Samtíðin - 01.06.1940, Qupperneq 14

Samtíðin - 01.06.1940, Qupperneq 14
10 SAMTÍÐIN ur í rikjunum, sem eru fúsir lil að kaupá þá af mér. Þeir vita, að pen- ingarnir eru í fullu gildi. Eftir nokkrar vikur fara blöðin að þvæla um þetta og engu ber heim um neitt. Þess vegna förum við liéðan aust- ur á bóginn, losum okkur við þessa peninga, og alt mun ganga að ósk- um. Vertu nú ekki að barma þér yfir þessu lengur. I / ARL STÓÐ UPP frá borðinu og geltk út, en Maxsie sal eft- ir, grafkyr. Alt í einu fann hann, að hann var að verða fárveikur. Hann stóð því upp frá borðinu, reik- aði inn i svefnberbergið og fleygði sér upp i rúmið sitt. En þá leið honum enn ver, svo að hann reis upp aftur, settist á rúmstokkinn og livrgði andlitið í liöndum sér. Skyndilega fékk liann óþolandi magaverki. Hann stóð því upp, gekk út að glugganum, sem var opinn, og settist þar. Svalt útiloftið hresti hann. Hann sat með hendurnar í gluggakistunni og horfði út. En alt i einu varð honum kalt. Hann þreifaði á enni sér. Það var rakt. Síðan lokaði hann glugganum og skreiddist aftur upp i rúmið. Þegar hann var lagstur fyrir, fékk liann liræðilega magaverki á ný. Ýmist fanst honum hann vera sjóð- héitur eða ískaldur. Hann fór að hríðskjálfa og veitti því atliygli, að liendur hans voru rakar og titrandi. Hann tók nú það ráð, að fara úr fötunum og hátta. Ósjálfrátt og af gömlum vana stakk hann skamm- byssunni sinni undir koddann. Allan daginn lá hann þarna, ým- ist heitur eða kaldur. Hann var með sífeldan skjálfta og honum leið af- ar illa. Ivarl skipti sér ekki minstu vitund af honum. Hann lá þvi þarna aleinn og gersamlega um- lurðulaus. UM KVÖLDIÐ kom Karl inn i svefnherbergið. — Þú ert áreiðanlega veikur, mælti hann. Hann settist á rúmstokkinn, horfði á Maxsie og sá, hve heitur og rjóð- ur hann var. Síðan fór hann fram, sótti svaladrykk og rétti Maxsie. — Heldurðu, að þetla slafi af ein- bverju, sem þú befur étið? spurði hann. Því næst kveikti hann á út- varpstækinu, en kom að því loknu aftur og settist hjá sjúklingnum. Hann Ieit á úrið sitt. Eg ætla að taka aðra stöð, sem flytur okkur nýjustu fréttirnar, mælti hann. — Já, gerðu það, svaraði Maxsie með hásri og þreytulegri röddu. Nú lóku fréttirnar að heyrast: Stjórnmál, íþróttir, glæpir og' nýjar fregnir af barnsráninu, en raunar ekkert, sem snerti þessa tvo menn fvr en röddin sagði: Banvæn skarlatssótt befur brotist út í skólanum, sem rænda barnið, Arthur Cook, var í. Skólan- um var lokað í dag, og allir for- eldrar, er eiga börn, sem talið er, að bafi umgengist börn úr þessuin skóla, eru tafarlaust beðnir að bafa tal af læknum sínum. Maxsie hlustaði. Andartak lá hann kvr og hugsaði um sótthitann í sér.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.