Samtíðin - 01.09.1947, Blaðsíða 24
20
SAMTÍÐIN
egi, ekki sízt þar sem höfundurinn
var sá ráðherra, er fór með þessi
mál á sinni tíð. Þetta er fyrsta ítar-
lega greinargerðin um utanríkis-
pólitík Noregs tímamótaárið 1905,
glæsileg bók, prýdd mörgum mynd-
um. (319 bls., verð n. kr. 14.50 ób.,
íb. um kr. 21.50).
Hjemme og i fiendeland eftir hinn
gagnmerka vísindamanna, próf.
Didrik Arup Seip, er bók, sem ýmsa
Islendinga mun fýsa að kynnast.
Sei]) háskólarektor dregur hér fram
í dagsljósið allmargt varðandi stjórn
Djóðverja á Noregi á hernámsárun-
um og hina hetjulegu baráttu há-
skólans gegn ofbeldinu. Þá skýrir
hann frá fangavist sinni í Möllergölu
19, á Grini og IoIís í þýzkum fanga-
húðum og kann þar frá mörgu furðu-
legu að segja. Mesta athygli kann þó
sá kafli bókarinnar að vekja, er fjall-
ar um dvöl höfundar í Þýzkalandi,
eftir að hann var orðinn þar það,
sem kallað var „frjáls fangi“. (620
hls., verð ób. n. kr. 22.00, íb. kr.
25.00).
I bókina Flagget eftir Nordahl
Grieg hefur verið safnað flestu af
því, sem skáldið og þjóðhetjan skrif-
aði um kynni sín af styrjöldinni, eða
frá því að hann tók þátt í því að
flytja gullforða Noregsbanka á ör-
uggan gevmslustað og þar til hann
féll í loftárás á Berlín 2. des. 1943.
Islendingar þekkja það mikið til hins
merka höfundar þessara greina að
þá langar vafalaust að lesa þær. (159
bls. ób. n. kr. 7.00, íb. ky. 9.50).
Tanker i mörketid eftir Sigurd
Hoel, hið snjalla norska skáld, er
ekkert minna en skeleggasta ritið,
.ijmundiionar.
Islendingar,
sem koma til Stokkhólms og
þurfa að kaupa sér góð og
ódýr föt, ættu að líta mn til
okkar.
Seljum tilbúinn fatnað og
saumum eftir máli. Hrems-
um og pressum föt.
A.-B. Kladkultur
Kungstensgatan 36,
Stokkhólmi.
Símar 30 85 60 og 32 00 96.