Samtíðin - 01.06.1940, Qupperneq 7

Samtíðin - 01.06.1940, Qupperneq 7
SAMTIOIN Júní 1940 Nr. 63 7. árg. 5. hefti HINN 10. maí, réttum mánuði eftir að íslenskir stjórnmálamenn sögðu þjóð vora úr tengslum við Dani og tóku utan- ríkismál vor í sínar hendur, kom hingað til Reykjavlkur sendiherra Bretakonungs. Sendiherrann kom á herskipi miklu, og fylgdu því sex herskip smærri. Var sett af þeim herlið hér á Iand, ásamt hergögn- um og vistum, svo sem alþjóð er kunn- ugt. Með því að senda hingað sendiherra, hafa Bretar viljað sýna, að þeir viður- kendu sjálfstæði Islands og fullveldi. Hins vegar átti herliðssending þeirra hingað til lands að tákna, að þeir vildu ekki þola Þjóðverjum að hafa sig neitt í frammi hérlendis. Þetta eru óvefengjanlegar stað- reyndir. Svo mun mega lita á, að breski flotinn geti varnað þýskum skipum að sigla til íslands, en herliðið sendu Bretar til íslands til þess að koma í veg fyrir, að Þjóðverjar gætu sett hér her á land úr flugvélum. Breski sendiherrann var síðan látinn lýsa yfir því við íslensk stjórnarvöld, að sending hins breska her- liðs hingað ætti að tákna það, sem að framan greinir, en að Bretar mundu á engan hátt blanda sér í stjórn íslands, og mundu þeir tafarlaust láta lið sitt víkja héðan, er tímabært þætti, og í síðasta lagi, er stríðinu lyki. Samtíðinni er kunnugt um, að ýmsir bjartsýnir fslendingar, sem vit hafa á stjórnmálum, líta svo á, þegar þetta er ntað, að fyrnefndar aðgerðir Breta muni væntanlega verða síðasta hernaðaraðgerð hér á landi í þessari styrjöld. Þessir mcnn s®ffja sem svo: Lítil hætta er á því, að Þjóðverjar komi hingað fljúgandi frá Nor- effi, enda geta ekki nema fullkomnustu flugvélar flogið þá vegalengd fram og aft- ur án þess að taka bensín. Og enn frem- ur segja þessir menn: Hér er ekki eftir •'einu að slægjast, sem stórþjóðirnar sækj- ast venjulega eftir. Útflutningur íslend- luga er skapaður af mikilli vinnu þjóðar- lunar, og vor frjósamasti akur er hafið, sem allar þjóðir hafa aðgang að til jafns við oss. Mega íslendingar því vonandi enn um stund sanna það, sem Adam fr<j Brim- um sagði um þjóð vora fyrir átta öldum: „Fjöllin eru hallir þeirra, 'en fátæktin þeirra kastalar.“ En allmargir menn munu þó að vonum líta með nokkuð alvöruþrunginni vand- lætingu á framkomu Breta við íslendinga þann 10. maí s.l. Menn kunna því illa, að Reykjavík skuli alt í einu vera orðinn hernuminn bær, án þess að íslendingar hafi beðið nokkra erlenda þjóð um her- liðsvernd. Vér óskum þess áreiðanlega fyrst og fremst, að athygli ófriðaraðilj- anna sé oss sem fjarst, og vér kjósum flest annað fremur en að Reykjavík eigi eftir að verða vígvöllur útlendinga, sem þykist þurfa að gera upp sínar sakir hér norður undir heimskautsbaug. Vér hörm- um þá ægilegu meðferð, er frændþjóðir vorar, alsaklausar, hafa orðið að þola hver af annari, sakir þeirrar stríðsvitfirr- ingar, sem gagntekið hefur stórveldi Ev- rópu. Með tundurduflalögnum Breta með- fram Noregsströndum og þeim afleiðing- um, er sú framkvæmd hafði í för með sér, stöðvaðist hitaveitan í Reykjavík, eins og allir vita. Slíkt var oss mikil ógæfa. Nú er hér alt morandi í breskum hermönn- um, sem lagt hafa undir sig ýms skólahús Reykjavíkur og aðrar opinberar bygging- a.r. Jafnframt er oss lofað hagfeldum versl- unarsamningum við Breta. Væri ekki at- hugandi, að forráðamenn íslendinga bentu Bretúm á, að ekki væri óviðeigandi, að þeir sendu hingað nokkra ódýra skips- farma af kolum, sem hugnun fyrir stöðv- un hitaveitunnar, cða sæju til þess, að hitaveitan þyrfti ekki að stöðvast? Jafn- framt hljótum vér að vænta þess, að þeirri áreynslu verði sem fyrst létt af Islending- um, að hafa hér fyrir augum sér útlenda hermenn, enda þótt meginþorri þeirra séu góðlátlegir og kurteisir unglingar. (Skrif- að 14. maí).

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.