Samtíðin - 01.06.1944, Blaðsíða 31
SAMTÍÐIN
27
Tobbi brosti vingjarnlega og óð út í.
Hann kom ekki í land, fyrr en klukk-
an langt gengin þrjú síðdegis. Ég
get ekki sagt, að ég hafi beinlínis
saknað bans, en mér varð oftar en
einu sinni bugsað til flöskunnar,
axlafullrar. Hann var armæðulegur
á svipinn, og bann sagði við mig,
næstum því hlýlega:
„Þetta þýðir ekkert. Hér er ekki
bein. Yið skulum skreppa upp á efri
part.“
Svo leit liann í kringum sig og
spurði: „Hvar er fiskurinn?“
„Laxinn,“ spurði ég. „Ég setti hann
bak við veiðihúsið.“
Ógnrlegri skelfingu brá fyrir í
svip Tobba. Án þess að mæla nokk-
urt orð skálmaði hann upp að hús-
inu. Eftir stulta stund kom hann
þjótandi til mín, og það skein laun-
morð út úr augum lians. Ég vissi
ekki, hvaðan á mig stóð veðrið. Hann
rak andlitið á sér upp að mínu and-
liti og hvæsti:
„Minkurinn er búinn að taka
hann.“
„Hvaða minkur?“ spurði ég i
barnslegu sakleysi. Þetta hefði ég víst
ekki átt að segja, því að nú varð hann
alveg brjálaður. Hann réðst á mig,
en ég varðist af öllum mætti. Það
voru vegagerðarmenn, sem skildu
okkur. Ég tók strætisvagn heim, og á
leiðinni sór ég þess dýran eið, að fara
aldrei í veiðitúr framar.
'• . * "
A.: — Eruð bér nokkuð skijldur
Eyjólfi Eyjólfssyni?
E.: — Ég er Eyjólfur Eyjólfsson.
A.: — Þarna kemur það, ég sé, að
þið eruð bara töluvert svipaðir.
Geir Stefánsson
& Co. h.f.
Umboðs- og heildverzlun
Austurstræti i
Reykjavík
Sími 1999.
Vefn o ðarvörur
Sliófatnaður
Um b úðap appír
Þjóðfræg
vörumerki
Tip Top-þvottaduft
M ána-stangasápa
Paloma —
óviðjafnanleg handsápa.
i