Samtíðin - 01.09.1947, Qupperneq 28

Samtíðin - 01.09.1947, Qupperneq 28
24 SAMTÍÐIN eðlisfari ráðríkur, þá var hann svo samvinnuþýður, að hann hlýddi með gaumgæfni á tillögur annarra og vildi jafnan það eitt hafa, er réttast sýndist. Hafði hann því mikil og góð áhrif á livert mál, er hann hafði með höndum, og verður farsæld og nytsemi þess starfs seint rakin. . . . Ágúst Flygenring hal'ði mikil af- skipti af opinberum málum, bæði í héraði og á Alþingi. Sómdi hann sér vel í hóp stjórnmálamanna og mun hafa haft gaman af þeim viðfangs- efnum. En þótt hann væri bæði vin- sæll og vel metinn, jafnt af samherj- um sem andstæðingum, og hvort tveggja að verðleikum, þá gat hann sér þó ekki þar þann orðslír, sem lengst mun lifa. Afrek hans, þau er af bera, liggja á sviði atvinnulifs- ins, því hann var einn, og ekki sízt- ur, af framherjum þeirrar fámennu sveitar, sem stórstígust hefur verið á framfarabrautinni allt frá land- námstíð. 1 baráttunni við lífið sjálft, við óldíða, íslenzlca náttúru, fátæktina, deyfðina, fáfræðina og seinna í Jíf- inu við öl'undina, — í þeirri bar- áttu var Ágúst Flygenring hinn ó- sigrandi og ósigraði víkingur, sem engin járn bitu og aldrei lét hugast, hversu sem á mæddi. Á þeim vett- vangi vann hann sína stærslu sigra, sjálfum sér til vegs og þjóð sinni til blessunar og farsældar, og þar stend- ur minning þessa máttarstælta meiðs um ókomna tíma sem óhrotgjörn sönnun þess, hvers mannvit og mann- kostir megna“. (Óðinn XXIX. ár, bls. 58). ■ Framkvæmum: Bílaviðgerðir, Bílasmurningu, Bílasprautun. Seljum: Bílavarahluti, Bilaolíur, Loftþrýstiáhöld o. fl. M*ekkt innlewBii fi'awnleiösln : Vörpugarn Dragnótagarn Línugarn Pakkagarn Fiskilínur. BOTNVÖRPUR fyrir togara og togbáta. H.F. HAIHPIÐJAN Reykjavík. Símar 4336, 4390.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.