Samtíðin - 01.09.1947, Blaðsíða 30
26
SAMTlÐIN
Séð hef eg rjúpur veiða val,
vankakind að skutla hval,
dauða keriing ydda al,
ostinn reka upp hanagal.
Séð hef eg köttinn syngja á bók,
selinn spinna liör á rokk,
skötuna elta skinn i brók,
skúniinn prjóna smábandssokk.
Bjarni Borgfirðingaskáld ætti það
sannarlega skilið, að undinn væri
hráður bugur að því, að kvæði hans
væru gefin út í heild með tilhlýði-
legum inngangi um skáldið og verk
þess. Slíkir afhurðamenn mega ekki
verpast þögn og gleymsku. Við höf-
um áreiðanlega ekki efni á því að
láta fenna yfir skáldið, sem orti
þessar ljóðlínur:
Upp vek þú málið mitt,
minn guð, hljóðfæri þitt;
láttu þess strengi standa
fyrir stilling heilags anda,
svo hafni eg heimsins æði
og hugsi um eilíf gæði.
___________ S. Sk.
£F ÞÚ ert hugvitssnillingur, mun
iðni þín auka á þá gáfu, en ef þú
ert gersneyddur allri snilligáfu, kem-
ur iðnin í hennar stað.
Betlarinn: „Réttið mí fátækum
manni, sem hvorki er sjóntaus né
heyrnarlaus né neitt, sem heiðar-
lequr maður getur lifað af, hjálpar-
hönd, elsku vinur.“
T*lji yður vantar góð herrn- eða
dömuúr, ættuð þér að tala við
mig. — Sent um allt Iand.
C'jottiveinn OdJnou
úrsmiður.
Laugaveg 10, Reykjavik.
Kristinn Guðnason
Iílapparstíg 27
Sími 2314. Reykjavík.
Sel og útvega alls konar vara-
hluti til bifreiða, einnig verk-
færi alls konar.
£g útvega hinar velþekktu
St. Paul vökvasturíur.
Munið, að margra ára reynsla
er trygging fyrir hagkvæmum
viðskiptum.
Borgartún 4. Sími 7049.
HúsniœÖEir
Aukið heimilisánægjuna
mcð því að hafa ávallt
á borði yðar.
Veljið um 8 ljúffenga búðinga.