Samtíðin - 01.02.1944, Qupperneq 18

Samtíðin - 01.02.1944, Qupperneq 18
14 SAMTlÐIN manna, og þó voru þeir sannköll- uð mikilmenni á sviði stáls og blóðs. — Að vísu, anzaði prestur, — en það hefur verið uppi svo mikill ara- grúi af herforingjum og stjórnend- um, síðan heimurinn var skapað- ur, eins og þér vitið. Það er sann- arlega enginn hægðarleikur að muna eftir þeim öllum fyrir ólærða menn, á ég við. — Hann leit afsakandi á sagnfræðinginn og bætti við: — Ó- dauðleiki er undarlegt hugtak. Það virðist vera ómögulegt að skrá það með blóði í sálir fólksins. Hann staldraði við hjá litlum og fornleg- um legsteini. — Hér hvílir nú ótigin kona, sem öðlazt hefur ódauðlega frægð á mjög óbrotinn og einfald- an hátt. Hún hét Anna Brown. — Þekktuð hér hana? spurði sagn- fræðingurinn. Presturinn leit á hann, og í svip Iians brá fyrir hálfgerðri undrun. — O, ekki get ég nú sagt það, mælti hann lágt. Það eru 300 ár, síðan hún dó. — Hnndfjandinn þinn beit mig i öldann! — Gaztu kannske búizt við, að smáhvolpur gæti bitið þig á bark- ann?! Heiðruðu áskrifendur! Með þessu hefti Samtíðarinnar er ár- gjaldið í ár, 15 krónur, fallið í gjalddaga. Reykvíkingar og þeir Hafnfirðingar, sem hér eru á ferð, eru vinsamlega beðnir að borga áskriftargjöld sín á einhverjum þeirra þriggja greiðslustaða, sem nefndir eru neðst á bls. 32. t>ér léttið útgáfu- starfið að miklum mun með því að greiða áskriftargjald yðar nú þegar. INGÓLFUR DAVÍÐSSON: Helgi magri [Tileinkað Eyfirðingafélaginu í Reykjavík, birt hér með leyfi höfundar.] Helgi magri — sögur segja sigldi út að nema lönd; fyrsta bæ við fjörðinn Eyja forðum reisti’ á Árskógsströnd. Fönn um haustið hlóðst að moldu. Helga þóttu veðrin hörð; áður gisti írska foldu ársins hring leit græna jörð. Sólarfjallið röðull roðar, rís það hátt við fjarðarströnd; Helgi þaðan hérað skoðar hríðarminni dalalönd. Flutti innar — fældist snjóinn fór í Kristnes með sitt bú; ýtum virðist út við sjóinn engu minni föngin nú. Þegar vorið vekur blómin, vaknar þrá í huga mér; fuglasöng og fossaróminn flytur heiman blær með sér. Meðan ár að ægi líða — urtir vaxa — sólin skín; heim í Eyjafjörðinn fríða fýsir jafnan börnin þín. Beztu kaupin gera allir í verzlun Guðjóns Jönssonar á Hvérfisgötu 50 Sími 3414.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.