Samtíðin - 01.09.1947, Qupperneq 12

Samtíðin - 01.09.1947, Qupperneq 12
8 SAMTÍÐIN DR. DDNALD A. LAIRD: Örvið forvitni piNN HINN merkasti, núlifandi “ sálarfræðingur Bandarikjanna, dr. Donald A. Laird, svarar í eftir- farandi grein nokkrum athygliverð- um spurningum, varðandi sálarlíf barna. Má ætla, að foreldrar fái hér svör við ýmsu, er þeim hefur einatt flogið i hug, án þess að tekizt hafi . að fá úr því skorið. Bera börn ekki fremur upp spum- ingar til þess að vekja athygli á sér en til þess að fræðast? Sum hörn verða að bera upp spurn- ingar og ónáða foreldra sína á ann- an hátt til þess að vekja athygli þeirra á sér. En flestar af spurning- um barnsins eru blátt áfram sprottn- ar af eðlilegri forvitni, til þess að fræðast um allt, sem heita hefur. Veröldin er full af mörgum furðu- ' legum hlutum. Ungbarnið kynnist þeim með því að bragða á þeim, handfjalla þá, taka þá í sundur. En eftir að' barnið fer að geta talað, leitar það forvitni sinni svölunar með því að bera upp spurningar. Gefið alvarlega gaum að spurningum barnsins og reynið að leysa skil- merkilega úr öllum vandamálum þess með orðum, sem því er ekki um megn að skilja. En bera ekki sífelldar spurningar barnsins vott um, að því sé eitthvað áfátt andlega? Ef það spyr einskis, er full ástæða til að efast um, að það sé nægilegum barnsins yðar gáfum gætt. Þau börn, sem eru greindust, eru allra barna forvitnust. Af þeirri ástæðu m.a. læra þau svo margt með sífelldum tilhlaupum og árekstrum. Veikgeðja böm eru hins vegar eftirtakanlega óforvitin. Þið megið því vera þakklát fvrir það, að börnin ykkar skuli hafa á takteinum fleiri spurningar en ykkur kann að þykja þægilegt að svara í þann og þann svipinn. Hvernig geta leikföng orðið til þess að fullnægja forvitni barsins? Með þvi að barninu sé leyft að taka þau í sundur. Þar af leiðir, að ódýr leikföng eru heppilegust. Marg- ir hversdagslegir hlutir, svo sem pottar og krukkur, ásamt lokunum af ])essum sömu ílátum, eru ákjós- anleg leikföng handa bðmum innan við tveggja ára aldurs. Þetta eru hlutir, sem hentugir eru til þess að Iiafa handa á milli, setja saman, taka í sundur, bragða á, gera liávaða með. Þeir eru ekki einungis vel til þess fallnir að slcemmta barninu, heldur örva þeir einnig forvitni þess. Það er ekki víst, að slíkir hlutir séu sérlega glæsilegir, þegar þeir liggja á rúi og strúi, en barninu eru þeir geysihentugir. Hvort eru börn fíknari í að fræð- ast um, úr hverju hlutir eru búnir til eða til hvers á að nota þá? Þau vilja fá að vita hvort tveggja. En fyrst af öllu vilja þau fræðast

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.