Samtíðin - 01.06.1940, Blaðsíða 30

Samtíðin - 01.06.1940, Blaðsíða 30
26 SAMTÍÐIN hans döguin, hafi liann með fyrir- litningu snúið huga sinum frá öllu slíku brauki og bramli. Þannig kveðst Goethe hafa tekið að sökkva sér niður í kínversk fræði, er Iion- um barst fregnin um það, að óróa- seggurinn Napoleon hefði farið yfir Rin og ráðist á Þjóðverja. I. B. Firth í Daily Telegraph. FYRSTI gaffallinn (matkvíslin) barst til Englands frá Italíu ár- ið 1608. Sá hét Coryate, sem hafði með sér þennan gaffal til Englands, og varð hann auðvitað að ærnu at- hlægi fyrir vikið. Það þótti þá ó- dæma tepruskapur eð éta með gafli. Menn notuðu fingurna, guðsgaflana, við máltíðirnar. í bók, sem fjallar um það, hvernig vel uppalin börn eigi að hegða sér, (frá 1480) segir m. a.: „Takið aðeins með þrem fingrum á kjötinu, þegar þið eruð að borða og varist að troða því upp í ykkur með báðum liöndum. Haldið höndunum ekki of lengi á diskinum.“ Frakklandskonungur varð frægur fvrir það, árið 1315, að hann át með einum gafli! Alþýðan á Englandi lærði ekki að horða með gafli fyr en um 1780. — C. A. Lyon í „Sunday Express“. Sænskur yfirhersRöfðingi (við undirföringja): — Þér drekldð. Undirforinginn: — Nei, herra hershöfðingi. Yfirhershöfðinginn: — Ágæti, þa getið þér afhent mér áfengisbókina yðar. Þúsameistarar og byggingamenn! Við höfurn ávalt fyrirliggjandi okkar 1. flokks vikurplötur. Aðeins um 70 aurar af verði hvers fermetra af 7 cm. vikurplötum fara út úr landinu, fyrir erlent efni (se- ment). En af verði hvers fermetra í timb- ur-„forskalling“ fara um 5 krónur út úr landinu fyrir erlent efni (timb- ur, pappa og vírnet). Auk þessa mikla gjaldeyrissparn- aðar, er vikurinn, samkvæmt er- lendri og innlendri reynslu, óum- deilanlega besta og varanlegasta ein- angrunarefnið, sem við eigum kost á. YIKUMFÉLAGIÐ “ AUSTURSTRÆTI 14. — SÍMI 1291. íslendingar! Lálið jafnan yðar eigin skip annast alla flutninga yðar með- fram ströndum lands vors. Hvort sem um mannflutn- inga eða vöruflutninga er að ræða, ættuð þér ávalt fyrst að tala við oss eða umboðsmenn vora, sem eru á öllum höfnum landsins. SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.