Samtíðin - 01.09.1947, Blaðsíða 29
SAMTÍÐIN
25
Sérkennilegur kveðskapur
Öfugmælavísur, eignaðar Bjarna Jóns-
syni Borgfirðingaskáldi, með mýnd-
um eftir Örlyg Sigurðsson. Helga-
fell, Rvík 1946.
DJARNI JÓNSSON Borgfirðinga-
skáld er eitt þeirra skálda okk-
ar frá fvrri öldum, sem býður það
góðan þokka, að ekki er vanzalaust,
hve lítill sómi honum hefur verið
sýndur og hve lítt nútíma Islending-
ar þekkja til hans. Um þennan sér-
stæða gáfumann mynduðust fyrrum
kynjasögur, og lítill vafi er á því,
að ýmis kvæði hans standa enn í
fullu gildi, svo ósvikin var ljóðgáfa
hans. Bjarni mun hafa verið uppi á
síðari hluta 16. aldar og fram yfir
miðja 17. öld. Svo er talið, að hann
sé fyrsti íslendingur, sem ort hefur
svo nefndar öfugmælavisur. Hvað
sem því líður, hefur þessi fáránlega
kveðskapargrein, sem er i því fólg-
in, að yrkisefnið er sett í ramm-
skakkar skorður, orðið geysilega vin-
sæl hér á landi. Hafa menn gert sér
það til gamans, að auka við hinn
gamla stofn Bjarna skálda, og hafa
Islendingar þannig eignazt álitlegan
slatta öfugmælavísna. Nú hefur
Helgafell gert úr þessum vísum mjög
snotra bók, með nokkrum heilsíðu-
myndum eftir listamanninn örlyg
Sigurðsson, sem manna bezt var trú-
andi til að myndtúlka þessar skrítnu
vísur.
Hér er sýnishorn af vísunum:
Séð hef eg glíma sel og hest,
silunginn spinna allra bezt,
hrafninn synda á hafið út,
hákarlinn drekka úr brennivínskút
PÍ AMÓ
Píanó frá píanóverk-
smiðju Louis Zwicki,
Kaupmannahöfn upp-
fylla kröfur hinna vand-
látustu.
Umboðsmaður verksmiðj-
unnar er
C$i(( ^JJnitjánióon,
heildverzlun.
Hafnarhúsinu. Sími 7136.
VICTOR
uepna(anrönwerz(un
Laugavegi 33. Sími 2236.
Hefir á boðstólum allskonar
vefnaðarvörur og fatnað á
DÖMUR,
HERRA
BÖRN.
Góðar vörur!
Fjölbreytt úrval!