Samtíðin - 01.06.1940, Síða 19

Samtíðin - 01.06.1940, Síða 19
SAMTÍÐIN 15 Oft liefur það komið fyrir, að ég hef þurft að setja sjúklingum min- um úrslitakosti: hætta að talca þátt i kauphallarbraski —• eða sitja með sitt svefnleysi ella. En því ver er það ekki allaf, að auðvelt sé að hætta því, sem hindr- ar endurnýjunarkraftinn. Stafi svefnlevsið af æstum og þrá- látum óvana, er engan veginn auð- velt að fást við það. Sá, sem er reitt- ur og rúinn fyrir svik og pretti og sér fram á skort og neyð sína og sinna, á ekki auðvelt með að upp- ræta gremjuna og óvildina i huga sínum. Sá, sem þarf að neyta allr- ar orku til þess að hafa ofan af fyrir sér og sínum, getur ekki auð- veldlega slakað hugann, svo sem þörf er á, til að veita svefnrónni móttöku. Sá, sem þjáist af einhverri ástríðu, sem ekki er hægt að full- nægja fvr en eftir langan tíma og hefur fvrir því engan frið í sínum heinum, á örðugt með að ná því jafnvægi, sem nauðsynlegt er til að geta notið svefnværðar. Þessu verður ekki hrevtt, en hins vegar er þó eitthvað óskiljanlegt og dularfult við náttúruöflin. —• Þau hlýða oss ekki altaf, en ])ó geta þau hjálpað oss ótrúlega lil að bæta úr meinum vorum. Það er eitt af undr- um lífsins, að svefninn oft og ein- att ryður sér braut þrátt fyrir alt, sem virðist andmæla því, að hann geti komist að. Og það er þetta þrátt fyrir alt, sem á verður að byggja úrræðin til að bæta úr. Eins og konan, sem frá var sagt í upphafi, gat fengið svefn- ró þrátt fyrir það, þótt einkadóttir hennar liati hana jafnt eftir sem áð- ur, eins er unt að fá menn til að njóta svefns þrátt fyrir alls konar mein og örðugleika — jafnvel þrátt fyrir svo mildar líkamlegar kvalir, að ekki er liægt að stilla þær með morfíni. Galdurinn við það felst í því, að dáleiðslan fær menn í það ástand, sem fyrir var áður. Með því fær endurnýjunarstarf lífsins yfirhönd- ina — þrátt fyrir alt. AÐALBANKAST.IÓRI Englands- hanka ræður yfir öðrum helm- ingnum af veröldinni, og enginn maður getur stjórnað hinum helm- ingnum, nema með samþvkki lnrns. Þessi maður getur með einu sím- tali stöðvað hvaða fjármálastarf- semi, sem vera skal. Neitun frá hon- um getur lokað dvrunum að pen- ingamarkaði Bretlands fvrir öllum erlendum aðiljum. Á honum sann- ast hið fornkveðna, að dýrt er drott- ins orðið. Eitt nei af vörum þessa manns getur verið áhrifameira held- ur en mörg orð af vörum þing- manna, ráðherra, konunga og keis- ara. Hann: — Hvernig á ég að vita, að þér elskið mig? Hún: — Hef ég ekki dansað við yður sjö dansa í röð? Hann: — Jú, en hvað sannar það um áist yðar? Hún: — Þér ættað að vita, hvern- ig er að dansa við yður!

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.