Samtíðin - 01.05.1940, Blaðsíða 20

Samtíðin - 01.05.1940, Blaðsíða 20
16 SAMTIÐIN PÉTUR JAKOBSSON : Um leiguburð Niðurl. Á miðöldum tók kirkjan að am- asl við váxtatöku af peningum. Taldi hún ósæmilegt, að ])eningar fæddu af sér peninga. Hins vegar félst hún á, að Icigur væru greidd- ar af fríðuin peningi. Þetta vaxta- bann kirkjunnar náði þó ekki lil- gangi sinum. Viðski])taþörf lífsins krafðist lánsfjár, og lánveitendur vaxtanna. Kirkjan, sem víða var auðug, lánaði peninga og tók vexti þrátt fyrir eigið bann, en ])að var í umrituðu formi, l. d. með hækk- uðum höfuðstól fram yfir ])að, sem út var greitt. Þegar þingvald þjóð- anna hér i álfu á miðöldunum varð að þoka fyrir konungsvaldinu, og konungar urðu löggjafar þjóðanna, létu þeir vaxtalöggjöfina til sín taka. Þeir höfðu tilhneigingu til að lögbjóða lága vexti af lánum, trygð- um með veði í fasteign. Gerðu þeir ]>etta til að þóknast sjálfseignar- bændum og aðalsmönnum, sem oft þurftu á peningalánum að halda. Þeir nutu svo góðs af sjálfir. Konungar á miðöldunum þurftu oft sjálfir á lánsfé að halda. Þótti ])á ekki sæmilegt að laka hærri vexti af lánsfé til konungs en lögboðið var þar i landi, og er það auðskil- ið mál. Ef við nú hugleiðum, hvað gerst hefir hér á landi á umliðnum öld- um í peningalánum og vaxlatökum, af fé og okur verður fyrir oss afrás erlendra strauma. Okkar fvrsta lögbók, lýð- veldislögbókin Grágás, ákveður vexti af lánum og viðurlög fyrir vanskil þeirra. Lögvextir Grágásar voru 10%. Væri skuldin ekki greidd í eindaga, bættust 10% við fyrir „harðafang“. Væri dæmd skuld ekki greidd, samkvæmt dómi, var það dómrof, og var refsing fvrir það fjörbaugsgarður. Varð þá að höfða nýtt mál fyrir dómrof og láta varða fjörbaugsgarð. Að þessu und- angengnu sektist alt fé dóiriþola og var gert u])])tækt í féránsdómi, en sjálfur varð dómþoli að vera utan lands þrjá vetur. Hrykki fé dóm- þola ekki l'yrir öllum skuldum í féránsdómi, sem á bonum livildu og fjörbaugnum að auk, varð hann sekur skógarmaður, óalandi, óferj- andi og óráðandi öll bjargráð. Voru þetta harðir viðskiptakostir. Munu ])essi Iög hafa gilt hér fram vf- ir siðaskiptin árið 1000. Hér sem annars staðar skarst kirkjan i lcik- inn. Bannaði hún að taka vexti af peningum, en levfði leigur eftir gangandi þening og jarðir. Á mið- öldum sóttust ríkir menn hér á landi eftir jörðum, því að þeir höfðu kirkjulegt levfi til eftirgjalds eftir þær. Þegar Jónsbók kom út hingað, 1281,hafði húnákvæðium leigur eft- ir gangandi pening og landsleigu. Við þessu amaðist kirkjan. Reis hér

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.