Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.12.2009, Blaðsíða 16
16 24. desember 2009 FIMMTUDAGUR Þ etta var hörmulegur atburður sem skók þjóðina, segir Jón Ársæll. Hann segir að þegar þeir Björn hafi unnið saman að þáttum um 20. öldina árið 1999 hafi þeir rekist á þessa sögu og hitt fólk sem lifði slysið af. Þeir hafi strax fundið að söguna þyrfti að segja ítarlegar. Síðan hafa þeir félagar unnið að verkefninu, safn- að saman gögnum um hinstu ferð- ina, kannað leitina að flakinu og rætt við eftirlifendur; þar með talað þýska kafbátahermenn. Í byrjun nóvember árið 1944 var Goðafoss á heimleið með skipalest- inni UR-142 eftir tæplega mánað- ar ferð til New York með viðkomu í Loch Ewe á Skotlandi. Goðafoss hafði siglt áfallalaust öll stríðsárin og var í forystu skipalestarinnar. Vopnaðir togarar fylgdu lestinni, líkt og venja var. Kafbátahernaði lokið Kvöldið 9. nóvember, þegar skammt var til lands, biðu skipverjar af sér slæmt veður. Þeir sátu neðan þilja og hlýddu á útvarpið. Þar var Winston Churchill, forsætisráð- herra Breta, í umræðum á breska þinginu að lýsa því yfir að kaf- bátahernaði Þjóðverja væri lokið. Vissulega væri bátur og bátur á stangli, en umfangsmikill hernað- ur væri liðin tíð. Skipverjar og far- þegar á Goðafossi fögnuðu þessum fregnum eðlilega. Nú gátu þeir haldið heim í friði og ró. Þegar birti af degi var ljóst að skipin hafði rekið hvert frá öðru í veðurhamnum. Þrjú skip voru í námunda við Goðafoss og þegar siglt var fyrir Garðskaga mættu þeim björgunarbátar af breska olíuskipinu Shirvan sem var með í lestinni. Skipið sjálft brann á haf- fletinum. Í bátunum voru 20 skips- brotsmenn, illa farnir eftir brun- ann. Örlagarík björgun Skipstjórinn á Goðafossi, Sigurð- ur Helgason, tók þá ákvörðun að liðsinna skipbrotsmönnum. Meðal farþega var Friðgeir Ólafsson læknir sem tók til við aðhlynningu hinna særðu. Þýski kafbáturinn U-300, undir stjórn foringjans Fritz Heins, hafði grandað breska olíuskipinu. Ólíkt því sem tíðkaðist ákvað kafbáta- foringinn að bíða í nágrenninu, lík- lega til að kanna hvort skipið sykki og í von um að fleiri skip bæri að. Kafbáturinn hafði verið nokkra hríð við Íslandsstrendur og leynst við Reykjanes. Stuttu eftir að skipbrotsmennirn- ir voru komnir um borð í Goðafoss drógu fylgdarskipin upp svartan fána, merki um að kafbátur væri í nánd. Einn skipverja á Goðafossi var á þessari stundu að sækja fatn- að fyrir skipbrotsmennina í einum af fjórum björgunarbátum skips- ins, en varð litið af tilviljun yfir hafflötinn á bakborða. Þar sá hann það sem líktist hvítri rák sem nálg- aðist skipið hratt. Aðeins gat verið um eitt að ræða. Sjö metra langt tundurskeyti kafbátsins skall á Goðafoss rétt aftan við miðja bakborðssíðuna og sprakk af svo miklu afli að skipið lyftist upp af haffletinum. Hávað- inn og titringurinn sem fylgdi sprengingunni var yfirþyrmandi og skipið kastaðist 35 til 40 gráður yfir á stjórnborða. Sumir farþeg- ar misstu meðvitund við höggið, aðrir, sérstaklega þeir sem voru í vélarrúmi og neðan þilja, létu lífið samstundis. Björn og Jón Ársæll segja að ákvörðun skipstjórans um að taka skipbrotsmennina upp í hafi verið örlagarík. Með því hafi Goðafoss verið berskjaldaður gegn árás kafbátsins. Skipið átti aðeins eftir um einnar klukkutíma siglingu til Reykjavíkur. Leituðu bátsins fyrst Goðafoss sökk á um sjö mínútum eftir árásina. Risastórt gat kom á bakborðssíðuna og skipið sökk rólega niður að aftan, en fór síðan lóðrétt niður með stefnið á undan. Eftirlifendur reyndu að koma sér í björgunarbátana eða finna sér reköld. Margir voru léttklædd- ir og voru farnir að búa sig undir komuna til Reykjavíkur með því að fara í betri fötin. Skipbrotsfólkið mátti þola tveggja tíma volk í köldum nóvem- bersjónum á meðan fylgdarskipin leituðu kafbátsins. Hann komst þó undan og sökkti síðar tveimur skipum við Gíbraltar áður en hann náðist. Margir lifðu þá vist í sjón- um ekki af. Alls fórust á sjötta tug manna í árásum þennan dag, en kafbátur- inn sökkti einnig breska skipinu Empire Wold. Af Goðafossi fórust 24, fjórtán skipverjar og tíu far- þegar. Miklar furður Jón Ársæll segir að sagan af Goða- fossi sé samofin sögu þjóðarinn- ar. „Fyrsti Goðafoss strandaði við Ísafjarðardjúp og þetta var skip númer tvö sem fórst á þennan hátt.“ Jón Ársæll segir þetta vera Titanic Íslands. Björn segir miklar furður hafa tengst Goðafossi. Marga hafi dreymt fyrir atburðinum. Þá hafi vakið furðu að aðeins tvö lík rak á land; tvo syni læknishjónanna sem fundust við Snæfellsnes. Þá hefur flakið af Goðafossi aldrei fundist, þrátt fyrir ítarlega leit. „Flakið gekk kaupum og sölum enda var mikið um verðmæti í því. Kopar á leið í Sogsvirkjun, forsetabíll Sveins Björnssonar og áfengi. Þá gengu sögur um peninga í vatns- heldum umbúðum, sem áttu að fara til bandarískra hermanna. En flakið hefur aldrei fundist. Heimildarmyndin um Goða- foss verður sýnd í Ríkisútvarp- inu í tveimur hlutum; á jóladag og nýársdag. Sökkt á síðustu metrunum Mesta blóðtaka sem Íslendingar urðu fyrir í stríðinu varð þegar þýskur kafbátur sökkti Goðafossi rétt fyrir utan Garðskaga. Björn Br. Björnsson og Jón Ársæll Þórðarson hafa unnið að mynd um atburðinn og sögðu Kolbeini Óttarssyni Proppé frá afrakstrinum. LÆKNISSYNIRNIR þeir einu sem rak á land. SIGURÐUR HELGASON SKIPSTJÓRI.GOÐAFOSS Tíu farþegar og fjórtán úr áhöfn létust þegar Goðafoss var sökkt af þýskum kafbáti. Þá létust 19 skipverjar af bresku olíuskipi sem nýverið hafði verið bjargað um borð í Goðafoss. Flakið hefur aldrei fundist. Jólin snúast um gleði, frið og góðar samverustundir. Njótum þeirra örugg í faðmi fjölskyldunnar og förum varlega. Við óskum þér hamingjuríkrar hátíðar og farsældar á komandi ári og þökkum fyrir árið sem er að líða. ÍS L E N S K A /S IA .I S /V O R 4 82 63 1 2/ 09
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.