Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 25
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Sigrún segir að hún hafi gott ráð handa fullorðna fólkinu í dag sem er í óðaönn að leggja lokahönd á jóla- undirbúninginn. Það sé engin þörf að stressa sig og börnin á heimilinu geti hjálpað til: „Verið bara róleg, við hjálpum ykkur við að undirbúa. Við getum skreytt jólatréð, skrifað á pakkana og skreytt þá og margt fleira,“ segir Sigrún og systir henn- ar samsinnir henni – það geti allir á heimilinu hjálpast að. Systurnar segjast vita að jólin eru haldin til að fagna fæðingu Jesúbarnsins. „Jólin eru líka til að fagna ljósinu, að dagurinn er að lengjast,“ segir Sigrún. Jólasveinninn er þeim ofarlega í huga enda hafa þeir nokkrir verið að gefa þeim í skóinn og þær taka það fram að þær hafi aldrei nokk- urn tímann fengið kartöflu í skóinn en hins vegar viti þær um óþekk- an strák í bekknum hennar Sig- rúnar sem hafi örugglega fengið kartöflu. Myndu þær fá kartöflu eru þær hins vegar með ráð undir rifi hverju. „Við gætum bara selt ömmu Hugrúnu kartöflurnar. Hún keypti kartöflurnar úr skólagarð- inum á þúsund krónur,“ segir Úlf- hildur. Þær stöllur eru ekki búnar að mynda sér skoðun um tilvist Grýlu og finnst jafnlíklegt að hún sé til og að hún sé ekki til en þær eru vissar um að hún sé með bólu á nefinu og pokinn hennar sé úr mjög sterku efni ef hún lifir ein- hvers staðar. „Það er erfitt að bíða í dag, en það er samt gaman meðan barna- tíminn er í sjónvarpinu. Svo fáum við að opna einn pakka fyrir mat- inn,“ segir Sigrún. juliam@frettabladid.is Verið róleg, við hjálpum Þær systur Sigrún Valgeirsdóttir og Úlfhildur segjast aldrei hafa fengið kartöflu í skóinn enda séu þær með eindæmum stilltar. Ef þær fengju kartöflur myndu þær selja ömmu sinni kartöflurnar. Úlfhildi Valgeirsdóttur, sex ára, langar mest í diskókúlu sem snýst og gefur frá sér fallegt ljós. Sigrúnu systur hennar, 8 ára, langar í hljómborð á standi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN JÓLABAÐIÐ er fastur liður á aðfangadegi. Sund- laugar í Reykjavík eru opnar í dag til klukkan 12.30. Því er um að gera að slá tvær flugur í einu höggi, ná skemmtilegri samverustund með fjölskyldunni í sundi og klára jólabað allra fyrir hádegi. Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 Fyrst og fremst í heilsudýnum JÓLATILBOÐ á stillanlegum rúmum 6 mán. vaxtalausar greiðslur Opið alla daga til jóla Ný sending af sængurverasettum DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS · Tekur 12 Kg · Hljóðlát · Stórt op > auðvelt að hlaða · Sparneytin 12 kg Þvottavél og þurrkari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.