Samtíðin - 01.06.1940, Side 15

Samtíðin - 01.06.1940, Side 15
SAMTÍÐIN 11 Því næst reis hann upp við olnboga og livíslaði: — Ég hef fengið hana. Ég er viss uni, að ég hef fengið haina. — Fengið hverja? spurði Karl. — Þessa veiki, sein þulurinn er að segja frá. Það er áreiðanlegt, að ég hef fengið hana. Barnið hefur haft hana og sýkt mig. Ég hef aldr- ei verið bólusettur við þessari veiki. Það er þessi sótt, sem ég var að veikjast af rétt áðan. Öll börnin í skólanum eru orðin sýkt. Barnið hefur smitað mig. Ég sagði þér, að þetta harn nnmdi aldrei verða okk- ur til góðs. — Þú liefur ekki smitast af neinni veiki. Nú ertu aftur orðinu dauð- skelkaður. — Jú, ég hef smitast af barninu, sagði Maxsie og sal við sinn keip. Og þú verður eilthvað að gera. Þetta er banvæn sótt. Hún getnr drepið mig, Karl. Þú verður að ná i lækni. Karl stóð upp og leit á Maxsie. Þú ert kjarktaus ræfill, mælti hann. — Ef til vitl hefurðu sýkst af þessari veiki, eða þú hefur ekki sýkst af henni! Ég get fallist á, að eilthvað gangi að þér. En ég fer ekki að sækja lælcni til þín, né neinn annan mann. Heldurðu, að ég sé.ein- liver fábjáni? Ekki l'æri ég að fremja sjálfsmorð, þó að ég vissi, að þú værir með holdsveiki. — Þér hatn- ar! Hann gekk fram að dvrunum. Maxsie settist upp i rúminu. Þú verður að sækja lækni, sagði hann hranalega. — Ég er viss um,að annars dev ég úr þessari pest. Sérðu ekki, að ég er fárveikur? Taktu nú eftir því, sem ég er að segja: Ég veit, livað þú ert að hugsa um. Þú ert að hugsa um að strjúka frá mér! En þú getur ekki verið þektur fvrir það, Karl! Karl opnaði dyrnar og labbaði út úr herberginu. MAXSIE SAT KYR og hlustaði. Hann heyrði, að Ivarl var á gangi frammi i stofunni. Iionum varð liugsað til sjóðsins á borðinu. Hann stakk hendinni undir kodd- ann og þreif skammbyssuna. Því næst studdi hann sig við höfðagafl- inn, þokaði sér fram úr rúminu og staulaðist með veikum burðum fram að dyruuum. Hann greip í liand- fangið á hurðinni og sneri því of- urhægt og gætilega. Síðan opnaði hann hurðina lítið eitt. Gegnnm dyragættina sá hann, hvar Ivarl var að safna ýmsu samau og láta það í lösku. Hann opnaði hurðina örlitið betur og stakk byssunni fram í gætt- ina. Hönd lians var óstvrk. Ivarl liélt ekki kyrru fvrir, svo að Maxsie fór sér að engu óðslega. Vegna þess, hve óstyrkur hann var í hendinni, taldi liann öruggast að biða, þar til Karl væri kominn al- veg að honum. Það dróst heldur ekki lengi, að Ivarl nálgaðist, þvi að liann kom von bráðar æðandi, í áttina til dvranna, að borðinu, þar sem peningarnir lágu. Maxsie lét skotið ríða af, en um leið og Karl steyptist dauður á gólf- ið, féll hyssan úr hendi lians. Hann fann til ógurlegra kvala í maganum, riðaði fram og aftur um

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.