Samtíðin - 01.12.1952, Blaðsíða 19

Samtíðin - 01.12.1952, Blaðsíða 19
SAMTÍÐIN 13 „Það kann vel að vera,“ anzaði Marvin, sem allan tímann var að velta þvi fyrir sér, hvort hann stæði augliti til auglitis við hrjálaðan mann, er kynni að vera hættu- legur, eða hvort hann væri hara að dreyma allt þetta heima í rúmi sínu, „en ekki er ég nú alls kostar viss um það. Þið verðið |)ó að kannast við, að ásóknir drauga séu fremur sjaldgæfar. Ég mundi telja, að það benti lil þess, að draugar hirtu ekki mikið um þetta hefndar- lögmál, hvað svo sem þið hafið um það að segja. Ef þið takið Jjctta ti! rækilegrar athugunar, l)ýst ég við, að þið munuð komast að raun um, að langflestum draugum sé aíveg sama, hvort J)eir koma fram hefndum eða ekki. Aðalánægjan er í því fólgin að hugsa um hefndirnar og leggja á ráð- in til að koma þeim fram. En svo maður fari nú að rökræða það, sem hér liggur fyrir: hvaða gagn munduð þið hafa af því að fara að kála hon- um Lyons gamla ? Ef þið gerðuð það, munduð þið ekki finna neina hvöl hjá ykkur til að ganga aftur eftir það. En ef þið sleppið honum, getið þið, hvenær sem ykkur langar lil ráðgazt um, hvernig þið eigið að fara að því að skjóta honum verulega skelk í bringu og stytt ykkur stundir við reikna út, hvernig honum muni verða við það, og ])á verður tíminn nú ekki lengi að líða. Þar við hætist, að ef það, sem gerist í nótt, hitnar að einhverju leyti á mér, mundi það verða vei’st fyrir ykkur sjálf. Þá munduð þið nefnilega verða ásótt af afturgöngum. Það er slæmt lögmál, sem verkar ekki nema á einn veg.“ Konan leit á hónda sinn. „Hann hefur rétt að mæla, Jón,“ sagði liún titrandi á beinunum. „Við ættum bara að lofa honum Lyons að fara leiðar sinnar.“ Maðurinn kinkaði kolli. Hann var áhyggjufullur á svip. „Ég er ekki al- veg á sama máli og þér,“ mælti hann kuldalega við Marvin. „Hitt fellst ég á, að til þess að bjarga yður, verðum við að láta Lyons fara. Ef þér viljið hjálpa mér, skulum við bera hann út og láta hann inn í bílinn sínn.“ „Mér skilst, að það komi nú til með að lenda á mér einum að gera það.“ „Já, það er alveg rétt hjá yður,“ sagði maðurinn. Þeir gengu nú fram í litla anddyrið, og þar sá Marvin sér til mikillar undrunar, hvar Lyons gamli lá eins og hrjúga á gólfinu. Marvin þekkti hann undir eins af myndum, sem hann hafði séð af lioniun í blöðunum. „Ekki er hann nú svipfallegur, karluglan!“ sagði Marvin og reyndi að láta ekki á því bera, hve rödd hans var óstyrk. Maðurinn kinkaði kolli án þess að mæla orð frá vörum. Meðan þeir báru máttvana karlinn í rigningunni og létu hann inn í stóra sedan bílinn, virti Marvin manninn nákvæmlega fyrir sér. Þeg- ar þessu var lokið, stóð maðurinn andartak þegjandi og horfði upp til dimmra, ósýnilegra skýjanna. „Það er að rofa til,“ sagði hann, eins og ekkert hefði í skorizt. „Eftir klukkutíma verður alveg stytt upp.“ „Ég fæ fyrir ferðina hjá konunni minni, þegar ég kem heim,“ sagði Marvin.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.