Samtíðin - 01.09.1947, Blaðsíða 13

Samtíðin - 01.09.1947, Blaðsíða 13
SAMTÍÐIN 9 um, til hvers á að nota hvað eina. Eftir að þau eru komin á skóla- aldur, vilja þau líka fá að vita, hvað- an hlutirnir séu komnir og hvernig þeir hafi verið húnir til. Það efu fjöldamargir hversdagslegir lilutir, sem börn vilja fá að vita, hvernig búnir liafi verið til. Smjör er þeim t.d. mikil ráðgáta. Einnig brenna þau í skinninu af að fá að vita, hvaðan ull og baðmull séu komin, hvar rafmagsperur séu húnar til, hvernig farið sé að því að sjóða nið- ur matvæli. Ef foreldrarnir verjast allra frétta um þessi atriði, er hætt við, að börnin fari að mynda sér hinar furðulegustu hugmyndir í sam- bandi við tilorðningu hlutanna. — Vitrir foreldrar fræða hörn sín um þessa hluti, jafnóðum og forvitni barnanna á þeim er vakin. Við það eykst alveg áreiðanlega oft og einatt traust barnanna á foreldrunum að verulegum mun. Hve margra spurninga spyr venju- legt barn á dag? Það er mjög undir því lcomið, hvort foreldrar barnsins hafa örvað eðlilega forvitni þess eða dregið úr henni. Tveggja ára gamalt barn er vant að spyrja um það l)il 60 spurn- inga á dag, en lítilsgildur munaðar- leysingi, sem er jafngamall því, spyr aftur á móti ekki nema svo sem tveggja spurninga á degi hverjum. Annars kemur forvitni barnsins fram á ýmsan annan hátt en í spurningum þess. Sum ung börn strjúka að heim- an til þess að kanna ófarna stigu og seðja þannig forvitni sína. Önn- ur taka í sundur alls konar hluti af sömu ástæðum, enda þótt slíkt sé kölluð skemmdarnáttúra og ekkert annað. Á ekki að segja börnunum að leita sjálfum að svörum við spurningum sínum? Þegar þau eru komin á þann ald- ur, að þau eru orðin læs, er hægt að vísa þeim á einhverjar fræðibækur, sem veita svör við spurningum þeirra, en til að byrja með er ráð- legast, að foreldrarnir leiðbeini hörnunum við notkun slíkra bóka. Það gerir foreldrana auk þess hæfari til að veita börnunum frekari upp- lýsingar um hvað eina, sem i bók- unum stendur, ef börnin kynnu að vilja öðlast enn fyllri vitneskju en þar er að liafa. Aulc þess, sem að- stoð foreldranna i þessum efnum er börnum þeirra nauðsynleg, geta þeir sjálfir fræðzt af henni. Ef harni er hins vegar skipað að leita hjálpar- laust í bók og foreldrarnir liálf- snupra það fyrir kvabhið, mega þeir eiga það víst, að barnið glati að ein- hverju leyti trausti sínu á þeim og að forvitni þess réni sakir minni- máttarkenndar, eins og títt er, þegar munaðarlaus hörn eiga hlut að máli. En þegar börnin eru á annan borð orðin læs, er sjálfsagt að hafa við höndina góða alfræðibók við þeirra hæfi. Er nokkur hætta á ferðum, ef börn spyrja margs um kynferðis- mál? Börn í smábarnaskólum spyrja svo sjaldari um kynferðismál, miðað við spurnirigar þeirra um ýmis önn- ur efni, að hlutfallið er því sem næst 1:250. Foreldrum finnst börnin engu að síður spyrja oft um kynferðis-

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.