyrir brjóstakrabbamein má nefna fæðingarsöguþætti, mataræði og erfðir. Krabbamein í brjóstum er mjög algengt í Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu en fátíðara í Asíu og Afríku. Blöðruhálskirtilskrabbamein. Nýgengi er hæst í Reykjavík en næst koma Suðurland og Reykja- nes. Nýgengi í Reykjavík er mark- tækt hærra en annars staðar á land- inu, ef Suðurland er undanskilið. Það er lægst á Norðurlandi en hef- ur aukist alls staðar milli tímabila. Karlar 112 100 Konur 106 103 Krabbamein í blöðruhálskirtli greinist oftast hjá rosknum karl- mönnum. Mikill munur er á ný- gengi milli landa, þannig er sjúk- dómurinn algengur á Vesturlönd- um en mjög fátíður í Kína og getur munurinn verið tuttugufaldur. Þessi mikli munur getur gefið til kynna að umhverfisáhrif eða lífs- venjur eigi þátt í myndun sjúk- dómsins. Það verður þó að hafa í huga að greining byggist oft á því hversu mikið er leitað, því oft er sjúkdómurinn alveg einkennalaus. Lungnakrabbamein. Nýgengi er hæst í Reykjavfk og á Reykjanesi, bæði hjá körlum og konum. Hjá körlum er sjúkdómurinn marktækt algengari á þessum svæðum en annars staðar á landinu. Sömu niðurstöður fást hjá konum, nema munurinn við Vesturland og Aust- urland er ekki marktækur. Ný- gengið er lægst á Vesturlandi að því er varðar karla og á Vestfjörð- um að því er varðar konur. Nýjum tilfellum meðal karla hefur fjölgað í flestum kjördæmum og í öllum kjördæmum meðal kvenna. Talið er að lungnakrabbamein sé nú al- gengasta krabbameinið í heimin- um. Reykingar eru langstærsti áhættuþáttur þessa sjúkdóms. Magakrabbamein. Nýgengi hjá körlum er hæst á Vestfjörðum en munurinn milli kjördæma er ekki marktækur. Hjá konum er nýgengi hæst á Norðurlandi eystra og sjúk- dómurinn marktækt algengari þar en í Reykjavík. Mikið hefur dregið úr krabbameini í maga og er það þakkað breyttum neysluvenjum. Milli ofangreindra tímabila (1977-86 og 1987-96) hefur nýgengi lækkað á öllum landsvæðum. Gagnstætt við flest önnur algeng krabbamein er þessi sjúkdómur algengari í dreifð- um byggðunt en þéttbýli á íslandi og á það sama við annars staðar á Norðurlöndum. Þvagblöðrukrabbamein. Ný- gengi hjá körlum er langhæst á Austurlandi en lægst á Vestfjörð- HEILBRIGÐISMÁL 2/1998 15

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.