Samtíðin - 01.10.1934, Blaðsíða 17
S AMTÍÐIN
NORDAHL GRIES:
SKÁLINN Á HEIÐINNI
Nordahl Grieg er cinn af yngstu en þó þektustu skáldum Norðmanna.
Hann cr fæddur 1902. Að afJoknu kanditatsprófi fór hann til Oxford til
framhaldsnáms og hefir síðan dvalið mest utan ættlands síns, á sífeldum ferða-
lögum. Grieg var fyrst í ýmsum löndum sem fréttaritari fyrir Tidens Tegn,
meðal annars í Kína meðan á innanlandsstyrjöldinni stóð. Daðan skrifaði
hann mjög smellin ferðabréf, sem komið hafa út í bók, er hann kallar Kín-
verskir dagar. Tvær skáldsögur hefir hann skrifað. Rundt Kap det goda
H&b og Skibet g&r videre. Báðar þessar sögur eru fjörug og tilgerðarlaus
Jýsing á Jífi sjómannanna, sem flækjast um höfin frá Jandi til lands, og Jenda
f ýmsum æfintýrum, ýmist á ólgandi hafinu eða í sjómanna- og vændis-
kvennahverfum stórborganna. Grieg hefir einnig skrifað nokkur Jeikrit og
mikið af Jjóðum. Það er líf og fjör í öJJu sem hann skrifar, enda er hann
án efa eitthvert snjallasta og vinsæJasta skáld Norðmanna, af þeim sem nú
eru uppi. — GJ, R.
Efnt var til skála uppi í óbyg'N
Æptu í þunnum borðum
vindar og vetrarél.
En þama var nóg af þúfum,
og þúfa var skálinn sjálfur,
tryfður og varinn vel.
Menn staulast kvölds og morgna
margir frá skáladyrum
götu grafna í snjó.
Veg á um heiðina að hlaða.
Harðgrýtið sprengja og aka
því út um mýri og mó.
Utan úr drífu og dimmu
dagsveitin þreytt og hungruð
kveldverði er lvomin að.
Bakvið rúmtjöld sig ræskja
rumskandi menn, sem bráðum
fara til starfa af stað.
Lyktar af svita og sudda,
senda ramman að vitum
þef hin þornandi föt.
En sætt frá ofninum anga,
innan um sokka og brækur,
kaffi, baunir og kjöt.
Kaffið í þögn er þambað,
þrifuð og skafin klæði,
reykt og fleygt sér á flet.
Nú er notalegt inni,
nóg af olíu og kolum.
Úti er húm og hret.
Verkstjórinn víkur í homið.
Viðtækið á að reyna.
Tónamir titra ótt.
Hvinur, hlátur og öskur--------
Hafrót í ljósvakageimnum.
Ymja frá eilífum stjörnum
óp meðal vor í nótt?
N a u t i ð fer öskrandi og ært,
æðir í norðri um vígsvið tómsins,
vafurlogandi húmleiftrahjörvi
himnariddarans sært.
Hrotkend og lostug hljóð?
Úr híði fer Björninn á stjá.
Sagt er að birnunni hann sinni
ekki lengur
sjái hann hvítar og snoðnar
meyj ar
\
halda hjá.
15