Samtíðin - 01.11.1950, Side 27
SAMTÍÐIN
23
um lýsingum á fólki og aldaranda i
formi smásögunnar.
Ein af smásögum VSV, Lítill
drengur minnir nokkuð á lýsingu
Kvarans á sálarlífi barna. Aldar-
andinn og viðhorf dagsins eru að
vísu öll önnur nú en þá, og það er
ólíkt meiri völlur á drykkjudrabbara
atómaldarinnar en umkomuleysingja
fyrri kynslóða, niðursetningi, sem
aðeins er að hafa vistaskipti. En börn
eru nokkuð söm við sig, og litli
drengurinn hans VSV verður lesand-
anuin ógleymanlegur, þegar hann er
að taka sína afstöðu til vandamála
líðandi stundar. — Rauðir seðlar,
fyrsta sagan í bóldnni, er góð lýs-
ing á því, hvernig menn verða „af
aurum apar,“ en í þeim efnum eru
dæmin nærtækari en marga grunar.
—- Nýtt hlutverk er líka snjöll saga,
er lýsir fórnfýsi og hugsunarhætti
gamla tímans. En allar eru sögurnar
læsilegar, og í heild sinni er fengur
að þeim. Höfundur á sér langt og
erilsamt blaðamennskustarf að baki
og hefur með smáletursdálkum sín-
um í Alþýðublaðinu gerzt brautryðj-
andi undir hinu þjóðkunna nafni
Hannes á horninu. Það er ekkert
smáræðis átak að gerast á miðjum
aldri eitt af mikilvirkustu sagna-
skáldum þjóðarinnar og brjóta sér
á því sviði tvær brautir nokkurn
veginn samtímis. Ég spái því, að báð-
ar þessar leiðir verði Vilhjálmi ekki
einungis færar, heldur stefni þær til
mikils frama á sviði bókmenntanna.
Aron Guðbrandsson
Segið vinum yðar frá efni „Samtíðar-
innar“ og að árgjaldið sé aðeins 25 kr.
í góðu úrvali.
Sent gegn póstkröfu um allt
land.
(juhnbmclur____/4ndt'ésóon
gullsmiður.
Laugavegi 50 A. Simi 3769.
RUÐIJGLER
Höfum rúðugler af öllum
þykktum og gerðum.
Ennfremur
Apeglar
cg MípaÍ gler
Verzl. BRVNJA
Sími 4160 — 4128.