Samtíðin - 01.06.1944, Blaðsíða 9
SAMTCÐIN
5
Próf. ALEXANDER JÓHANNESSON:
Stundin er komin
VORGOLAN
STRÝKST
um fjallatind-
ana og leitar nið-
ur í dalina og
klappar á vanga
á íslenzkum
börnum, er lif-
að hafa í þessu
landi í þúsund
ár. Ég er barn íslands og hefi fagn-
að hverju vori i hálfa öld, en aldrei
hefir hugur minn Ijómað áður á
sama hátt. Eg kenni undarlegs sam-
blands af þregtu og gleði, líkt og
göngumaður, er gengið hefir sig
þregttan um urðir og hraun og veit,
að hann er kominn að leiðarlokum.
Einkennilegur höfgi sígur mér á
brár, ég er eins og milli svefns og
vöku, og nú skynja ég allt mitt liðna
ííf, er líður fyrir hugskotssjánir
mínar eins og myndir á tjaldi. Að-
eins örfáum atriðum bregður fyrir,
þeim, er hafa markað stefnu Ufs
míns — og þessar myndir birtast
með leifturhraða, ein og ein, og
skyndilega lwerfur sýnin — og ég
kenni sjálfs mín, eins og ég er í
dag. Eg er sonur íslands og finn
til óumræðilegrar gleði, er Fjall-
konan, vor ástfólgna móðir, er orð-
in alfrjáls, og gengur tigulega fram
á þingi þjóðanna. Endurminning-
arnar vakna, glæsilegar og daprar.
Vér minnumst hinna glæsilegu vík-
inga, er sóttu hingað fyrir þúsund
árum og reistu hér byggðir og bú.
Vér minnumst gullaldar íslands, er
vitrir liöfðingjar settu hér allsherj-
arþing, skipuðu málum sínum í sátt
og samlyndi og íslenzk vísindi og
listir vöknuðu i skjóli réttláts þjóð-
skipulags og vörpuðu Ijóma um
aldaraðir á hinn íslenzka kynstofn,
er varð máttugur og hertist í átökum
við ísa og storma, en mildur og göf-
ugur í skini liinna nóttlausu sumar-
daga. Vér minnumst með sorg í huga
niðurlægingar þjóðar vorrar, er hún
glataði sjc'dfstæði sínu vegna sundr-
ungar íslenzkra liöfðingja, er settu
eigin hagsmuni ofar alþjóðar vel-
ferð. Vér minnumst svartnættisins
i sögu þjóðarinnar, er hin kynborna
þjóð varð að þrælum erlends valds
og hvers konar eymd og áþján varð
hlutskipti íslenzkra barna. Vér
minnumst með hryllingi ýmissa at-
burða, er islenzkir ágætismenn
urðu grátandi að afsala sér sjálfu
frelsinu, hinu dýrasta allra hnossa,
og urðu að knékrjúpa erlendu valdi
með bænarskrám eða á annan hátt,
eins og þræla er siður. En vér minn-
umst með fögnuði hinna frjálsbornu
höfðingja, er höfðu djörfung og þrek
til að rísa gegn kúgun og fargi hefð-
bundinnar venju og hófu frelsis-
baráttu íslendinga, sem nú er far-
sællega til lykta leidd. Vér minn-
umst höfðingjans, er varð sómi ís-
Alexander
Jóhannesson