Heilbrigðismál - 01.06.1998, Page 25
Erling Aðalsteii
„Sköpum reyklausa kynslóð"
Nýju námsefni um tóbaksvamir hefur verið vel tekið
Nýtt og ítarlegt námsefni í tób-
aksvörnum var sent öllum grunn-
skólum haustið 1997. Þetta er liður í
átaki Tóbaksvarnanefndar og
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
undir kjörorðinu „Sköpum reyk-
lausa kynslóð". Með því að bjóða
skólunum vandað námsefni fyrir
nemendur 6.-10. bekkjar er verið að
stuðla að aukinni og markvissari
tóbaksvarnarfræðslu. Þessar
breyttu áherslur voru kynntar á
þingum og fundum kennara og
þeir, ásamt skólahjúkrunarfræðing-
um og námsráðgjöfum, hafa sótt
námskeið í tóbaksvörnum.
Fyrst er frætt um skaðsemi tób-
aksneyslu en þekking á afleiðing-
unum er helsta ástæða þess að stór
hluti ungs fólks byrjar ekki að
reykja og reykingamenn reyna að
hætta. Ut frá þessum grunni er
aukin meðvitund nemenda um
persónulegan þroska, mannleg
samskipti og sjálfstraust. Þannig er
unglingurinn hvattur til að viður-
kenna persónulega ábyrgð á
ákvörðunum varðandi notkun tób-
aks og þróa leiðir til að hafna tób-
aki. Gert er ráð fyrir að umfjöllun
um reykingar og aðra tóbaksneyslu
sé tekin upp aftur og aftur á náms-
tímanum og nemendur fræddir um
reykingar eftir því sem þroski
þeirra krefst og gefur tilefni til.
Víða var leitað fanga við náms-
efnisgerð. Námsefni 6. bekkjar
(Tóbakið og þú) er samið af
fræðslufulltrúum Krabbameinsfé-
lagsins og byggir á tuttugu ára
reynslu þeirra af tóbaksvörnum í
grunnskólum. Námsefni 7. bekkjar
(Reyklaus - að sjálfsögðu) er stað-
fært úr efni frá Bretlandi. Fyrir
nemendur 8.-10. bekkjar varð fyrir
valinu námsefni sem þróað hefur
verið af Norska krabbameinsfélag-
inu (Vertu frjáls - reyklaus). Itarefni
er einkum fengið frá Noregi og
Norður-írlandi. Meðal annars er
um að ræða myndband um skað-
semi reykinga (Allt annar raun-
veruleiki) og um markaðssetningu
tóbaks (Auglýsingar sem drepa). Þá
var gerð handbók fyrir starfsfólk
félagsmiðstöðva (Skerpingur) og
önnur fyrir leiðbeinendur á reyk-
bindindisnámskeiðum fyrir ungt
fólk (Dreptu í).
Rannsóknir hafa sýnt að uppeld-
ishættir og reykingar foreldra ráða
miklu um hvort barn byrjar að
reykja. Því hefur verið lögð áhersla
á að upplýsa foreldra barna í 8.-10.
bekk um gildi tóbaksvarna. Bæk-
lingurinn „Viltu taka þátt í að
skapa reyklausa kynslóð?" var
sendur til foreldra barna á ungl-
ingastigi. I honum er fjallað um
hvað foreldrar geta gert til þess að
koma í veg fyrir að unglingar byrji
að reykja. Foreldraefnið var unnið í
samstarfi við samtökin Heimili og
skóli.
í maí 1998 var gerð könnun á
notkun námsefnisins í grunnskól-
um landsins. í ljós kom að 73%
allra grunnskólanema fá tóbaks-
varnafræðslu sem byggð er á þessu
nýja námsefni. Eru það ótrúlega
góður viðtökur því stuttur tími er
liðinn frá því að efnið kom út. Þar
sem námsefnið gerir ráð fyrir
tveggja til sjö kennslustunda um-
fjöllun má álykta að sá tími sem
varið er til tóbaksvarna hafi aukist
verulega. Þeir skólar sem höfðu
ekki tækifæri til að byggja tóbaks-
varnir á grunni efnisins nú hafa
fullan hug á að kenna efnið á næsta
skólaári.
Það er von Krabbameinsfélagsins
að með samstilltu átaki skóla, for-
eldra og annarra sem láta sig heill
og hamingju æskunnar varða takist
á næstu árum að skapa reyklausa
kynslóð - kynslóð sem á frelsi til
framtíðar.
H. G.
Nokkrir nemendur Austurbæjar-
skóla í Reykjavík, ásamt Guðrúnu
Halldórsdóttur kennara, kynna sér
nýtt námsefni í tóbaksvörnum,
sem var notað víða í vetur.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1998 25