Samtíðin - 01.09.1947, Page 9

Samtíðin - 01.09.1947, Page 9
SAMTtÐIN 5 Rrófadálkur Samtídarinnar UNDIR þessari fyrirsögn mun Samtíðin framvegis birta aðsend bréf eða kafla úr þeim. Æskilegt er, að háttvirtir lescndur tímarits- ins sendi því stutt og gagnorð bréf um vandamál líðandi stundar. Vill ritið gjarnan verða vettvangur vit- urlegra tillagna og alhugasemda á sviði íslenzkra atvinnu- og menn- ingarmála. Þau skilyrði verður að setja fyrir birtingu slíkra bréfa eða bréfkafla, að ritað sé af fullkom- inni prúðmennsku og algerlega sé sneitt hjá íslenzkri flokkapólitík, enda á hún sér nægilega viðan vett- vang i stjórnmálablöðum þjóðar- innar. Nafnlaus bréf eða undir dul- nefni verða ekki birt, enda þótt snjöll kunni að vera. Að sjálfsögðu eru menn sjálfráðir, hvort þeir vilja, að nöfn þeirra séu prentuð með bréfunum. Bréf, sem ekki er unnt að birta, verða því aðeins endur- send, að burðargjald fylgi. KEYSERLING: „Kenning Nietzche um ofurmennið er alls ekki frásögn um hið mikla, heldur þ r á eftir því mikla.“ Sigurgeir Sigurjónsson hæstaréttarmálaflutningsmaður. Aðalstræti 8 — Sími 1043 Skrifstofutími 10—12 og 1—6 Vitið þér þetta ? Svörin finnið þér á bls. 2Í). 1. Hve hátt er fjallið Everest yfir sjávarmál ? 2. Hverjar þessara plantna geta skemmzt af völdum kálmaðks- ins: Gulrófa, gulrót, blómkál, kartöflujurt, hreðka? 3. Ilvernig er hið heimsfræga heiti Kodak tilkomið? 4. Hve mikið gizkið þér á, að list- málarar og myndhöggvarar Bandaríkjanna hafi fengið fyrir verk sín árið 1930? 5. Hvaða brezkur rithöfundur hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1932? pUNDARSTJÖRI nokkur í Bretlandi kynnti eitl sinn Lloyd sáluga Ge- orge á þessa leið: ,,Ég hafði búizt við, að Lloyd Ge- orge væri hár og glæsilegur maður, en nú sjáið þið sjálf, að hann er mjög lítill vexti“. Lloyd George lét sér hvergi bilt við verða, heldur hóf mál sitt á þessa leið: „1 Norður-Wales, þaðan sem ég er ættaður, mælum við menn frá höku til hvirfils. Hér eruð þið sýni- lega vanir að mæla menn frá höku til ilja.“ Suðutækin gera gagn, guil í búið dragg, þegar rakið rafurmagn rennur alla daga.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.