Samtíðin - 01.08.1934, Page 11
S AMTÍÐIN
Á FERÐ U M VERMALAND
NOKKRAR AUSNABLIKSMYNDIR
„Þetta ei‘u ljótu þrengslin“,
tautar hver um sig, þegar við er-
um að koma okkur fyrir í járn-
brautarvagninum á stöðinni í
Gautaborg, „og hitinn! úh“! Vagn-
inn er troðfullur af dönsku og
íslensku skólafólki, sem er á leið
til skólamóts Norræna félagsins
í Vermalandi. Síðasti strákurinn
sleppur inn úr vagndyrunum, með
bakpokann sinn, um leið og lest-
in rennur af stað. Við veifum
með vasaklútunum út um vagn-
gluggana, þó við þekkjum ekki
einn einasta mann af þeim, sem
standa á brautarstéttinni.
Lestin eykur hraðann. • Við
þjótum gegnum hávaxna greni-
skóga og djúpar klettaskorur,
sem sprengdar hafa verið gegnum
líkum hefir verið færður fram
um það hver hann ætti að vera.
Sennilega færa meðhaldsmenn
virkjunarinnar þau meðmæli, að
hún sé gerð fyrir framtíðina. En
hver treystir sér til að halda því
fram í alvöru, að því fé er vér
að óþörfu mundum festa í virkj-
uninni, væri ekki betur varið til
framgangs fyrirtækja, sem gerð
væru ekki eingöngu með hag
framtíðarinnar fyrir augum,
heldur einnig fyrir samtíðina.
EFTIR
GUÐLAUe ROSINKRANZ
ása og hæðir. Við sjáum öðru
hvoru gróðurlausar klappir og
kletta; í vestri glampar á hafið
milli hæðanna og trjánna. Stórir
hópar svartflekkóttra kúa eru á
beit á engjunum, rúgurinn og
hveitið bylgjast á ökrunum fyrir
hægum andvaranum. Það er ynd-
isleg sjón. Lestin brunar áfram
upp með Vánern, stærsta stöðu-
vatninu í Svíþjóð, og inn í Verma-
land.
Já, Vermaland! Þangað hefir
mig lengi langað til að koma. Það
var víst í þessu fagra æfintýra-
landi, sem Egill Skallagrímsson
heimti skattinn forðum fyrir Nor-
egskonung. Það er hér sem svo
mörg af frægustu skáldum Svía
eru fædd og uppalin. Það var hér
sem Gösta Berling lifði sínu æfin-
týralífi.
Fáar sveitir munu geta stært
sig af að eiga skáld eins og Teg-
nér, Fröding, Gejer og Selmu Lag-
erlöf. Fá héruð eiga eins mikla og
merka menningarsögu, svo mörg
skáld, sagnir og æfintýri eins og
Vermaland.
Vermaland er smáhæðótt, skógi
vaxið vatnaland. Bóndabæirnir
standa dreift, hér og þar sjást
námuþorp, sögunarmyllur, papp-
9